Vikan - 21.09.1961, Side 29
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Þú skalt var-
ast allar öfgar i vikunni og reyna að fara hinn
gullna meðalveg. Þér berast óvæntar fréttir, lík-
lega um helgina, og skaltu strax fara að þeim
ráðum, sem vinur þinn gefur þér í sambandi við
þær fréttir. Mundu að standa við það loforð, sem þú gafst
fyrir skemmstu. Talan 5 skiptir þig afar miklu í vikunni.
NautsmerkiÖ (21. apr.-—21. maí): Þetta verður
ánægjuleg vika fyrir þig, einkum þó á vinnustað.
Þar gerist margt skemmtilegt, og einn vinnufé-
lagi þinn sýnir á sér nýja og skemmtilega hlið.
Þú ættir að umgangast þennan vinnufélaga þinn
meira. Þeir, sem afmæli eiga í maí verða fyrir miklu láni á
fimmtudaginn. Heillatala 7.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Það verður
í fyrstu einhver óvissa yfir vikunni, en úr því
rætist, áður en langt um líður. Taktu ekki mark
á því, sem ókunnur maður segir þér um einn
félaga þinn. Þú ferð líklega í stutt en skemmti-
legt ferðalag í vikunni, en þá muntu gleyma einhverju, og
mun það koma sér afar illa. Heillatala 12.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú skalt um-
fram allt ekki gera neitt, sem þú ert hræddur
við að misheppnist í vikunni. Líklega á þetta við
eitt áform þitt og eins félaga þíns, sem þið hafið
haft á prjónunum undanfarið. Þið skuluð bíða
með að hrinda því i framkvæmd. Kona, sem þú þekkir lítil-
lega gerir þér ómetanlegan greiða.
LjónsrnerkiÖ (24 júli—23. ág.): Fyrst i stað mun
aílt leika í lyndi i vikunni, en líklega verður samt
eitthvað til þess að varpa skugga á sæluna um
helgina. Þú skalt samt ekki taka það of nærri
þér, þvi að innan skamms rætist lika úr þessu.
Þú hefur verið allt of kröfuharður heima við upp á sið-
kastið, og verður þú að bæta úr þvi.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Það gerist
margt markvert i vikunni, og liklega muntu
skemmta þér óvenjumikið. Þú skalt reyna að
sinna einu áhugamáli þínu í vikunni, þvi að það
getur orðið til þess að þér græðist fé. Þú skalt
ekki binda þig neitt i vikunni, og umfram allt ekki gefa
nein loforð, sem verða til þess að þú verður að hætta við
annað, sem þú hafðir ákveðið.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þú hefur ver-
ið að glíma við eitthvert vandamál undanfarið og
hvorki hefur gengið né rekið, en nú berst þér
loksins hjálp úr óvæntri átt. Mundu að votta rétt-
um aðila þakklæti þitt. Þú hefur verið allt of
lausmáll undanfarið, og nú færð þú illilega að kenna á því.
Fimmtudagurinn verður óvenjulegur dagur.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú átt erfitt
með að taka nokkrar ákvarðanir í vikunni og
lætur um of stjórnast af ráðum annarra. Þú
verður að reyna að fara að hugsa sjálfstætt. Þú
gerir dálítið í vikunni, sem ekki virðist skipta
ýkjamiklu, en sannleikurinn er sá, að þetta skiptir fram-
tíð þína talsvert miklu..
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þetta verður
afar friðsæl vika, og ekki gerist ýkjamargt mark-
vert. Það mun einhver koma með áskorun í þinn
garð, og skaltu ekki taka þeirri áskorun, þótt þú
verðir eitthvað gagnrýndur fyrir það. Þú hefur
vanrækt einn félaga þinn undanfarið, og er það miður. Þeir,
sem fæddir eru undir Bogmannsmerkinu í nóvember verða
fyrir miklu peningaláni.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Það gerist
margt í vikunni, sem verður til þess að þú tekur
framförum, enda þótt þú getir engan veginn
hrósað þér af því sjálfur. 1 sambandi við merkis-
atburð í fjölskyldunni gerist eitthvað, sem veld-
ur þér vonbrigðum. Þú hefur verið allt of latur undanfarið
og er þér réttast að láta hendur standa fram úr ermum.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú verður
óvenjuhirðulaus i vikunni, og verður þetta hirðu-
leysi þitt til þess að þú missir af góðu tækifæri.
Sá dagur vikunnar, sem skiptir þig langmestu, er
sunnudagurinn, en þá muntu fá skemmtilegar
fréttir, sem verða til þess að þú ferð að lifa lífinu öðruvísi
en þú hefur gert til þessa. Talan 5 skiptir þig miklu.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú munt eyða
óvenjumiklu í vikunni, og líklega mestu í fánýta
hluti. Þú virðist ekki hafa farið skynsamlega með
peninga undanfarið, og verður þú að taka á þig
rögg. Á laugardaginn gerist eitthvað, sem þú
hefur lengi beðið eftir, en varst hættur að gera þér vonir
um, að myndi nokkurn tima gerast úr því sem komið var.
m