Vikan - 21.09.1961, Side 20
<[ 1. Slaufa hnýtt úr silki-„musulín“-
efni. Efnið: 30 cm á breidd og 90
cm á lengd.
3. Slifsi, sem sniðið er eftir skýr-
ingarmyndinni. Sniðin eru þannig
gerð, að ferningar, 5x5 cm, eru strik-
aðir á pappír, sniðin síðan teiknuð
og klippt út.
Efnið i slifsið er 40 cm af 70 cm
breiðu silkiefni. Sníðið slifsið, og látið
snúa á ská í efninu. Saumið það sam-
an, þar sem merkt er x á sniðinu,
og að neðan. Snúið því við, rúllið
saman vel út i brúnina, og þræðið
tæpt. Gerið hinn helming slifsisins
eins. Sníðið nú 8 cm breiðan skárenn-
ing og að lengd eftir hálsmálinu.
Saumið hann saman, og snúið við.
Yfirdekkið hraapp úr efninu, og [>
látið hann koma yfiri samskeytin;
sjá mynd.
<] 2. Rós, sem keypt er tilbúin,
einnig má búa til úr silkiefni.
• •
* ö í?,
4. Kragi saumaður eftir sniðinu úr [>
hörlérefti.
Efnið: 45 cm af 70 cm breiðu efni.
Sníðið 2 stk. Leggið þau réttu mót
réttu; saumið fótbreidd frá brún,
snúið við, rúllið saman út í brúnina,
þræðið og pressið. Gangið frá efsta
hluta kragans með 3ja cm breiðu ská-
bandi.
W'
5. Lítið stykki i hálsmálið og upp-
<4 slög úr „piké“-efni. Sníðið uppslögin
eftir sniðinu úr tvöföldu efni. Leggið
þau saman réttu mót réttu. saumið,
og snúið við. Rúllið sauminn vel út
í brúnina, og þræðið tæpt. Saumið
4 hnappagöt.
Efni: 50 cm af 90 cm breiðu efni.
9. Kragi úr mjúku baðmullarefni.
Saumið kragann eftir sniðinu úr tvö-
földu efninu. Saumið hann saman, og
gangið frá honum eins og hinum
krögunum. Saumið hnappagat, og
festið hnapp neðst á kragann, eins og
sést á myndinni.
Eíni: 1,10 m af 70 cm breiðu efni.
V
6. Tvöfaldur skárenningur saumað-
ur úr alsilki.
Efni: 45 cm af 90 cm breiðu efni.
Sníðið skárenninginn um 3—3%
cm breiðan. Sníðið með 1% cm breiðu
saumfari. Saumið renninginn saman,
snúið honum við, tyllið á hálsmálið,
og hnýtið slaufu.
0 p % s
V 0 2. A J
h V
— N 8 1
\ i
/ n \ / f \
\ % v / 1 \ \ \
\ X J ' A \ *
\ y \ 1 ; 3 1
\ 4\ V xz X Xf \
<
7. Skárenningur sniðinn um 4 cm
breiður og eftir lengd hálsmálsins,
saumaður saman eftir þræði, brotinn
saman, pressaður, gengið frá honum
að neðan með skábandi, — að lokum
þræddur við hálsmálið þannig, að 3
cm standi upp.
Efni: 25 cm af 70 cm breiðu efni.
8. Kragi saumaður eftir sniðinu úr [>
„piké“-efni. Sníðið kragann tvöfald-
an, saumið saman eftir x merkingu,
snúið honum við, rúllið saumfarið vel
út í brún, og þræðið tæpt. Bryddið
innri hluta kragans með skábandi.
Búið til 2 skárenninga í ermarnar á
sama hátt og skárenningur í
hálsmálinu á 7. mynd var gerður.
Skárenningarnir eiga að vera % cm
styttri en ermarviddin.
Hnýtið slaufu að framan.
E'fni: 70 cm af 90 cm breiðu efni.
20 VIKAN