Veðrið - 01.09.1978, Side 33

Veðrið - 01.09.1978, Side 33
átök eru mest. Vindfar við jörð gefur oftast fremur lélega mynd af vindafari veðrahvolfsins, vegna áhrifa yfirborðsins. Vinda- og þrýstifar við jörð segir þess vegna oft fremur lítið um þá flutninga á hlýju og köldu lofti sem fram fara í veðrahvolfinu og valda illviðrum. Þess vegna er litið upp í háloftin. V;ið sl^ulum nú líta á hvernig meðalvindafar er hátt yfir Islandi og hafsvæð- unum umhverfis þegar hér geisa ofviðri af hinum ýmsu áttum. Við lítum upp í hinn svokallaða 500 mb flöt, en það er það svæði í gufuhvolfinu þar sem þrýstingur er 500 rnb eða u. þ. b. helmingur þess sem er við jörð. Dálítið mislangt er upp í þennan þrýsting, sjaldan eru þó minna en 5 km upp í hann og sárasjaldan meir en 5.8 km hér yfir Islandi. Þegar dregin eru veðurkort fvrir þennan 500 ntb flöt eru dregnar hæðarlínur á kortið. Þessar hæðarlínur eru alveg hliðstæðar þrýstilínum á venjulegum veðurkortum. Því þéttari sem þær eru, því nteiri er vindurinn. Við skulum nú lita á eitt svona kort. Það svnir hæð 500 mb flatarins í nágrenni íslands 18. nóvember 1967. Við sjáum að mikil SV- og V-strengur er yfir Islandi. Til að auðvelda samanburð við aðra daga eru búnar til mælitölur fyrir þetta kort. Þær eru þannig fengnar að hæðirnar í punktunum 1, 2 og 3 eru lagðar saman og dregnar frá samanlögðum hæðum punktanna 7, 8 og 9. Þar með er komin mælitala fyrir hversu sterk vestanáttin Meðallöl mœlitalna fyrir sunnan og vestanátlir í 500 mb fletinum yfir fslandi í hinum ýmsu áttaflokkurn ofviðra. VEÐRIÐ --- 69

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.