Vikan - 09.03.1961, Page 16
ÍÓNGAFÓLK.
Allt til að auka ánæj-
una. Og oft er hægt
að hafa gaman af
kóngafólki á einn
eða annan liátt. Hér
eru þá komnar tvær
Margarethar prins-
essur og báðar
sænskar. Einnig eru
þær báðar laglegar
og það er ávallt gleði-
efni fegurðardýric-
andi mannkyni. Það
sem skilur á milli
þessara tveggja
prinsessa eru 50 ár
því önnur myndin
er tekin 1910 en hin
1960. Takið eftir því
að uppstillinfein er
alveg sú sama á
háðum.
FÓLK Á FÖRNUM VEGI
MANNLÍF r>
Þessi drengur getur ekki gert sér mildar vonir um framtíðina.
Hann er úr hópi einnar milljónar flóttamanna, sem lnfst við í
nálægum Austurlöndum. Enda þótt liðin séu rúmlega 12 ár frá
lok Palestínustríðsins, eru flóttamenn þetta fjölmennir. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa unnið mikið starf til þess að ieysa vanda
þessa fólks. Matargjafir, læknishjálp og fatagjafir auk annarrar
aðstoðar gerir þeim lífið bærilegra og er þó iangt frá bvi að þau
lifi mannsæmandi lífi. Mikið vandamál er fáfræði fólksins og
þyrfti gifurlegt átak til þess að lyfta því á hærra menningarstig.
— OG VAR HANN AFREND'-
UR AÐ AFLI. —
Þessir náungar hérna á myndinni
eru fegurðarkarlar Þýzkalands.
Þeir eru all-vöðvastæltir og ítur-
vaxnir og spengilegir, en samt
sem áður finnst sumum þetta vera
fullmikið af því góða. Og eitt er
víst, að þetta kostar enga
smáþjálfun. Við tókum myndina
með okkur í smáferðalag og spurð-
um nokkrar stúlkur, hvort þeim
fyndist þeir ekki glæsilegir. Og
þær svöruðu því til, að þeim fynd-
ist þetta allt of mikið og úttútnað.
Okkur datt einnig í hug að athuga
auglýsingar um vöðvastælinga-
kerfi og þar bar allt að sama
brunni. Lofað var gífurlegum
líkamburðum á skömmum tíma.
Að okkar viti er ekki nema
einn maður af Þessum kerf-
ismeisturum, sem lætur sig
nokkru varða heilsu- eða van-
heilsuáhrif þessara vöðvastælinga.
og það er Charles Atlas, enda
langgeðugastur á að líta og flokk-
ast varla undir ofsavöðvameistar-
* ana.
MAÐUR ÁN ANDLITS — SERAFINO
CONCAS.
í 53 ár lifði hann skuggalífi. Og ástæðan
til þess er sú, að hann var svo afskræmd-
ur í framan að fólk varð dauðskelkað við
að sjá hann. Þannig dró hann fram lífið án
þess að hafa nema mjög takmarkað sam-
neyti við annað fólk. En einn góðan veð-
urdag bar að ferðamenn í fæðingarþorpi
hahs, og þeim varð svo mikið um, að þeir
ákváðu að reyna að gera það sem í mann-
legu valdi stæði til þess að hjálpa mann-
inuum. Og það varð úr að hann komst
undir læknishendur og gerður var upp-
skurður, sem varð til þess, að hann gat
látið sjá sig á almannafæri.
Myndin hér að neðan er tekin eftir upp-
skurðinn. Maðurinn sem kom þessu öllu
til leiðar og sá um fjárhagshliðina hét
Otto Lehmann og var frá Basel í Sviss.
16 vuem