Vikan


Vikan - 21.09.1961, Page 22

Vikan - 21.09.1961, Page 22
Fyrsta myndin, sem tekin var í ísrael af Paul Newman í hlut- verki Arí Ben Kanaans. Hann er að máta búninginn, áður en myndatakan hefst. nýju. 1 Jerúsalem léku um tutt- ugu Þúsund manns með í mynd- inni, — og myndin sló í gegn. Paul Newman lifði sig alveg inn í hlutverk Arí Ben Kanaans. Hann lærði hebresku, áður en upptakan hófst, og dvaldist dálitinn tíma i Israel til að kynnast öllum að- stæðum. Sal Mineo, sem lofaði mjög góðu í fyrstu mynd sinni, Rótlausri æsku (með James Dean og Natalie Wood), sýnir nú ó- venjugóðan leik. Eva Marie Saint er svo mikil stjarna, að hún velur hlutverk sín sjálf, og hún lagði sig alla fram til að leika hina raun- verulegu Kitty, sem að lokum sigr- ar hjarta Arí. Paul Newman hafði konu sína, Joanne Woodward, með sér til Israels. Hún er sjálf mikil kvik- myndastjarna, en hætti við allt þess háttar, meðan maðurinn var í Israel. „Staða mín er við hlið hans,“ segir Joanne. Þau eru mjög ástfangin eftir margra ára hjóna- band og ákveðin í að láta ekki frægðina eyðileggja hjónaband sitt. — „Þá hætti ég frekar," segir Joanne. Þau hjón leika annars saman i mörgum myndum frá Fox-kvikmyndafélaginu. Þar að auki lék Newman aðalhlutverkið á móti Elísabeth Taylor í Köttur á heitu blikkþaki. Eva Marie Saint hafði einnig mann sinn, Jeffrey Hayden, og tvö börn sín með sér. „Án þeirra get ég ekki lifað," segir hún. „Mér er ómögulegt að vera svo lengi i burt frá þeim sem þessi kvikmynd- un stendur yfir.“ Hinn 21 árs gamli „rokk“- söngvari Sal Mineo er enn ógiftur og eyddi frítímanum í að gefa eiginhandaráskrift. Eitt atriði myndarinnar. — Sitj- andi til vinstri er Paul Newman. Efst til hægri er Sal Mineo og við hlið hans Eva Marie Saint í hlut- verki bandarísku hjúkrunarkon- unnar. gefið sig nokkrum kvenmanni siðan. E'n enginn ræður yfir tilfinninga- lífi sinu, og Arí hittir hina fallegu og viljasterku bandarísku hjúkrunar- konu, Kitty (Eva Marie Saint). Hún hefur viljandi og óviljandi flækzt inn í flóttamannavandamálið og kynnist Ari Ben Kanaan í einu áhrifamesta atriði myndarinnar, þegar hann smyglar nokkrum hundruðum Gyð- ingabarna frá fangabúðum á Kýpur Kvikmyndin, sem kom öll- um á óvart í Cannes. Paul Newmann er í aðalhlut- verki, en þar að auki leik- ur Eva Marie Saint banda- ríska hjúkrunarkonu, Sal Mineo sjálfstæðishetju, og hin fjórtán ára Jill Ha- worth leikur unga, þvzkætt- aða stúlku, sem leitar að föður sínum. Exodus er skáldsaga, sem farið hefur sigurför um allan heim. Bókin er áhrifamikil og æsandi lýsing á uppbyggingu Israels árið 1947. Frá bækistöðvum Hitlers og hvað- anæva úr Evrópu flykktust þús- undir þúsunda af Gyðingum til eyjarinnar Kýpur og þaðan ætluðu þeir áfram til Palistínu. Við þetta voru Englendingar hræddir, því þeir héldu að Aröbum mundi aukast svo mikið styrkur við þessa mann- flutninga, og stöðvuðu þess vegna flóttafólkið. En Gyðingar í Israel ákváðu að halda baráttunni áfram, og bókin og kvikmyndin, sem gerð hefur verið eftir henni, fjallar um hið mikla stríð, sem þá var hafið. Aðalpersónan, Gyð- ingurinn Arí Ben Kanaan, er mikill maður, sem aldrei guggnar, — til þess hefur hann gengið í gegnum of mikið. Unnusta hans var drepin af Aröbum við landamæri Palestínu, þegar hann var ungur. Hann talar aldrei um hana og hefur aldrei Jill Haworth brosir fallegu brosi í hlutverki þýzkættuðu stúlkunnar, sem Jeitar að föður sínum. og í bát, sem á að flytja þau til fyrir- heitna landsins. Englendingar reyna að þvinga hann til að framselja börn- in. En Arí hótar að sprengja skipið i loft upp, ef þeir nálgist þau. Eftir nokkra langa og þreytandi daga, sem allur heimurinn fylgist með, gefast Englendingar upp. Börnin, sem hafa orðið að þola sult í 100 tíma, og hin miklu mótmæli hvaðanæva úr heim- inum verða einum of mikið fyrir ensku foringjana. Sal Mineo leikur unga frelsishetju, sem alizt hefur upp í hinum hræði- legu fátækrahverfum í Varsjá, en eyddi æskunni í hinum alræmdu fangabúðum Þjóðverja í Auschwitz. Þetta hefur gert hann kaldlyndan og tilfinningalausan. Jafnvel hin unga, þýzkættaða stúlka, sem leitar að föð- ur sínum og er mjög hrifin af honum, á mjög erfitt með að komast í gegn- um hina hörðu skurn, sem umlykur hjarta hans. Hún er leikin af hinni fjórtán ára gömlu Jill Haworth. Mikið hefur verið talað um þessa bók alls staðar í heiminum. Hinn frægi leikstjóri Otto Preminger las handritið tveimur mánuðum, áður en það var prentað og ákvað að gera beztu kvikmynd sína eftir því. En hann mætti miklum erfiðleikum allt frá byrjun. Þar sem E'nglendingar sættu mikilli gagnrýni vegna afstöðu sinnar í vandamálum Gyðinga, neit- uðu margir enskir tæknifræðingar og sérfræðingar að taka þátt í kvik- mynduninni. Kvikmyndin var tekin í Kanaan, og vopnaðir verðir voru viðbúnir til að hindra árásir af hálfu íbúanna í Arababænum Kfar Kana, sem er þar rétt hjá. Öll borgin Gan Dafna, sem skiptir nokkru í sambandi við sögu- þráðinn, hefur verið byggð upp að Gefið fðtunum vetroifrí Allur fjöldinn af ungum stúlkum gengur í þunnum nælonsokkum í vetrarkuldum. Er það ekki skaðlegt? Það er alltaf rétt að klæða sig eftir árstíðum, ekki aðeins með til- liti til sokkanna. 1 biðstofum lækna eru daglega ungar kon- ur, sem á einhvern hátt hafa veikzt af að klæða sig kæru- leysislega. Hvað er það þá, sem gerist? — Ef fætur t. d. eru daglega í miklum kulda, verða þeir bláir, og séu þeir einu sinni orðnir það, er hætt við, að það verði alltaf viðloðandi. Það er blóðrásin, sem truflast, og árangurinn er ljótir og bláir fætur, sem eru til mikillar óprýði. Eitthvað er þó unnt að gera til að reyna að bæta úr þessu. Heit og köld böð til skiptis eru t. d. ágæt. Einnig er rétt að hætta að nota nælonsokka köldustu mánuði árs og nota heldur þykka sokka eða ullarsokka í staðinn, bæði af þeim ástæðum, sem nefndar voru, og einnig, til Þess að fæturnar fái svigrúm til að anda örlítið. Ef stúlka hefur tilhneigingu til að svitna á fótum, versnar það, ef nælonsokkar eru notaðir árið um kring. En breyti maður til dálítinn tíma, fá fæturnir langþráð vetrarfrí. —- En hvernig eiga þær þá að fara að, sem þurfa að vera í nælonsokkum við vinnu? Þær þurfa að fara í sokka- buxur utan yfir; þær koma svona tveimur mínútum fyrr á morgnana, ná þær að fara úr þeim. Sokkabuxur eru mjög hentugar, því að þær skýla miklu meira en sokkar, og það er mjög mikilvægt, sérstaklega ef hvasst og kalt er. Ef allar stúlkur gerðu sér ljóst, að það hefnir sin að vera „flott dama“ allan veturinn — í þunnum undirfötum, nælonsokkum og hælaháuni skóm, -— þá gætu læknar áreiðanlega „strik- að út alla kvensjúklinga,, sem þjást af „bláum fótleggjum" og blöðrubólgu. Mínútusamtal við SOPHIU LOREN Blaöafulltrúi Paramount- kvikmyndafélagsins hefur skrifaö styzta viötal, sem sézt hefur í Hollywood. Þaö tók eina mínútu, og fórnarlambiö var Sophia Loren, sem þekkt er fyrir hreinskilni sína. — Sophia Loren, — hvaö finnst yöur um ást? — Ég hef heyrt, aö hún sé til. — Vináttu? — Mjög sjaldgæft fyrirbœri. — LifiÖ? — Dásamlegt eöa liræöilegt. Þaö fer eftir því, hvernig maö- ur lifir því. — Peningar? — Gildi þeirra fer eftir aö- stööu eigendanna. — Minnimáttarkennd? — Hef ekki heyrt getiö um fólk án hennar. — Drauma? — Þaö er betra aö dreyma illa og vakna í fullkomnu liji heldur en hitt. — Sjónvarp? — Stórfínt, aöeins ef maöur veit, hvernig á aö skrúfa fyrir þaö. Connie Francis í SAUMAKLÚBBINN OSTABItAUÐ. 4 fransbrauðsneiðar, 20 gr smjör, gott stykki af feitum osti, 4—5 matsk. rifinn ostur, 40 g smjör eða smjörlíki eða þrjár matsk. olía til að steikja úr, 1 tsk. pipar. Brauðsneiðarnar eru smurðar og lagðar saman tvær og tvær með osti á milli. Hægt er að rífa niður afgang af göml- um osti og setja í staðinn fyrir ostsneiðina. Skera má osta- brauðið í Þríhyrninga eða aflanga búta, því brauðið er steikt á pönnu í smjöri, smjörlíki eða olíu. Ostabrauð má bera fram með lauksúpu og öðrum græn- metissúpum, en einnig er gott að nota brauðið sem sérstak- an rétt og hafa þá hrærð egg með Því. Fyrir tveimur árum komst ég skyndilega á toppinn vegna plötu, sem ég söng inn á og hét Who‘s Sorry Now? — og hefði Perry Como ekki hjálpað mér, hefði ég fallið algjörlega saman vegna hinnar miklu pressu, sem skyndi- lega hvíldi á mér. Fjölskylda mín og vinir báðu mig að hvíla mig og taka þessu rólega. En ég var ekki nema nítján ára og fannst, að gæti sigrað heiminn á einum eða tveimur vikum. Ég hélt, að frægt fólk með einhvern metnað þyrfti að vinna meira en átta tíma á dag. Þess vegna vann ég nítján tíma á dag — svona til öryggis — og þaut á milli hljómleika og skemmtistaða. Auðvitað biluðu taugarnar. Ég varð mjög við- kvæm, og búningsherbergi mitt líktist lítilli lyfjabúð; það var svo fullt af alls konar lyfja- töflum. En ég huggaði mig við töflurnar. Ég tók 24 á dag fyrir utan fjölda af róandi meðul- um til að halda mér algerlega í ró. Svo dag nokkurn tók ég eftir því, hvernig Pcrry Como hagaði sér, áður en hann kom fram í útvarpi eða sjónvarpi. Hann talaði við starfs- lið og gesti, gerði að gamni sínu og sagði brandara. — Hvernig gat hann verið svona ró- legur? Að lokum tók ég í mig kjark og spurði hann. Ég sagði honum, hvernig mér liði og hann hlustaði á mig án þess að segja neitt. Svo sagði hann: — Gerðu eins og ég, Connie. „Slappaðu af“, og stundaðu vinnuna. Eins og þú veizt, var ég mörg ár söngvari með hljómsveit. Það var hræðilegt lif, og þetta byrjaði að valda mér óbyggjum. Mér fannst sem hið raunverulega líf færi fram hjá mér. Fyrst datt mér í hug að byrja aftur á fyrri vinnu minni sem rakari. En kon- unni minni tókst að sannfæra mig um, að ég gæti haldið áfram á framabrautinni og samt sem áður lifað rólegu og skemmtilegu lifi. Svo byrjaði ég að fara eftir mínum nýju lífsreglum, og það gekk prýðilega. Og Perry má þakka það, að ég komst yfir þetta. Ég hef sungið inn á fimm plötur, sem seldar eru milljóna tali. Það hefur því verið nóg að gera, en samt hefur mér aldrei liðið eins vel og nú. Og töflurnar eru fyrir löngu farnar veg allrar veraldar. Connie Francis, fædd Connie Franconara í Newark, New Jersey, fyrir 21 ári, var vaiin vinsælasta dægurlagasöngkona Bandaríkjanna í fyrra. Hún er einnig efst á vinsældalistum um alla Evrópu. Hún er fyrsta konan, sem hef- ur farið fram úr karlmönum i þessari grein, og yfir átta milljónir af plötum hennar hafa selzt síðustu árin. ★ SÍGAUNABARÓNINN Flestir hafa eflaust séð Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss, þegar hann var leikinn hér í Þjóðleikhúsinu, og allflestir hafa vafalaust haft gaman af. — Nú er unnt að fá alla óperuna í hljómplötudeild Fálkans fyrir 860 kr. Þetta eru tvær þrjátíu og þriggja snúninga plötur, gefnar út af hljómplötufyrirtækinu His Master's Voice. Óperan er sungin á þýzku af þýzkum listamönnum, en með aðalhlutverk fara: Hilde Giiden, Anneliese Rothenberger, Karl Terkal og Erich Kunz. Philharmóníu'- hljómsveitin í Vín leikur með Kór Félags hljómlistarunnenda í Vín. Stjórnandi er Heinrich Hollreiser. Óperettan var fyrst sýnd í Vín 24. október árið 1885 og vakti óhemju- hrifningu. Efnisþráðurinn er rómantískur og gerist í Ungverjalandi á tímum sjálfstæðisbaráttu Ungverja um miðja nítjándu öld. Efnisþráðinn er víst óþarft að rekja nánar; ástin lætur mikið að sér kveða, og ekki þarf að taka fram, að allt endar vel, þó að horfurnar séu ekki alltaf sem beztar. 22 VIKAN VIKAN. 23

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.