Fréttablaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 38
26 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Kristín Björnsdóttir varði nýlega
doktors ritgerð sína í fötlunarfræðum
við Félags- og mannvísindadeild Fé-
lagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Rit-
gerð hennar nefnist Í andstöðu við al-
menningsálitið: Samfélagsþátttaka
ungs fólks með þroskahömlun. „Í rann-
sókninni tóku þátt 29 einstaklingar á
aldrinum tuttugu til þrjátíu ára. Þar
af voru sex einstaklingar virkir þátt-
takendur í öllu rannsóknarferlinu sem
samrannsakendur mínir. Þetta er til-
tölulega ný nálgun í rannsóknum en til-
gangurinn er að fólk með þroskahöml-
un fái aukið vald um hvað er fjallað um
og með hvaða hætti.“
Kristín segir að árið 1979 hafi verið
samþykkt lög um aðstoð við þroska-
hefta. „Í lögunum var staðfest að
þroskaheftir ættu rétt á eðlilegu lífi,
lífi sem væri eins og líf ófatlaðra. Þeir
fengu því formlega aðgang að sam-
félaginu og þátttöku í því. Nú, þrjá-
tíu árum seinna, kemur í ljós í þess-
ari rannsókn að það er gjá á milli raun-
veruleika og réttinda,“ bendir hún á og
bætir við að þeir sem þátt tóku í rann-
sókninni hafi allir eytt miklum tíma
í sérúrræði. „Án þess að við séum að
setja út á þessi úrræði, þá finnst þeim
margar hindranir standa í vegi fyrir
sér og þeir eiga erfitt með að fá aðgang
að almennu samfélagi. Þá voru tveir
hamlandi þættir sérstaklega áberandi.
Annars vegar bágur fjárhagur, sem
kom í veg fyrir að þau gætu til dæmis
farið í bíó, í leikhús eða út að borða og
ef þeim buðust störf voru þau yfirleitt
illa launuð. Hitt, sem þeim fannst ekki
síður mikilvægt, var að finna viðhorf
samfélagsins í sinn garð en það fannst
þeim neikvætt.“
Kristín segir hópinn hafa greint
alla fjölmiðla frá 2003-2005 og skim-
að eftir umfjöllun um þroskahömlun.
„Það var áberandi lítið fjallað um mál-
efnið. Ef svo vildi til var rætt við sér-
fræðinga um þroskahömlun en sjaldan
sjálft fólkið með þroskahömlun. Væri
það gert á annað borð var oft talað við
það eins og börn. Almennt upplifði það
sig því óvelkomið í samfélaginu.“
Kristín segir það unga fólk sem tók
þátt í rannsókninni hafa haft ákveðn-
ar skoðanir um hvað þyrfti að breyt-
ast svo það gæti tekið meiri þátt í
samfélaginu. „Það vildi að viðurkennt
væri að fólk með þroskahömlun væri
ekki allt eins, heldur mjög fjölbreytt-
ur hópur. Það vildi fá að taka ákvarð-
anir um eigið hversdagslíf án þess að
þurfa sífellt að berjast fyrir því. Þá
vildi það hafa aukin áhrif á stefnumót-
un í málefnum fatlaðra, sem og aukinn
aðgang að rannsóknar samfélaginu,“
segir Kristín og vonast til að leggja
lóð á vogar skálarnar með þessari rann-
sókn.
unnur@frettabladid.is
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR: RANNSAKAÐI ÞÁTTTÖKU ÞROSKAHAMLAÐRA Í SAMFÉLAGINU
Finnst þau ekki vera velkomin
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR Rannsakaði samfélagsþátttöku fólks með þroskahömlun í doktorsritgerð sinni í fötlunarfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKIATBURÐIR
1431 Hinrik 6. Englandskon-
ungur krýndur konungur
Frakklands í París.
1881 Minnisvarði um Jón Sig-
urðsson forseta afhjúp-
aður á gröf hans í Hóla-
vallakirkjugarði í Reykjavík
að viðstöddu miklu fjöl-
menni.
1936 Í Bjarneyjum á Breiðafirði
rignir skyndilega síld og
er talið að skýstrókur hafi
náð að sjúga upp síldina
er hann átti leið yfir sjó.
1975 Indónesía ræðst á Austur-
Tímor.
1980 Golfklúbburinn Kjölur er
stofnaður í Mosfellsbæ.
2005 Evrópusambandið fer að
nota lén undir þjóðarlé-
ninu .eu sem kom í stað
.eu.int.
NOAM CHOMSKY FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1928.
„Það að veita leyfi fyrir
drápum á fjölda saklausra
borgara er hreinræktað
hryðjuverk, en ekki stríð
gegn hryðjuverkum.“
Noam Chomsky er
bandarískur málvísinda-
maður, rithöfundur og virkur
þátttakandi í stjórnmálum.
AFMÆLI
ÓLAFÍA
HRÖNN
JÓNSDÓTT-
IR leikkona
er 47 ára.
JÓRUNN
VIÐAR
tónskáld er
91 árs.
DAMIEN
RICE
tónlistar-
maður er
36 ára.
TOM WAITS
tónlistar-
maður er
sextugur.
Miðilsfundi var í fyrst sinn útvarpað í Ríkisútvarp-
inu á þessum degi árið 1933. Þar kom fram Ingi-
björg Lára Ágústsdóttir (1899–1971), betur þekkt
sem Lára miðill, og mælti fyrir munn margra fram-
liðinna.
Lára er einn þekktasti miðill sem Ísland hefur
alið. Hún hélt miðilsfundi á heimili sínu sem
vöktu umtal og þóttust gestir hennar meðal ann-
ars verða fyrir yfirskilvitlegri reynslu af ýmsu tagi.
Lára varð þó síðar uppvís að svikum á miðils-
fundum, nánar tiltekið árið 1940, og dæmd í eins
árs fangelsi. Hún er eina manneskjan sem dæmd
hefur verið í Hæstarétti fyrir svik á miðilsfundum.
Lára lét eftir sig handrit af sjálfsævisögu sem
fært var í letur árið 1945. Það var hins vegar aldrei
gefið út en blaðamaðurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson
studdist við það þegar hann skrifaði bókina Játn-
ingar Láru miðils, sem kom út árið 2005.
Heimild: www.wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 7. DESEMBER 1933
Miðilsfundi útvarpað í Ríkisútvarpinu
Auðnutittlingur er lítil grábrún
finka með stutt stél og rauðan
blett á enni sem dvelur hér á
landi allt árið um kring. Kjör-
lendi er helst birkiskógar, kjarr,
ræktað skóglendi og garðar.
Hann gerir sér hreiður í trjám
og runnum og verpir venju-
lega oftar en einu sinni á
sumri. Hann er kvikur og mjög
fimur og lifir aðallega á skor-
dýrum og birkifræjum. Auð-
velt er að laða auðnutittlinga
í garða með fóðrun. Á síðustu
árum hafa þeim aðallega verið
gefin sólblómafræ, sem fást í
2,5 kg pokum í fáeinum versl-
unum. Þeir taka einnig ýmiss
konar finkufóður og gárafræ
en eru ekki hrifnir af korni því
sem ætlað er snjótittlingum.
Auðnutittlingar geta orðið afar
spakir þar sem þeim er gefið
og því þarf að gæta vel að
köttum.
www.fuglavernd.is
FUGL VIKUNNAR: AUÐNUTITTLINGUR
Lítill, kvikur og fimur
AUÐNUTITTLINGUR Auðvelt er að laða auðnutittlinga í garða með
fóðrun en þá þarf að gæta vel að köttum. MYND/JAKOB SIGURÐSSON
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Attli Örn Jensen
Strikinu 10, Garðabæ,
lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði mánudaginn
30. nóvember. sl. Jarðsett verður frá Garðakirkju mið-
vikudaginn 9. desember kl. 15.00.
Árni Valur Atlason Eydís Lúðvíksdóttir
Markús Þór Atlason Katrín Yngvadóttir
Jens Pétur Atlason Kristín Sigurbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær systir mín,
Guðbjörg Auðunsdóttir
frá Minni-Völlum,
verður jarðsungin frá Skarðskirkju þriðjudaginn
8. desember kl. 13.00.
Ásgeir Auðunsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma og systir,
Sólveig Traustadóttir
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
mánudaginn 30. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag-
inn 9. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Magnús Þór Jónsson Helga Lind Hjartardóttir
Drífa Þöll Arnardóttir Gunnlaugur Erlendsson
Örn Arnarson Harpa Sif Þráinsdóttir
Lucinda Hulda Fonseca
Trausti Magnússon Hulda Jónsdóttir
systkini og barnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.