Vikan


Vikan - 21.09.1961, Síða 15

Vikan - 21.09.1961, Síða 15
J)crlu- fcsti Sumir dagar eru öðrum verri, og miðvikudagurinn minn var óvenjuslæmur. Ég svaf yfir mig eftir lei'ða drauma og andvöku, og þegar ég hugðist bæta skap mitt og tala við stúlkuna mina, svaraði hún ekki simanum. Úrillur fór ég á knæpii til að fá mér matarbita. Þar hitti ég Jón, lcunningja minn og skólabróður, framlágan og timbraðan. Hann sagði mér þá furðusögu, að Bedúel, vinur okkar, hefði verið fluttur í sjúkrahús síðustu nótt og vonlitið væri um líf hans. — Síðla kvölds hringdi særður maður til lögreglu bæjarins og bað aðstoðar. Það var Svanur, bezti vinur Bedúels. Á þriðjudagskvöldið höfðu þeir Svanur og Bedúel setið á heimili Svans og rabbað saman. En allt siðan þeir gengu saman j Menntaskólann, hlöfðu þeir unað þvi fádæma- vel að kappræða, því að sjaldnast voru þeir sammáia, svo ólíkir sem þeir voru. Að þessu sinni þráttuðu þeir um Ijóð. Tilvitnun, sem Bedúei taldi Svan ekki fara rétt með, varð til þess, að Bedúel fór inn i innra herbergið til að ná í bókma> Svo að hann gæti sannað mál sitt. Bókin var í veggskáp, sem var fyrir ofan svefnbekk Svans. Bedúel þurfti að teygja sig eftir bókinni og missti hana úr hendi sér, og hún lenti upp fyrir bekkinn. Hann var nokkra stund að bjástra við að ná í bókina, en Svanur var hinn rólegasti á meðan og kveikti sér í sígarettu. Hann vissi ekki fyrr til en Bedúel kemur sótrauður af heift 0g ræðst á hann. — Hvað er að vinur?“ — sagði Svanur, en Bedúel hvæsti út úr sér: „Ég skal myrða þig, bölvaður svikarinn þinn!“ Bedúel var heljarmenni að burðum, svo að Svanur óttaðist um líf sitt, þar sem höggin dundu á honum, þung og stór. Þegar Svanur var nær dauða en lifi, blár og marinn, hætti Bedúel skyndilega að berja á honum og tautaði með grátstafinn í kverkunum: „Ég er sjálfur svín og skepna. Þetta er sjálfsagt mér að kenna.“ — Svo fór hann inn í baðherbergið. Þegar Svanur skömmu síðar staulaðist til .að huga að honum, lá hann þar i blóði sinu, hafði náð sér í rakblað og skorið sig á púlsinn. Slík var sagan, sem Jón sagði mér þennan óyndislega miðvikudagsmorgun. — — Það var nú orðið langt siðan hópur ungra manna með kollhvítar húfur söng um hamingju- sama stúdenta og setti svip sinn á höfuðborgina stund úr degi. í þeim glaðværa hópi vorum við, þessir fyrirstriðs-æskumenn, sem nú vorum að nálgast miðjan aldur. Þar var heljarmennið og stirðbusinn Bedúel og bezti vinur hans, kvennagullið Svanur. Þessir ólíku menn höfðu dregizt hvor að öðrum og verið vinir æ siðan. Bedúel fékkst við verklegar framkvæmdir, en Svanur var við verzlun, og vinátta þeirra var alltaf söm. Lengi vel voru báðir ókvæntir, en að vonum hópuðust stúlkurnar um Svan. Hann lét þær ekki banda sig, en þótti viðsjáll á sið- kvöldum. Ekki fóru neinar sögur af þvi, að Bedúel liti á konur, en sagt var, að hann hefði undra- vert skyn á þvi, hvenær Svanur óskaði, að hann hyrfi af sjónarsviðinu. Um það bil, sem ég gerðist ungkarl aftur, eftir að hafa misst konuna mfna i ástandið, kom Bedúel okkur á óvart. Hann fór fyrirvaralitið úr bænum, sagðist ætla i sumarleyfi. Hann fór einn, aldrei slíku vant, og Svanur, sem hafði verið ómissandi förunautur, vissi ekki, hvað var á seyði. Eftir nokkurra vikna fjarveru kom Bedúel aftur og hafði þá i fari sinu unga konu, andlits- bjarta og smávaxna. Konuna kynnti hann sem löglega eiginkonu sina, og ástin geislaði af báð- um. Þessi kona var okkur lengst af sama ráðgátan. Hlédrægni hennar var slík, að við urðum að hálfgerðum viðundrum í návist hennar. Þá sjaldan hún var með okkur á skemmtistöðum, vorum við eins og feimnir fermingarstrákar, þegar við buðum henni i dans. Einhver kunningj- anna laumaði þvi út úr sér, að það væri eins gott að dansa með glerbrúðu i fanginu og þennan brothætta grip hans Bedúels. Þetta vakti kátinu, og var konan siðan í hópi okkar oftast kölluð glerbrúðan hans Bedúels. Svanur andmælti þessu og sagði, að blóð hennar mundi jafnrautt og heitt og annarra kvenna. Og árin liðu. Bedúel virtist hamingjusamur, en glerbrúðan hans var alltaf jafnfjarlæg okkur, en falleg var hún. Hún umgekkst þó nokkuð konur hinna kunningjanna, og sögðu þær, að hún væri ekki eins ómannblendin og við héldum. Þær höfðu með sér einhvers konar félagsskap við sauma eða eitthvert slikt dútl. Þegar saumafundirnir voru haldnir, fóru karlarnir venjulega saman út að skemmta sér, og var þá oft glatt á hjalla. Siðasta vetur voru þær svo saumaglaðar, að þær náðu i stúlkuna mina i féiagsskapinn, og þótti mér það stundum miður, þegar hún mátti ekki vera að hitta mig vegna þessara funda. Við ókvæntir sögðum þeim, sem konur áttu að lög- um, að volgran í hjónabandinu væri ekki orðin meiri en það, að þetta væri kærkomið tækifæri til að blóta á laun. Bedúel geðjaðist ekki að slíku hjali, og gerðist hann jafnan stúrinn, þeg- ar honum fannst virðing okkar fyrir hjónabandinu ekki næg. En okkur kom vist aldrei i hug að væna brúðuna hans um græsku. Hver hefði þorað að eiga það á hættu að brjóta slikan dýr- grip og skera sig á brotunnm? Bedúei komst brátt úr lifshættu, og ég fór að heimsækja hann i sjúkrahúsið. Hann var föl- ur og tekinn, en annars hress i taii. Við töluðum um daginn og veginn, og ég forðaðist að minnast á siys hans. Bedúei var um stund þögull, áður en hann sagði alvarlegur og að þvf er virtist nær kiökkur: ,.Þú spvrð einskis." Ég svaraði ekki. Hvað átti ég að segja? „Ég er ekki briálaður.“ sagði Bedúel, en Ég missti vitið stundarkorn. Þú átt efiaust bágt með að skilja, hvernig á þessu stendur. En ég vil reyna að skýra fyrir þér, hvað kom fyrir. Mér líður betur, ef einhver skilur mig ... Þú veizt. að ég er nokkuð fastheldinn á mitt, og tvær manneskjur hafa verið mér dýrmætastar i lifinu, konan mín og Svanur, vinur minn. Þegar mér fannst þau bæði hafa brugðizt mér, missti ég vitið og vildi ekki lifa lengur.“ — Ég var engu nær. Senni- lega var maðurinn enn ruglaður. Bedúel tók eftir því, hve furðulegt mér fannst tal hans. „Vertu rólegur, vinur sæll, sagan er ekki öll.“ Svo hélt hann áfram, rólegur, en fastmæltur að vanda: — Konan mín er töluvert yngri en ég, eins og þú veizt. Þó hef ég aldrei verið hræddur um hana. Þöngulhansinn ég hélt, að hún gæti elskað mig einan, Ijótan og leiðinlegan eins og ég er ... En ást hennar virtist engin uppgerð, og ég var hamingjusamur og eigingjarn. — Hún er falleg, eins og þú veizt,“ — og nú brá fyrir f svipnum þeirri hlýju, sem alltaf var yfir Bedúel, þegar konan hans kom við sögu. — Ég hafði sérstaka ánægju af þvi að velja henni falleg föt og skartgripi. t fyrra, þegar við vorum erlendis, keypti ég handa henni sérkennilega perlufesti. Festin var græn og fór sérlega vel við nýjan kjól, sem hún eignaðist um svipað leyti. Þíi manst, að grænt fer konunni minni afar vel, og hún var svo undurfalleg, þegar hún var komin í nýja kjólinn með perlufestina um hálsinn. Núna um daginn ætluðum við i bíó. Konan mín veit, hvað ég hef mikinn áhuga á klæðnaði hennar, svo að hún spyr mig stundum ráða, þegar hún vill halda sér til. Að þessu sinni spurði hún mig, í hvað hún ætti að fara. Þá mundi ég eftir grænleita kjólnum, sem hún hafði notað glcr- brúðunnar eJmxlscLgxL JU<xtífix>Fg.LL lerLts,. lengi. Hún fór 1 kjólinn, en perlufestin fannst ekki. Konan mundi ekki, hvar hún hafði látið hana, svo að við urðum að fara, án þess að hún fyndist. Við skemmtum okk- ur vel og fórum i kaffihús og fengum okkur snúning. Ég var hamingjusamur eins og allt- af i návist hennar. Við höfðum skemmt okk- ur óvenjulitið í vetur. Þær hafa eytt svo miklum tíma í það að sauma, konurnar. Það var næsta kvöld, sem ég fór heim til Svans. Okkur leið dæmalaust vel, meðan við vorum að þrátta um ljóðlistina. En svo var það þessi ófétisbók. Ég missti hana upp fyrir bekkinn, klaufi sem ég er. Þá sá ég það, sem ég vildi sízt sjá. Græna perlufestin konunnar minnar var fyrir ofan svefnbekk- inn hans Svans. Þá missti ég vitið. Þetta var ekki í fyrsta skipti, sem ég rakst á skart- gripi kvenna í þessu herbergi, en skart- gripi konunnar minnar vildi ég sízt finna þar. Konan mín og bezti vinur minn höfðu verið hér á ástafundi. Það var svo sem ekki von, að hún fyndi perlufestina heima. En mest furðaði ég mig á þvi, hvað hún gat verið sakleysisleg, þegar hún þóttist vera að leita að festinni. Og ég, sem stundum var að stríða Svani með þvi, að hann mundi eiga orðið safn af svona gripum. En hann sagði, að þær kæmu ævinlega aftur til að sækja þá, — sumar skildu þá eftir með ráðnum hug til þess að eiga erindi aftur. — Ég þekkti þessar sögur. En þessa sögu hafði ég ekki kjark til að botna. Ég varð bara bandvitlaus og lamdi Svan, svo að stórsá á honum. — Skilurðu mig, vinur?“ — Nú var bæn i svip hans. — „En nú lief ég jafnað mig,“ bætti hann við. „Þau mega verða ham- ingjusöm. Svanur er mér fremri. Ég fer af landi burt og gef honum hana.“ — Rauna- legt bros leið yfir andlit hans, og fórnfýsin lýsti af honum og gerði hann tiu árum eldri. Ég var orðlaus. Hver getur tjáð sig eftir þvílík tíðindi? Auk þess vakti brigð gler- brúðunnar mér sérstaka furðu. En áður en mér ynnist tími til nokkurs svars, opnuðust dyrnar, og inn kom gler- brúðan, brosandi og fögur, með ljómandi sakleysið i svipnum. Hún hraðaði sér að Framhald á bls. 32. VIKAN 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.