Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 8

Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 8
8 7. desember 2009 MÁNUDAGUR Lífeyrisþjónusta Arion banka er opin alla virka daga frá kl. 9 til 16. Hafðu samband sími 444 7000 • arionbanki.is ÍS L E N S K A S IA .I S A R I 48 33 3 444 7000 Hvað viltu vita um lífeyrismál? Álfelgur, vindskeiðar, mottur, palllok, toppbogar, krómlistar og margt fleira. Úrval aukahluta fyrir Volkswagen Polo, Golf, Passat, Touareg og Tiguan, Skoda Octavia og Fabia, Mitsubishi Pajero og L200. Allt að 50% afsláttur. 100% vaxtalaus þjónustulán í boði. Tilboðin gilda til 15. desember Nú er rétti tíminn til að gera bílinn flottari – Frábær tilboð á aukahlutum í desember DÓMSTÓLAR Ákæruvaldið hefur áfrýjað til Hæstaréttar sýknudómi yfir stúlku sem var ákærð fyrir að hafa með framburði fyrir lög- reglu og fyrir dómi leitast við að koma því til leiðar að fjórir menn yrðu sakaðir um kynferðisbrot gegn henni. Stúlkan var sýknuð af ákæru þessa efnis í Héraðsdómi Reykjavíkur í haust. Stúlkan kærði mennina, sem hún hitti í fyrsta skipti fyrir utan skemmtistað, fyrir að hafa nauðgað sér í húsi ofan við Sundahöfn í Reykjavík. Þeir voru handteknir og síðan úrskurðaðir í gæsluvarð- hald. Þeim var sleppt að tveim dögum liðnum, þar sem lögregla taldi ekki grundvöll til frekari rannsóknar. Þeir kærðu stúlkuna og kröfðust samtals tveggja millj- óna króna í skaðabætur. Einn mannanna bar að stúlkan hefði haft fíkniefni meðferðis sem hún neytti í umræddu húsi. Hún bar hins vegar að einn mann- anna hefði „mokað“ í sig amfet- amíni. Stúlkan hafði kynmök við þrjá mannanna í herbergi inni í íbúðinni. Á upptöku í farsíma eins mannanna mátti ráða að stúlkan beindi því til mannanna að hafa við sig kynferðismök. Staðfest var að styrkur amfetamíns í blóði stúlkunnar hefði verið margfalt yfir eitrunarmörkum. - jss Ákæruvaldið áfrýjar til Hæstaréttar Íslands: Dómi amfetamínstúlku áfrýjað HÆSTIRÉTTUR Ákæruvaldið hefur áfrýjað sýknudóminum til Hæstaréttar. 1. Hvaða Framari beitti hinu almræmda „Júggabragði“ á Jón Karl Björnsson, leikmann Gróttu, í leik liðanna á fimmtu- daginn? 2. Hvað heitir tíkin sem leikur í söngleiknum Oliver! og hverrar tegundar er hún? 3. Hversu margar voru ný- skráningar bíla frá janúar á þessu ári til nóvemberloka og hversu mikil fækkun er það á milli ára? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 42 RÚSSLAND, AP Fimm manns voru í gær kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Perm í Rússlandi vegna eldsvoða í næturklúbbi, sem varð meira en hundrað manns að bana. Meðal þeirra sem yfirheyrðir voru eru eigandi næturklúbbsins, framkvæmdastjórinn, listrænn stjórnandi staðarins og maður sem útvegaði flugeldana sem kveikt var í inni á staðnum. Mennirnir eru sakaðir um að hafa sýnt refsi- verða vanrækslu í meðferð flug- elda og gerst brotlegir við reglur um eldvarnir. Tala látinna var í gær komin upp í 112, en um 130 manns að auki voru á sjúkrahúsi, margir lífshættulega meiddir. Sumir hinna látnu voru jarð- sungnir í gær. Aðstandendur voru harmi slegnir og íbúar borgarinnar margir hverjir í upp- námi vegna eldsvoðans. „Þetta er ekkert annað en glæp- samleg vanræksla,“ sagði Marina Dryonina, einn íbúanna. „Hræði- legur harmleikur fyrir borgina okkar.“ Víða í Rússlandi er eldvarnar- eftirliti ábótavant. Allmargir elds- voðar hafa á síðustu árum orðið á skemmtistöðum, íbúðarhúsum, dvalarheimilum og sjúkrahúsum. Allt að átján þúsund manns far- ast í Rússlandi af völdum elds- voða ár hvert, en það er nokkrum sinnum hærri tíðni en almennt á Vestur löndum. - gb Eldsvoðinn í Perm kostaði á annað hundrað lífið: Yfirmenn nætur- klúbbs yfirheyrðir ÚTFÖR Í PERM Aðstandendur eins hinna látnu við gröfina. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN, AP Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, segir að árum saman hafi leyniþjónustumönnum Bandaríkj- anna engar áreiðanlegar fregnir borist af hryðjuverkapaurnum Osama bin Laden. Þetta sagði Gates í bandarísk- um sjónvarpsþætti í gær. Þá sagð- ist hann ekki geta staðfest fregnir fjölmiðla af því að bin Laden hefði sést nýlega í Afganistan. Hillary Clinton utanríkisráð- herra kom einnig fram í sama sjónvarpsþætti og sagðist sann- færð um að ná mætti góðum árangri í baráttu gegn hryðju- verkamönnum. - gb Bandaríska leyniþjónustan: Ekkert spurst til bin Laden VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.