Vikan


Vikan - 21.09.1961, Page 24

Vikan - 21.09.1961, Page 24
$pennandi 09 skemmttleQ nstnr- SA0A eftlr Pntrikn Femvicfe 11. hluti. Þetta getur ekki átt sér stað, hugsaði hann. Svo braut hann upp bréfið, sem lagt hafði verið innan í pakkann. Fyrst í stað hélt hann, að Þetta bréf væri alls ekki til sín. En ávarpið tók af allan vafa um Það: — Kæri Victor Cleveland ... Jú, sjálft leik- ritið var líka nefnt sínu rétta nafni. Efablandinn og óttasleginn renndi hann augum yfir bréfið . . . orða- gambur . . . óeðlilegt . . . lágkúru- legt ... atburðirnir ýktir ... viðbrögð persónanna ósönn og óeðlileg . . . Síðan las hann bréfið orði til orðs, meira að segja tvisvar, án Þess þó að hann væri í rauninni nokkru nær, — hugsaði sem svo, að þetta hlyti að vera léleg fyndni. Það gæti ekki kom- ið til gneina, að umboðsmaðurinn leyfði sér að viðhafa slik orð um leikrit eftir HANN. — Þetta getur ekki átt sér stað, mælti hann stundarhátt. E'n um leið og hann heyrði sína eigin rödd, varð honum ljóst, að þetta var staðreynd engu að síður, hve ótrúleg sem hún annars var. Umboðsmaðurinn hafði endursent honum leikritið. Og hann tilgreindi ástæðuna, umbúðalaust og án nokk- urrar miskunnar. Orðin, sem hann hafði lesið vélritunarstúlku sinni fyrir, störðu af hvítum pappirnum beint i augu Victor Cleveland, hvasst og fasst. . . vöktu stolt hans til upp- reisnar. Umboðsmaðurinn hlýtur að vera genginn af göflunum! Kann hann ekki að meta snilldarverk, þessi erkiheimskingi. . . En uppreisnin var fyrir fram von- laus. Umboðsmaðurinn tók það fram i bréfinu, að þrír leiklistarráðunaut- ar hefðu lesið leikritið yfir og væru allir á einu og sama máli. Gremja Clevelands breyttist í örvæntingu. Leikritið var að öllum líkindum mis- heppnað. . . Hvað í ósköpunum á ég að segja fólkinu? var fyrsta spurningin, sem vaknaði í huga hans. Hvernig átti hann að skýra þetta? — Það verður uppselt í marga mánuði, þegar nýtt leikrit eftir Victor Cleveland kemur á svið, heyrði hann sjálfan sig segja. Hann roðnaði. 1 rauninni hafði hann sjálfur trúað þessu statt og stöð- ugt. Honum hafði ekki komið til hugar, að þar gæti verið um neitt grobb eða skrum að ræða. En nú varð hins vegar annað uppi á ten- ingnum. — Ég hef orðið mér til skammar, sagði hann lágt við sjálfan sig. Og um leið og hann horfðist þannig i augu við staðreyndirnar, mundi hann eftir enn einu. Peningarnir . . . Nú var ekki lengur um neinar gifurlegar tekjur að ræða. . . . ÓVÆNT AÐSTOÐ. Það þótti Cleveland þó uggvænleg- ast, að nú voru engar horfur á, að hann fengi peninga í bráð, hann, sem hafði heitið Marínu gulli og grænum skógum. Nú skuldaði hann Tremein- fjölskyldunni margfalt það, sem hann átti i handbæru fé. Það var þessi skuld vegna fæðisins og húsnæðisins, sem mestum vand- ræðum olli, því að vitanlega gátu þau Marin frestað brúðkaupinu um skeið. En hann vissi, að fjölskyldunni lá á peningunum. Lísa hafði þegar innt hann eftir borgun, og hann hafði heitið því, að ekki skyldi standa lengi á henni, þar sem hann treysti því þá, að hann fengi ríflega fyrirfram- greiðslu, um leið og samningarnir væru undirritaðir. En nú. . . Ekki mega þau bíða tjón, þótt ég sé montinn kjáni, hugsaði hann. Ein- hvern veginn verð ég að komast yfir peninga til að greiða með skuldina. Kannski ég geti selt ritvélina. En ritvélarlaus gat hann ekkert skrifað. Hann beit á jaxlinn. Að dómi umboðsmannsins og sérfræðinga hans gat hann raunar ekkert skrifað, hvort eð var ... Það litur út fyrir, að ég verði að fara að vinna í skrifstofu aftur, hugs- aði hann og reyndi að ímynda sér, hvernig honum mundi falla það nú að verða að sitja við skrifborð og ann- að álíka athyglisvert allan ársins hring að undanskildu hálfsmánaðar sumarleyfi. Nei, — aldrei! Þá var skömminni skárra að fást við aúglýs- ingastarf eða fasteignasölu. Hvað sem það svo yrði, mundi hann kunna þvi jafnilla og hann hafði kunnað skrif- stofustarfinu áður. Raunar gat ekki átt sér stað, að umboðsmaðurinn og sérfræðingar hans hefðu á réttu að standa. Leikrit- ið gat ekki verið eins lélegt og þeir vildu vera láta. E'f til vill gæti ég lagað það eitthvað, hugsaði hann í örvæntingu sinni, — endursamið það ... Hann fór að blaða í handritinu. Hann heyrði vingjarnlega rödd Kittýjar úti fyrir glugganum: — Jæja, Anna, hvernig líður yður í dag? Þér hafið áreiðanlega þörf fyrir te. Ég ætla að tala við hana Rósu um Það. Þetta þýddi, að einnig yrði kallað á hann til tedrykkju og að hann yrði spurður, hvort hann hefði ekki fengið neinar fréttir af leikritinu. Hann flúði út um bakdyrnar með handritið, lagði leið sina upp með læknum. Þar hitti hann Lísu fyrir, þar sem hún var að gera nýtt sól- skýli, — reyndi að flétta Það úr af- skornum pálmablöðum. Hún leit upp, þegar hann bar að. — Það kom pakki til þín, sagði hún. — Veit það, svaraði Cleveland og varð sjálfur undrandi á því, hve stuttur hann var í spuna. Hún varð ekki síður undrandi, og þegar hún virti hann fyrir sér, kom henni mjög á óvart, hve svipþungur hann var og dapur i bragði. Það leyndi sér ekki, að hann hafði orðið fyrir ein- hverju. Hún hafði aldrei séð hann slíkan áður. Og nú veitti hún athygli pakkanum, sem hann bar undir hend- inni. — Hefurðu fengið nokkrar fréttir af leikritinu þinu? spurði hún, — vissi raunar, að hún þurfti ekki að spyrja, þar sem hann hafði handritið meðferðis. Ef til vill hafði þá um- boðsmaður hans ekki orðið eins hrif- inn og hann gerði sér vonir um. — Það var endursent, svaraði hann. — Endursent? Hann kinkaði kolli. — Það var ekki dæmt hæft til sýningar. Nú, þegar hann hafði sagt Það beinum orðum, létti honum einkenni- lega. Það var eins og hann hefði þar með breytt þessari óhugnanlegu martröð í staðreynd, sem hann varð að horfast í augu við. — Það er þó ekki það lakasta, bætti hann við. Lísa lagði frá sér skærin og flétt- urnar — ósjálfrátt, rétt eins og hún tæki svo mikinn þátt í vandræðum hans, að allt annað gilti hana einu. — Hvað áttu við? spurði hún. Og hún heyrði, að hann dró djúpt and- ann, eins og hann þyrfti að taka i sig kjark til Þess að skýra henni frá áhyggjum sínum. — Ég get ekki greitt Þér það, sem ég skulda Þér fyrir fæði og hús- næði, ... ekki fyrr en mér hefur þá tekizt að selja ritvélina mína, sagði hann. — Svo þagnaði hann við eitt andartak, en bætti við, og það leyndi sér ekki, að hann meinti Það, sem hann sagði: — Mér þykir mjög fyrir þessu, Lísa. Mér kom ekki ann- að til hugar en þeir tækju leikritinu tveim höndum og ég fengi ríflega fyrirframgreiðslu. — Ritvélina máttu alls ekki selja, mælti Lísa ákveðin. Vitanlega lá henni mjög á peningunum, — en hvernig átti hann að geta nokkurn tíma greitt þá, ef hann seldi ritvél- ina? — Hvað ætlastu annars fyrir? spurði hún. — Fá mér skrifstofuvinnu, geri ég ráð fyrir. — Ég vann í skrifstofu, áð- ur en ég fór að skrifa leikrit. Og Lísa minntist Þess, að hann hafði sagt, að sér hefði fallið sú vinna með afbrigðum illa. Hún leit spyrjandi augum á pakk- ann. — Hvað var það eiginlega, sem þeir fundu leikritinu til foráttu? Cleveland hikaði við andartak, en dró svo bréfið frá umboðsmanninum upp úr vasa sínum og rétti henni. — Það er bezt, að þú lesir það sjálf, sagði hann með nokkurri beizkju. Lísa las bréfið. Og eins og Cleve- land varð hún að lesa það tvívegis, áður en hún gat áttað sig á, hvað eiginlega væri um að ræða. Ein- kennilegt, hve leikritið gat eiginlega verið gallað. — Getur það verið, að það sé svona afleitt? spurði hún. Cleveland yppti öxlum. — Svo segir umboðsmaðurinn að minnsta kosti, og hann ætti að vita það. — En þér fannst sjálfum, að það væri öllu betra en fyrra leikritið þitt, mælti hún enn. -— Svo sagðirðu Marínu. Hann kinkaði kolli. Hann hafði sagt svo margt við Marínu, og allt var það ólíkt skemmtilegra en það, sem hann hafði séð sig tilneyddan að segja Lísu nú. Og að því er varð- aði sjálft leikritið ... — Ef til vill hef ég ekki lagt eins mikla vinnu í það og fyrra leikritið, viðurkenndi hann. — Ég taldi það einhvern veginn öruggt, að þessu leikriti hlyti að verða að minnsta kosti eins vel tekið og hinu fyrra. Lisa minntist þess nú, að hún hafði heyrt smella linnulaust og án afláts í ritvélinni hans, rétt eins og þetta kæmi allt af sjálfu sér og hann þyrfti aldrei að hugsa sig um. — Heldurðu sjálfur, að það hefði orðið betra, ef þú hefðir lagt í það méiri vinnu? spurði hún. Og nú fyrst brá fyrir nokkurri von I rödd hans, þegar hann svaraði: — Það er einmitt það, sem ég er að brjóta heilann um, sagði hann. Og satt bezt að segja, var það einmitt þess vegna, að ég kom með Það til þín. Ég er að hugsa um að leggja það undir þinn dóm. — Má ég þá lesa Það? spurði hún. Eiginlega hafði hún ekki ætlað að segja þetta. Leikritið kom henni í sjálfu sér ekkert við. Og það var nóg starf fyrir hana og meir en bað að hjálpa Mikka. Það var nú til dæmis þetta sólskýli. — Viltu þá gera mér þann greiða, Lísa? spurði hann ákafur og rétli henni handritið. — Athugaðu, hvoit það muni svara fyrirhöfn að endur- semja það — eða hvort Það er rétt hjá umboðsmanninum, að það sé einskis virði. Hann ýtti pálmablaðafléttunum of- an af bekknum, svo að hún gæti setzt þar. Svo veitti hann Því athygli, að hann stóð Þarna og hafðist ekki að, en hún tafðist frá starfi sínu hans vegna. — Ég skal ganga frá þaki skýlis- ins, á meðan þú lest, sagði hann. — Allt í lagi, sagði hún og var þegar tekin til við lesturinn. Grcenklœdda stúlkan. Leikritið fjallaði um tvenn ung hjón, sem bjuggu í íbúðum hlið við hlið, og kvikmyndaleikkonu, sem var tíður gestur á öðru heimilinu. 1 fyrsta þætti gerðist eiginlega ekki neitt, að Því er Lísa gat bezt séð, annað en það, að persónurnar voru sifellt að rabba saman og reyna að vera fyndnar, án þess þó að þeim tækist það. Svo tók hún til við annan þátt. Grænklæddu stúlkunni var að takast að eyðileggja hjónaband beggja, — sem var þeim ekki nema mátulegt, eins heimsk og óeðlileg og þau voru á allan hátt, hugsaði Lisa, sem alltaf gramdist heimska fólks, — og fyrr en varði var hún orðin öllum persónum leikritsins sárgröm einmitt fyrir þennan áberandi galla þeirra. Svo tók þriðji þáttur við, og þá varð allt einhvern veginn óskýrt og óskilj- anlegt ... Þá féll allt aftur í ljúfa löð, — hjónakornin sættust, en leikkonan hraðaði sér til Hollywood. Allt gerð- ist þetta með skjótum hætti og sam- kvæmt fyrir fram ákveðinni áætlun, hvort sem það var sennilegt eða ekki. Það var sem sé afráðið, að leikritið skyldi enda vel, hvað sem það kost- aði, — jafnvel þótt slíkt væri þvert úr átt við alla heilbrigða skynsemi, og þegar Lísa lauk lestrinum, lá við sjálft, að hún væri orðin umboðs- manninum fyllilega sammála. — Jæja? spurði Cleveland, sem nú var búinn að ganga frá skýlisþakinu og horfði á hana, dökkum, spyrjandi augum. Lísa vissi ekki, hvað segja skyldi. — Segðu mér sannleikann, mælti hann biðjandi. — Og þá komst hún ekki hjá Því. — Þetta eru ekki raunverulegar manneskjur, sagði hún. — Það er það, sem ég tel aðalgallann á leikrit- inu. Þær eru ómerkilegar og heimsk- ar yfirborðsmanneskjur. Venjulegt fólk hagar sér ekki þannig, — það fer ekki stöðugt kringum allar stað- reyndir eins og kettir kringum heitan 24 VIKAW

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.