Fréttablaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 44
32 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Það er búið að taka okkur tvö ár að
klára þetta lag,“ segir Lísa Einars-
dóttir söngkona. Hún sendir nú frá
sér sitt fyrsta jólalag sem heitir Hvað
eru jólin án þín? Lag og texti er eftir
bróður hennar Leif Einarsson, upptöku-
stjóra og grafískan hönnuð. „Þetta er
svona róleg poppballaða og ég er mjög
stolt af þessu lagi. Við tókum það upp í
London og í Hljóðrita í Reykjavík, en af
því að hann er búsettur í London var erf-
itt fyrir okkur að klára þetta. Þegar við
vorum að klára þetta núna var ég bara
með hann á Skype á meðan,“ segir hún
og brosir, en lagið er væntanlegt inn á
tonlist.is. „Þetta er fyrsta verkefnið sem
ég geri alveg upp á eigin spýtur, án hjálp-
ar Einars Bárðarsonar umboðsmanns,“
bætir hún við.
Lísa hefur í mörgu að snúast um þess-
ar mundir því hún er með útvarpsþátt á
Kananum á kvöldin alla virka daga, auk
þess sem hún syngur á jólahlaðborðum
í Officeraklúbbnum og með Ízlensku
sveitinni. „Við erum að taka við bókun-
um núna og erum meðal annars að fara
að spila á þorrablótum út um allar trissur
í febrúar,“ segir Lísa, en nánari upplýs-
ingar og tónlist Lísu má heyra inni
á lisaeinars.com. - ag
Georg Alexander Valgeirsson er
ungur söngvari sem nú haslar sér
völl. Fyrst kom lagið „Íslending-
ur,“ sem er upprunalega gömul
rokkballaða með Bad Company.
Íslenski textinn eftir Magnús
Þór Sigmundsson keyrir á þjóðar-
stolti og baráttuanda – „Íslend-
ingur þar til ég dey“ – og Georg
segist tengja ágætlega við þann
boðskap: „Maður verður að halda
haus og vera stoltur af þjóðern-
inu. Það þýðir ekkert annað.“
Seinna lagið, líka eftir Magn-
ús Þór Sigmundsson, texti og lag,
heitir Desember og er jólalegt.
„Mjög fallegt lag,“ segir Georg.
„Það hefur verið að fá góða spil-
un á Bylgjunni, Létt-bylgjunni og
á Jóla-stjörnunni á netinu.“
Georg segist hafa byrjað að
syngja af einhverju viti í fyrra og
svo tók hann þátt í Idolinu síðast
á Stöð 2. „Það gekk ágætlega. Ég
komst í tíu manna úrslit, man ekki
hvort ég var númer sjö eða átta í
röðinni.“
Söngvarinn er ánægður með
viðtökurnar og finnst þetta hafa
gengið vel. Hann stefnir þó hærra.
„Ég er í samstarfi við marga
gæja. Auk Magnúsar Þórs hef ég
verið í samstarfi við Jóhann G.
Jóhannsson og Bjarna Ara upp á
að fá lög og svoleiðis. Ég stefni á
plötu næsta sumar og ætla bara
að taka þetta alla leið fyrst maður
er byrjaður á þessu. Ég yrði alla
vega stoltur ef ég kláraði plötuna
og lögin fengju einhverja spil-
un.“
Georg er rafeindavirki og er
með eigin rekstur. „Það heitir
Loftnetsþjónusta Reykjavíkur.
Ég er mikið að setja upp loftnet og
diska og allan þann pakka. Það er
ekkert gaman að vinna við þetta
núna í þessum skítakulda.“ - drg
Syngjandi rafvirki
stefnir alla leið
„Þetta var hrikalega gaman,“
segir Hrund Ósk Árnadóttir söng-
kona sem er nýkomin frá Græn-
landi. Hrund er nú búsett í Berlín
þar sem hún nemur söng, en var
boðið af Josef Lund, fyrrverandi
skólafélaga sínum úr Söngskól-
anum í Reykjavík, að syngja með
honum á tónleikum í heimalandi
hans, Grænlandi. „Josef ákvað að
halda 8. stigstónleika þar og fékk
mig til að koma með. Úr því varð
svolítið mikið ferðalag því ákveðið
var að halda líka aðventutónleika í
Mennningarhúsinu í Nuuq sem við
sungum á,“ útskýrir Hrund.
Meðan á vikudvöl hennar stóð á
Grænlandi var henni meðal ann-
ars boðið í barnaafmæli þar sem
hún smakkaði alls kyns framandi
mat. „Þetta var rosa veisla og
þar var meðal annars boðið upp á
hreindýrakjöt og rengi af náhval.
Þá er fituröndin undir skinninu
skorin í teninga og sojasósa sett á
hana. Þetta var ekki bragðmikið
en var eins og brjósk undir tönn og
var ógeðslega vont,“ segir Hrund
sem smakkaði einnig hreindýra-
spik. „Þetta var eins konar þurr
fita sem þeir setja út í kaffi. Þetta
var svolítið eins og að setja rjóma
út í kaffið en var bara seig feiti og
bragðið eins og af puru steik, sem
er ekki gott. Það var líka boðið
upp á harðfisk og fimm sort-
ir af kökum svo þetta var mikil
veisla, en ég hugsaði bara að ég
fengi eflaust aldrei tækifæri til
að smakka þetta aftur,“ bætir hún
við og brosir.
Þetta er hvorki í fyrsta né síðasta
sinn sem Hrund syngur á tónleik-
um á Grænlandi því hún hefur áður
sungið þar með blúsbandi Pálma
Gunnarssonar og heldur aftur til
Grænlands á næstu dögum þar sem
hún mun syngja á þrennum tónleik-
um ásamt Josef í suðurhluta lands-
ins. „Ég er orðin ægilega heimakær
á Grænlandi,“ segir hún og hlær.
- ag
Smakkaði náhval og spik
Syngur jólalag eftir bróður sinn
STEFNIR Á PLÖTU Georg Alexander
syngur og setur upp loftnet í kuldanum.
MYND/LÁRUS SIGURÐARSON
NÝTT JÓLALAG Lísa Einars-
dóttir söngkona syngur
jólalagið Hvað eru jólin án
þín? eftir bróður sinn Leif
Einarsson.
FRAMANDI Hrund var boðið í barna-
afmæli þegar hún var stödd á Græn-
landi þar sem hún smakkaði meðal
annars náhval og hreindýraspik.
M
YN
D
/G
A
SSI
Hjartaknúsarinn Alexander Skarsgård neitar alfarið öllum
sögusögnum um meint samband hans og leikkonunnar
Kate Bosworth. „Ég er ekki að hitta neinn, þetta eru bara
sögusagnir. Einu konurnar í lífi mínu eru systir mín og
mamma,“ sagði leikarinn hlæjandi.
Skarsgård segir að mótleikarar hans í sjónvarpsþáttun-
um True Blood séu eins og önnur fjölskylda í hans augum.
„Ég hlakka mikið til að fara aftur til Bandaríkjanna
og hitta LA-fjölskyldu mína. Mér þykir mjög vænt
um Steven og Önnu og þau eru dásamlegt par.“
Ekki á föstu
EKKI Á FÖSTU Alexander Skarsgård
segist ekki vera í föstu sambandi.
> ÁNÆGÐ MEÐ SMÆÐINA
Shakira segist ánægð með að vera lág-
vaxin og fíngerð. Í viðtali við breska
dagblaðið Daily Mirror segist söng-
konan vera stolt af stuttum fótleggj-
um sínum og skammast sín ekki
fyrir þá í myndbandi við lag sitt Did It
Again. „Þegar maður er lágvaxinn vor-
kennir fólk manni svo maður kemst
upp með miklu meira. Ef ég væri hávax-
in væri ég í miklum vandræðum,“ út-
skýrir söngkonan og segist hafa æft stíft í
heilan mánuð fyrir upptökurnar.
Sonia Rykiel breytti búð sinni á
Saint-Germain í París í skemmti-
stað með diskókúlum þegar hún
sýndi vor- og sumarlínu sína
fyrir árið 2010. Fyrirsæturnar
léku á als oddi og sendu áhorfendum
fingurkossa á meðan þær sýndu
litríkan og áberandi fatnað Rykiel.
- ag
LITRÍK
STEMNING
„VINTAGE“
Það var svolítil
„vintage“ stemn-
ing yfir nýjustu
línu Soniu
Rykiel.
BLÓMLEG Áherslan
var gjarnan lögð
axlirnar í kjólum
Rykiel, eins og þessum
sem var skreyttur með
marglitum blómum.
LITRÍKT
Sonia Rykiel
var óhrædd
þegar kom
að litavalinu.
FJÓLUBLÁTT
Fyrirsæturnar á
sýningunni léku
á als oddi.
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS