Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 4

Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 4
4 7. desember 2009 MÁNUDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 20° 9° 9° 9° 10° 8° 8° 8° 8° 22° 10° 18° 5° 24° 2° 11° 10° 5° Á MORGUN Vaxandi vindur sunnan- lands síðdegis. 12 -1 MIÐVIKUDAGUR Strekkingur vestan- lands, annars hægari. 4 4 4 4 5 6 7 5 6 5 9 6 12 15 5 8 6 4 7 8 4 4 4 5 5 4 5 6 6 7 MILDIR DAGAR Fram undan eru mildir dagar en heldur vindasamir. Í dag verður þó fremur hægur vind- ur víða en síðdegis á morgun hvessir sunnanlands með talsverðri rigningu. Á miðvikudaginn verður væta sunn- an- og vestanlands. Ingibjörg Karlsdóttir Veður- fréttamaður FÓLK Hugmyndir eru uppi um að stofna lýðháskóla hér á landi. Þetta segir Helga Guðrún Guð- jónsdóttir, formaður Ungmenna- félags Íslands, í samtali við Vísi í gær. Stofnun lýðháskóla hefur verið draumur Ungmennafélagsins lengi, en málið er ekki komið á alvarlegt stig. Hún segir hugmyndina hafa verið viðraða við Katrínu Jakobs- dóttur menntamálaráðherra og Árna Pál Árnason félagsmálaráð- herra. Þau hafi tekið vel í hug- myndina. - þeb Ungmennafélag Íslands: Vilja stofna lýð- háskóla LOFTLAGSMÁL Umhverfis- og mannréttindasam- tök víða um heim standa fyrir viðburði laugar- daginn 12. desember til að undirstrika mikilvægi Kaupmannahafnarfundarins, ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um loftslagsmál, sem hefst í dag og stendur til 18. desember. Vonir standa til að við- burðurinn verði sá stærsti í tengslum við þetta málefni frá upphafi. Þúsund samkomur í níutíu löndum hafa þegar verið skipulagðar, þar af tvær á Íslandi. Það eru Reykjavíkurborg og Stykkishólmur sem hafa í hyggju að taka þátt í viðburðinum, sem gengur undir nafninu TckTckTck. Markmiðið er að fólk komi saman á friðsamlegan hátt og sendi skýr skilaboð til Kaupmannahafnar til að þar nái fulltrúar þjóðanna samningi sem feli í sér metnað til að ná árangri, sé lagalega bindandi fyrir aðild- arþjóðir og sanngjarn fyrir okkur og komandi kynslóðir. Flestallir valdamestu þjóðarleiðtogar heims hafa boðað komu sína til Kaupmannahafnar og alls eru þeir um hundrað. - shá Alþjóðlegur viðburður til að hvetja leiðtoga til dáða á loftslagsfundinum: Skilaboð til Kaupmannahafnar Vill annað sæti á Akureyri Sigrún Stefánsdóttir bæjarfulltrúi býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar vegna bæjarstjórn- arkosninganna á Akureyri næsta vor. Sigrún segir að sér séu hjartfólgin málefni þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu. SVEITARSTJÓRNARMÁL MÓTMÆLI Menn hafa ólíkar aðferðir við að hvetja ráðamenn til dáða vegna loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TYRKLAND, AP Rúmlega tvítugur háskólanemi lét lífið af völdum skotsára þegar Kúrdar í Tyrk- landi efndu til mótmælaaðgerða í borginni Diyarbakir í gær. Kúrdarnir voru að mótmæla aðbúnaði Abdullah Öcalan, leið- toga uppreisnarhreyfingar Kúrda, í fangelsi. Öcalan hefur verið í fangelsi á eyju í meira en áratug. Nýverið var reist nýtt öryggis- fangelsi á eyjunni og hann fluttur þangað. Hann hefur sagt aðbúnað- inn verri en í gamla fangelsinu, en tyrknesk stjórnvöld segja ekkert hæft í því. - gb Kúrdar í Tyrklandi: Mótmæla að- búnaði Öcalans ÓEIRÐIR Til átaka kom í Diyarbakir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRETLAND, AP Elísabet II. Eng- landsdrottning hefur varað dag- blöð við því að birta ljósmyndir teknar í leyfisleysi af meðlimum bresku konungsfjölskyldunnar. Lögmaður drottningarinnar sendi ritstjórum breskra dag- blaða bréf þar sem þeim var bannað að birta myndir af með- limum konungsfjölskyldunnar teknar við heimili þeirra. Konungsfjölskyldan segist hafa skilning á áhuga almennings á lífi hennar. Sá áhugi megi hins vegar ekki teygja sig yfir allt einkalíf fjölskyldunnar og vina hennar. - hhs Elísabet varar ritstjóra við: Ljósmyndarar hafi sig hæga SVEITARSTJÓRNARMÁL Rúmlega sjö- tíu prósent allra skulda Reykja- víkurborgar eru tilkomin vegna Orkuveitu Reykjavíkur. Skuldir Orkuveitunnar verða um 250 millj- arðar króna á næsta ári, en heildar- skuldir borgarinnar verða tæpir 326 milljarðar samkvæmt fjárhags- áætlun borgarinnar. Skuldir borgar- sjóðs eru aðeins þrettán prósent af skuldunum; afganginn skulda fyrirtæki borgarinnar. Eigið fé Orkuveitunnar er fjórtán prósent. Að því er fram kom í ræðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um fjárhagsáætlunina hefur fjár- málaskrifstofu borgarinnar verið falið að framkvæma áhættumat vegna ábyrgðar á lánum fyrirtækja borgarinnar. „Þessi ákvörðun var ekki síst tekin vegna þeirrar skuld- setningar sem Orkuveitan er komin í vegna gengis íslensku krónunnar,“ sagði Hanna Birna. Sjóðsstreymi fyrirtækisins væri viðunandi þrátt fyrir núverandi aðstæður, og fyrir- tækið stæði fyrir mannaflsfrekum framkvæmdum sem skiptu miklu fyrir atvinnustigið. Þá myndi Orku- veitan skila um einum og hálfum milljarði króna til borgarinnar á næsta ári. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir að kallað hafi verið eftir áhættumati vikum og mánuðum saman, án þess að mikil viðbrögð fengjust frá meirihlutanum. „Við höfum haft verulegar áhyggjur af þessu og kall- að eftir miklu nákvæmara áhættu- mati á vettvangi borgarstjórnar á fjármálum Orkuveitunnar. Á skuldaþoli hennar og vaxtaþoli og þar með getu til að standa í stór- um fjárfestingaverkefnum,“ segir hann. Hann segir borgarstjórnar- meirihlutann virðast hafa verið í algjörri afneitun hvað það varðar að skuldir OR hafi margfaldast á þremur árum. Þá hafi verið erfitt að fá umræðuna um málið fram. „Þvert á móti hefur borgar- stjóri kallað eftir þreföldum arð- greiðslum. Það fannst okkur út í hött og sýna skort á yfirsýn yfir þá stöðu sem raunverulega er uppi,“ segir Dagur. thorunn@frettabladid.is Meta áhættu vegna skuldsetningar OR Skuldir Reykjavíkurborgar verða tæpir 326 milljarðar á næsta ári. Þar af nema skuldir Orkuveitu Reykjavíkur um 250 milljörðum. Borgarstjóri segir áhættu- mat verða framkvæmt. Skortur á yfirsýn, segir oddviti Samfylkingar. ORKUVEITAN Skuldir fyrirtækisins nema rúmlega sjötíu prósentum heildarskulda Reykjavíkurborgar. Borgarsjóður skuldar aðeins um þrettán prósent en afganginn skulda fyrirtæki borgarinnar. SVEITARSTJÓRNIR Sjálfstæðisflokk- ur, Samfylking og Vinstri græn hafa myndað nýjan meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur. „Flokkarnir eru sammála um að starfa saman til loka kjörtíma- bils með Ólaf Örn Ólafsson sem bæjarstjóra. Hvað varðar mál- efni eru flokkarnir meðal annars ásáttir um að vinna samkvæmt auðlindastefnu Grindavíkurbæjar í orkumálum, undir forustu forseta bæjarstjórnar. Flokkarnir munu standa vörð um þá stefnu að styðja við íbúa sína á krepputímum,“ segir í tilkynningu. Hörður Guðbrandsson verður forseti bæjarstjórnar og Guðmund- ur Pálsson verður formaður bæjar- ráðs. - gar Mynda meirihluta í Grindavík: Þrír flokkar í nýju samstarfi GENGIÐ 04.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 235,0287 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 121,54 122,12 202,07 203,05 182,97 183,99 24,584 24,728 21,565 21,693 17,649 17,753 1,3755 1,3835 195,32 196,48 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR LÖGREGLUMÁL Þrjár líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðfara- nótt sunnudags. Tilkynnt var um líkamsárás við skemmtistaðinn Spot í Kópa- vogi þar sem maður hafði ráðist á konu sína. Einnig var tilkynnt um átök á Skólavörðustíg. Þar hafði maður verið sleginn í rot og er talið að fjórir menn hafi ráðist á hann. Þriðja líkamsárásin varð í Bankastræti þar sem maður var sleginn í höfuðið með flösku. Árásarmaðurinn komst undan. - þeb Erill í höfuðborginni: Þrjár alvarlegar líkamsárásir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.