Fréttablaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 42
30 7. desember 2009 MÁNUDAGUR menning@frettabladid.is Tónlist ★★★ Draumey Ellen Kristjánsdóttir Sena Björt og falleg Draumey hefur að geyma tíu ný lög sem flest eru samin af Ellen og Pétri Ben sem einnig sér um stjórn upptöku. Hljómsveitin sem spilar á plötunni hefur m.a. innanborðs fyrrnefndan Pétur Ben, bræðurna Ómar og Óskar Guðjónssyni, eiginmanninn Eyþór og dæturnar Sigríði, Elísabetu og Elínu, en sveitin kom fyrst fram sem upphitunaratriði fyrir Eric Clapton í Egilshöll. Tónlistin á Draumey er kántrí, soul og rokkskotið popp. Hún lætur frekar lítið yfir sér í fyrstu, en við frekari hlustun öðlast lögin líf. Þetta er björt og falleg tónlist með hlýlegum textum. Ellen er ein af okkar bestu söngkonum. Hún hefur sérstaklega fallega rödd sem nýtur sín vel hér. Það er töluvert lagt í útsetningarnar og mörg hljóð- færi notuð til að auka fjölbreytnina, t.d. fiðla, selló, bassaklarinett, sópran- og tenórsaxófónar, selesta, moog, ukulele og slide-gítar. Hljóð- færaleikurinn er líka fyrsta flokks. Það er ekkert vont lag á Draumey, en samt eru nokkur sem standa upp úr. Ég nefni fyrsta lag plötunnar, kántrílagið Liljurós, hið sálarríka Hafðu á honum gætur, Sólskinsdag og loka- lagið Ef engill ég væri með vængi. Á heildina litið er Draumey fín plata. Hún brýtur ekkert blað, en hún stendur vel fyrir sínu og ætti ekki að valda aðdáendum Ellenar vonbrigðum. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Fín plata frá einni af okkar bestu söng- konum. Mikið úrval af kuldafatnaði á börnin 5.990kr.Verð frá Kuldabuxur 13.990kr.Verð frá Kuldagallar 8.990kr.Verð frá Stærðir 80-120 Stærðir 128-174 Úlpur 10.990kr.Verð frá HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Minnum á teiknisamkeppni Skólamjólkurdagsins fyrir 4. bekkinga Hægt er að skila inn myndum fram að jólafríi til Mjólkursamsölunnar, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar á www.ms.is Ath. á morgun kl. 20 Næsta erindi í fyrirlestrarröð Mannfræði- félags Íslands, BREYTINGAR – ÞÁTT- TAKA – UPPBYGGING, verður haldið á þriðjudagskvöld á Café Loka, Loka- stíg 28. Dr. Inga Dóra Björnsdóttir flytur erindið „Kvenleikanum kastað fyrir róða“. Fjallað verður um hvernig erfið- leikar og áföll í lífi Ásu Guðmundsdóttur Wright vísuðu henni af vegi hefðar frúar- innar. Inga Dóra er höfundur „Kona þriggja eyja – Ævisaga Ásu Wright“ sem nýverið kom út hjá Forlaginu. Einn af verðlaunahöfum Íslensku tónlistarverð- launanna, Hugi Guðmundsson tónskáld, sem í fyrra hlaut mikla viðurkenningu fyrir verðlauna- plötuna Apocrypha, með samnefndu tónverki sínu, fagnar nú tilboði um samninga á dreifingu á verkinu erlendis. Apocrypha kom út fyrir síðustu jól. Tónverkið og platan vöktu mikla athygli og hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga; tónverkið var valið tónverk ársins á Íslensku tón- listarverðlaununum 2007 og platan var tilnefnd sem plata ársins í fyrra. Það ár hlaut platan hlaut einnig Kraumsverðlaunin ásamt því að vera á list- um yfir plötur ársins hjá Morgunblaðinu og mbl. is. Þar að auki var Hugi tilnefndur til Menningar- verðlauna DV árið 2007, í kjölfar frumflutningsins á verkinu. það er bandaríska fyrirtækið Parma sem hyggst gefa verkið út á bandaríkjamarkaði. Tilboðið felur í sér mikla kynningu erlendis fyrir tónlistarfólkið á plötunni og færi hún m.a. í alheimsdreifingu hjá Naxos, heimsins stærsta dreifingaraðila klassískrar tónlistar. Fyrir utan til- boð ameríska útgáfufyrirtækisins hafa tvö önnur fyrirtæki sýnt plötunni mikinn áhuga en þau eru finnska útgáfan Ondine og norska fyrirtækið L2. Hið síðarnefnda hefði áhuga á að gefa plötuna út á Super Audio geisladisk (surround), en útgáfan er einmitt tilnefnd til tveggja Grammy verðlauna fyrir bestu surround plöturnar í ár. Báðar útgáf- urnar hyggjast leggja fyrir tilboð um mögulega endurútgáfu fyrir jólin. Flytjendur á diskinum eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzo-sópran og barokkhóp- urinn Nordic Affect undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Upptökur annaðist Óskar Páll Sveinsson en lokahljóðblönd- un og masteringu gerði Valgeir Sigurðsson. Hugi Guðmundsson klippti og stjórnaði upptökum. Apocrypha á erlendan markað TÓNLIST Hugi Guð- mundsson tónskáld Síðasta úthlutun úr Þjóð- hátíðarsjóði er lokið. Hann var settur upp fyrir hagnað af myntsláttu í tilefni af Þjóðhátíðinni og hefur um árabil veitt fjármagni til margs konar verkefna sem tengjast menningararfi Íslands að fornu og nýju. Í ár var úthlutað 65 styrkjum og útdeilt 33,9 milljónum til hluta af stórum hópi umsækjenda. Alls bár- ust sjóðnum 259 umsóknir og var sótt um 350 milljónir. Fjárþörfin er því tíu sinnum meiri en styrktar- féð sem hægt var að veita. Tilgangur sjóðsins var að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verð- mæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það er miðað að styrkir úr sjóðnum verði viðbótar framlög til þeirra verkefna sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra til þeirra, eins og segir í tilkynn- ingu sjóðsins sem er í vörslu Seðla- banka Íslands. Hæsta styrkinn hlaut að þessu sinni Málvísindastofnun Háskóla Íslands, 1,5 milljónir, vegna rann- sóknar sem Höskuldur Þráins- son veitir forstöðu. Safna á málheimildum hjá fólki sem er eftir lifandi og tók þátt í hinni miklu rannsókn á mállýskum á Íslandi sem Björn Guðfinnsson stóð fyrir á fimmta áratug síð- ustu aldar og rannsaka einnig íslenskt nútímamál á síðasta ára- tug aldarinnar. Í þessu dæmi sést vel hvernig sjóður inn vinnur: hér er styrkt stór rannsókn sem Mál- vísindanefnd Háskóla Íslands getur illa unnið á sérstaks fjár- styrks, en háskólinn á þó að vera leiðandi sterk rannsóknarstöð á íslenskri málþróun, sú mikilvæg- asta í heiminum, sú með lengsta rannsóknarreynslu og þekkingu á þessu sviði. Sex aðilar fá eina milljón í styrk: Sjó- minjasafnið í Reykja- vík – Víkin, Ólafs- dalsfélagið sem vill reisa safn í Ólafsdal og Félag áhugamanna um Bátasafn Breiða- fjarðar: öll þessi söfn eru nýstofn- uð og fjárvana og stíga með einum eða öðrum hætti inn á starfssvið safna sem fyrir eru. Stofnun Árna Magnús- sonar fær tvo styrki og má af því ráða að þessari fornu stofnun íslenskra fræða sé illmögulegt að stunda þær rannsóknir sem henni er ætlað að gera án fjárstyrks. Ljósmyndasafn Reykjavíkur fær raunar sýningar- styrk, að hluta til að skrá safn Pét- urs Thomsen ljósmyndara og jafn- framt til að setja upp sýningu á verkum Péturs Thomsen ljósmynd- ara, hinum yngri sem er barna- barn Péturs Thomsen og alnafni. Safn hins eldri mun óskráð. Fleiri stofnanir fá styrki til að halda úti verkefnum: þannig fær Sarpur, sérsmíðað skráningar- kerfi sem íslensk söfn nota nokkur hundruð þúsund til að þróa sig enn frekar, en það er rekið af einka- hlutafélagi en ekki söfn- unum sjálfum. Frekar verður fjallað um styrki Þjóðhátíðarsjóðs og hvað úthlutun í ár segir um ástand íslenskra safna og menningarstofna í sérblaðinu menning sem fylgir Frétta- blaðinu á laugardag. pbb@frettabladid.is ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐI LOKAÐ MENNING Stofnun Árna Magnússonar fær tvær milljónir í Þjóðhátíðar- sjóði til rann- sókna í ár. > Ekki missa af uppboðum á fjölda listaverka eftir yngri og eldri listamenn í Gallerí Fold í dag og á morgun. Þau hefjast báða dagana kl. 18.15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.