Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 21.09.1961, Qupperneq 37

Vikan - 21.09.1961, Qupperneq 37
ódýrasti 6 manna vagninn á markadnum FIAT 600 multipla Fiat 600 multipla er hentugur fyrir Verð ca kr. 117.600.00 cDCP&n Laugovegi 178 Sími 38000 Stórar fjölskyldur Iðnaðarmenn sem flytja þurfa menn, vörur og verkfœri milli vinnustaða Verzlunarmenn með litlar verzlanir Sölumenn Arfur frá Brasilíu. Framhald af bls. 25. —. Ég heföi átt a8 taka með mér vasaljós, svaraCi Lísa. En hana hafði ekki grunað Það, þegar hún gekk upp með læknum, að hún yrði þarna fram i myrkur. Fram undan bugðaðist götuslóðinn eins og óljós, dimmgrá rák milli myrkra runnanna. Hún hrasaði um stein, og hann greip utan um hana til að verja hana falli. Hann tók utan um hana, öidungis eins og hann hafði gert í fyrsta skipti, sem þau sáust, hugsaði hún með sér. Og enn leiddi hann hana öruggri og rólegri hendi um grýttan götuslóð- ann, öldungis eins og hann hafði þá leitt hana ut úr tollstöðinni út að bílnum. 1 það skipti fannst henni sem hún yrði fyrir rafiosti við snertingu hans. — Kannski var það líka æsikenndin, sem olli. Þetta voru fyrstu kynni hennar af Ríó, fyrsta skref hennar á braut híns nýja lífs. Að þessu sinní varð hún ekki fyrir neinu raflosti, en það jók á öryggi hennar, að hún mátti styðjast þannig við arm hans. Auk þess var henni aldrei að skapi að vera þarna á ferli úti við, eftir að myrkt var orðið. Þá heyrðist svo mik- ið af ókennilegum hljóðum, þá voru slöngur hvarvetna á skriði, skugg- arnir myrkir og ógnandi. En nú stóð henni á sama. Það lá við, að henni brygði, þegar hann tók til máls. — Lísa, þú getur á- reiðanlega ekki gert þér i hugarlund hve inniiega þakklátur ég er þér fyrir þessa aðstoð þína við leikritið. Hún hló, en þótti þó gott að heyra alvöruna og einlægnina i rödd hans. — Það er vist þetta gamla, að betur sjá augu en auga, svaraði hún. —■ Þú sást, hvers með þurfti, sagði hann'. — Þú hefur gætt leikritið nýju lifi. Hann varð ákafur. — Eg er viss um það, að nú er ég á réttri lelð. Hún brostl i myrkrinu. — Og þá kemur ekki til þess, að þú verðir að selja ritvélina þína? — Ritvéiina. . . Það kom ðtti I röddina, þessu virtist hann gersam- lega hafa gleymt í hrifninguni. — Æ, æ, — ég skulda ykkur mikið fé fyrir fæði og húsnæði, sagði hann í örvæntingu, og nú var hrifningin al- gerlega horfin úr rómnum. — Gleymdu þvi, sagði hún. — Við komumst af einhvern veginn. — En það geta liðið nokkrar vikur, þangað til ég get greitt þér skuldina. sagði hann með vonleysishreim. — Nú á ég eftir að endurrita leikritið, og . . . og hvaða trygingu hef ég svo fyrir þvi, að það verði talið sýningar- hæft að heldur. . . Þau gengu þegjandi nokkurn spöl og hugleiddu máíið. Anna mundi á- reiðanlega greiða skilvislega, og hún hafði ekki minnzt á að fara. Það var alltaf nokkurt fé. Og ef tll vill tækist þeim að lagfæra eitt herbergi enn og verða sér úti um þriðja leigj- andann. . . . — Þetta lagast allt af sjálfu sér, SSffðÍ T En hann hristi höfuðið. — Ég get ekki legið upp á ykkur á þennan hátt — eins og snikjugestur. —■ Það eru ekki neinar snikjur, ef þú greiðir skuldina upp að lokum. — Þakka þér fyrir . . . En það er bara þetta, að nú finnst mér sem ég hafi ekkl tryggingu fyrir neinu, úr þvl að þetta gat komið fyrir. Eg á ekki vist, að Þeir telji leikrltið hafa breytzt til hins betra, þótt mér finn- ist þaö, og þótt svo það verði tekið til sýningar, þá á ég ekkl vist, að Þvl verði tekið jafnvel og hinu fyrra. . . Það var eins og allt hefði hrunið í rúst hjá honum á einni stundu. — En þú varst að enda við að segja, að þú héldir, að þetta væri á réttri leið, sagði Lisa og vildi tala í hann kjark. Cleveland hleypti brúnum. — Já, og ég er í rauninni á þeirri skoðun. En nú skulum við horfast i augu við staðreyndirnar, Lísa. — Beizkju- hreimurinn var aftur kominn í rödd hans. -— Það er ekki nema stutt stund síðan, að ég hélt, að allt sem ég skrifaði, væri hreinasta snilld og gæti bókstaflega ekki betra verið. Bréfið frá umboösmanninum hefur sýnt mér fram á hið gagnstæða, og nú kæri ég mig ekki um að láta blekkjast aftur. Ég gerði réttast að fá mér einhverja vinnu á daginn og skrifa svo á kvöldin . . . og get Þó ekki komið Því við eins og stendur, því að þá hef ég þig ekki mér til að- stoðar, og þá rennur þetta allt út í sandinn aftur. . . . Það var auðheyrt á rödd hans, að honum var alvara um Þetta, og allt í einu fannst Lisu sem hún yrði svo ákaflega hamingjusöm. Þetta, að hann skyldi þurfa hennar við, máði algerlega í brott minningarnar um það, sem forðum gerðist við sund- laugina í Ríó. Hún sagði ákveðinni röddu: — Þú verður hérna, þangað til endursamn- ingu leikritsins er lokið. Þú getur hjálpað Mikka öðru hverju við að mála húsið, ef Þér finnst Það létta á samvizkunni. Og svo bætti hún við, eins og hún vildi fyrir fram kveða niður öll andmæli. — Þú verður, hvort eð er, einn af fjölskyldunni, þegar þú kvænist Marínu. Marín . . . Honum brá. Hann hafði alls ekki munað eftir því siðustu klukkustundirnar, að hún væri til. Hann fann til samvizkubits, en svona var það alltaf, þegar einhver hug- mynd greip mann, — þá var eins og allir og allt, sem var ekki henni eitt- hvað tengt, bókstaflega máðist út. —■ Ég hef ekki enn sagt henni fréttirnar, sagði hann dapurlega. Lisa gat ekki séð svipbrigðí hans I myrkr- inu, en röddin var þannig, að hún 1, flýtti sér að segja eitthvað, sem dregið gæti úr kvíða hans. — Brúðkaupið þarf ekki að drag- ast von úr viti, þótt þetta færi svona. Hvað helduðu, að það taki.þig langan tíma að endursemja leikritið? — Það er ómögulegt að segja, . . . mánuð, . . . kannski einar sex vik- ur. . . En það var ekki frestun brúðkaups- ins, sem haíði valdið honura mestum áhyggjum, lieidur, að ham. liafði lieit- ið Merínu aut of miklu og þótti nú með ullu óvist, að hann gæti nokkurn tíma staðið v ð helminginn aí því. Ef svo færi, aö hann reynd'st þess ekki megnugur aó fylgja sigunum uttir, þá Komst hann ekki hjá þvi að ger- þ eyta öllu.n framtíðaráætlunum sin- u’Ti, — og það mundi ekni vcrða svo aoóvelt að skýra henn: frá því. . . Framhald á næstu síðu. vikam 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.