Vikan


Vikan - 09.03.1961, Blaðsíða 35

Vikan - 09.03.1961, Blaðsíða 35
Laukrétt niðurstaða. Framhald af bls. 15. — Já, en maturinn? spurði hann og leit rannsakandi og undrandi á liana. — Geymum hann, sagði hún. í kvöld skuium við fara út og skemmta okkur. Hann skildi ekkert í henni. Það voru blóm og kerti á borðinu. Allt var tilbúið undir velzlukvöld heima fyrir. — Heyrðu, Inga. Við skulum hjálpast að í eldhúsinu eins og svo oft áður, lirópaði liann ákafur og gekk í áttina að eldhúsinu. En hún skauzt fram hjá og varnaði lionum að komast. — Þú ferð ekki fram i eldhús, stundi hún upp. — Fyrirgefðu, andvarpaði hann og fór frá og velti fyrir sér, hver ástæðan gæti verið. Svo brosti liann gleitt og tók utan um hana. — Smá-tæknióhapp i eldhúsinu, hvað gerir það svo sem til. En viljirðu heldur, fara út i kvöld, þá förum við. — Þú ert indæll, Kaj, andvarp- aði hún fegin. — Fáðu þér sæti, meðan ég bý mig. —• Síðan hvarf hún inn á litla baðherbergið. •— Hann sat og horfði ánægður í kringum sig í skemmilegri stof- unni og hugsaði um þetta dásam- lega, sem hafði komið fyrir þau. Litla vinkonan lians var alls ekki kaldlynd. Hann gat fengið að vera riddarinn hugprúði ■— og kysst tárin af fögrum augum hennar. Æ, já, hann var þá sjálfur heimsku- legur, rómantískur karlmaður, þegar öllu var á botninn hvolft. Óttalega var lnin lengi þarna inni. Eiginlega gæti það verið dá- lítið spennandi að laumast til að lita inn í eldhús. Nei, það væri ekki rétt -— og þó. Hann stóð mjög varlega upp úr stólnum. og lædd- ist eins og ótíndur afbrotamaður að bannsvæðinu. Hann hafði þegar gripið í húninn, þegar hún kall- aði til hans. •— Ertu ekki orðinn óþolinmóður, heyrðist glaðklakka- lega í lienni. Hann rauk inn í stofu. — Nei, ekki aldeilis, anzaði hann dálítið móður. Það er ágætt að hvíla sig fyrir átveizluna. Hann hlustaði í minútu. Nú var líklega öllu óhætt, þvi að hann heyrði hana busla. Hann liélt niðri i sér andanum og læddist aftur að eldhúsdyrun- um. Nú hikaði hann ekki, en opn- aði varlega, eins og hann hefði ekkert gert annað alla sína ævi en læðast um eldhúsdyr. Nú, hér er allt mjög snyrtilegt. — Hann var hálfhissa. Kartöfl- urnar- lágu flysjaðar í pottinum, kjötið var tilbúið til að steikja það, og ábætirinn beið ekki eftir öðru en að verða etinn. Hann þefaði út í loftið og uppgötvaði smávegis, sem lá á eldhúsborðinu. Frá þessu hafði hún farið, þegar hann liringdi bjöllunni. Því næst hló hann og hristi höfuðið. Það var þá þess vegna, sem hún hafði grátið. Laukurinn hafði valdið sár- um gráti. Og þess vegna mátti hann ekki koma fram i eldhús. •— Hún hefur haldið, að þá hefði skoðun hans á kvenlegri lyndiseinkunn hennar breytzt. Hann læddist hljóð- lega inn i stofu aftur og sat þar með sakleysissvip, þegar hún kom uppábúin fram. Nú vottaði ekki fyrir tárum, en í augum hennar glampaði sönn hamingja. Og það var fyrir öllu. ★ ÍBÚÐARHÚS n VERKS MlfOUHUS FRYSTIHÚS II Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár- um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota- legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). Lækjargötu . Hafnarfiröi . Sími 50975. vikan 35

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.