Veðrið - 01.09.1978, Page 32

Veðrið - 01.09.1978, Page 32
meðaltalið, þó er nokkuð áberandi að norðlægu áttirnar (N og NA) endast betur síðla vetrar og á vorin en aðrar. Araskipli Ótrúleg áraskipti eru á tíðni ofviöra, sum árin eru nær samfelldur illviðra- bálkur, en önnur ár eru hægviðrasöm. Einnig eru mismunandi gerðir ofviðra mjög áberandi sum ár, en vantar svo árum saman. Mér finnst öllu eðlilegra að skipta milli ára 1. júlí, en um áramót, þannig að litið sé á hvern vetur út af fyrir sig. Á tímabilinu 1. júlí 1912 til 30. júní 1980 voru veturnir 1928 til 1929 og 1976 til 1977 rólegastir með aðeins 1 ofviðrisdag hvor. Flestir voru dagarnir 1974 til 1975, 24. En eins og áður sagði eru svona fjöldatölur ekki alveg sambærilegar fyrir allt tímabilið. Þess vegna má ekki taka mynd 2 alltof hátíðlega, en tilgangur hennar er að sýna að miklar sveiflur eru í ofviðratíðn- inni. og sjást þær greinilega. Myndin er þannig gerð að 4 ár eru tekin saman. Árin eru sýnd á lárétta ásnum og línuritið sýnir samanlagðan fjölda ofviðra árs á lárétta ásnum og næstu þriggja ára áður. Við sjáum t. d. að árin fjögur 1. júlí 1976 til 30. júní 1980 eru samtals þau „rólegustu" a. m. k. frá 1940. Um háloftin og ástandið þar Það sem veldur öllum meiriháttar illviðrum eru átök milli kaldra og hlýrra loftmassa. Einhverjir atburðir í gufuhvolfinu hafa orðið til þess að þrýsta tiltölulega köldu lofti nálægt hlýju lofti. Dálítið er misjafnt hversu hátt þessi llœð 500mb flatarins í ná- grenni íslands á miðnœtti að- faranótt 18. 11. 1967. 68 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.