Veðrið - 01.09.1978, Síða 29
ofviðrisdaga á nokkurn veginn hlutlægan hátt og ef gera á tölfræðileg yfirlit um
slíka daga.
Fjöldi veðurstöðva er síbreytilegur en þó hefur stöðvum yfirleitt farið fjölg-
andi allt frá 1920. Með því að nota hlutfall stöðva í skilgreiningunni er hægt að
losna við þetta vandamál að nokkru. En er þá fjórðungur stöðva árið 1927
sambærilegur við fjórðung stöðva árið 1977, þ. e. hefði t. d. ofviðrið 20.
nóvember 1977, sem rétt hafði það af að komast inn á ofviðraskrána, komist inn
árið 1927? Þessu er að sjálfsögðu ekki hægt að svara. Þó má rökstyöja að líkur á
að dagur sé ofviðrisdagur samkvæmt skilgreiningu minni séu meiri nú en t. d.
árið 1927, þannig að ofviðrisdögum ætti að hafa fjölgað örlítið á þessu tímabili.
Það er fyrst og fremst tvennt sem veldur. í fyrsta lagi voru stormar milli
athugunartíma öllu verr tíundaðir áður fyrr en nú er. Þetta atriði vegur
sennilega þyngst. í öðru lagi fjölgaði stöðvum við strendur meir en öðrum upp
úr 1930, þegar athuganir hófust við marga vita landsins. Fyrir 1925 voru
stöðvar mjög fáar og eykur það að sjálfsögðu óvissu á þcim tíma.
Árið 1912 var núgildandi vindmælistigi tekinn upp á öllum veðurstöðvum
hérlendis, en hafði áður einungis verið notaður á skeytastöðvunum (frá haust-
inu 1906). Að sjálfsögðu voru hér engir vindhraðamælar framan af, en vind-
hraði metinn (eins og raunar er gert víðast hvar enn í dag). Eins og gengur var
(og er) nokkuð misjafnt livað menn telja 9 vindstig, en ekki var unnt að taka
tillit til slíks nema að mjög litlu leyti i athugun minni.
Ofviðraskráin
Unnt reyndist að búa til skrá yfir ofviðrisdaga allt frá 1912. 1 þessari skrá eru
sennilega öll verstu veður sem yfir landið hafa gengið á þessu tímabili. Líkur
eru á að einkum framan af vanti ýmis veður sem kunna að hafa valdið tjóni í
einstökum landshlutum og sömuleiðis vantar allt tímabilið einhver veður sem
hafa af einhverjum ástæðum aðeins náð sér á strik mjög staðbundið.
Alls reyndust ofviðrisdagar á þessu tímabili (1912 frarn á mitt ár 1980) vera
634 eða rúmlega 9 á ári að meðaltali. Aftakaveðrin reyndust 101 eða 1 til 2 á ári
að jafnaði.
Til að auðvelda allar talningar skipti ég árinu í 73 fimm daga tímabil og
byrjaði að telja frá 1. júlí. Hver mánuður er því u. þ. b. 6 slik tímabil. Dreifing
ofviðrisdaganna á árið var sem segir í töflunni að neðan. Mánaðarnöfnin eru
sett í svigum á eftir bilanúmerunum þó að bilin mætist sjaldnast nákvæmlega á
mánaðamótum. Tölurnar í svigunum sýna fjölda aftakaveðra á sömu tíma-
bilum.
1. - 7. bil (júlí) 3 ( 0) 38. -43. bil (jan.) 128 (24)
8. -13. bil (ágúst) 6 ( 1) 44. -49. bil (febr.) 130 (27)
14. — 19. bil (sept.) 23 ( 2) 50. -55. bil (mars) 87 (10)
20. -25. bil (okt.) 48 ( 5) 56. -61. bil (apríl) 35 ( 4)
26. -31. bil (nóv.) 74 (13) 62. -67. bil (maí) 10 ( 2)
32. -37. bil (des.) 87 (13) 68. -73. bil (júní) 3 ( 0)
VEÐRIÐ — 65