Vikan - 14.06.1962, Page 14
Tvær aðstoðarstúlkur voru einnig viðstaddar, þær Þuríður Sörensen hjúkrunarkona
og Arnbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarnemi.
Eftir augnablik opnaði hann augun.
Hann skildi strax að það versta var liðið hjá.
14 VIKAN
að beygja af. Tárin komu fram í augun og skeifa á stokk-
bólginn munninn. Ég flýtti mér þess vegna að smella af og
hraðaði mér svo út. Ég leit við um leið og ég gekk fram og
sá að læknirinn tók stóra og skrýtna töng í hægri hönd og
beygði sig niður yfir litla snáðann um leið og hann sagði:
„Vertu nú hraustur, karlinn. Þetta verður ekkert sárt ....!“
Ég minntist Þess er ég stóð þarna i sama herbergi fyrir
nokkrum mánuðum síðan, og hélt þá í höndina á mínum
eigin litia strák. Það var svipuð skeifa á munninum á honum,
og það heyrðist heldur ekki i honum hljóð, en augnaráðið
var dálítið öðruvísi, af því að pabbi hans hélt i höndina á
honum. Það var ekki alveg eins hræðslulegt, — en biðjandi
— eins og hann væri að biðja mig um að gæta sín fyrir
þessum grímuklædda manni, sem stóð yfir honum og ætlaði
að fara að gera eitthvað við höndina hans, sem hafði farið
í þvottavinduna .... Eða þegar ég, var þar nokkrum dögum
seinna með sama piltinn með stóran skurð á höfði, eftir að
hafa dottið á miðstöðvarofn!
Ég gat ekki gætt hans fyrir manninum, en ég gat róað
hann á meðan maðurinn var að sauma hann saman, Þó að
sennilega hafi ég verið töluvert órólegri sjálfur, en hann.
Ég kunni ekki beint vel við mig þarna i stofunni, með strák-
inn minn fastan viðskiptavin, að þurfa að koma þangað í svip-
uðum erindagerðum aftur.
-—O------- ---------------
„Algengustu slys í heimshúsum, og jafnframt oft þau hættu-
legustu, eru eitranir,“ sagði Haukur Kristjánsson læknir, er
ég fór að ræða við hann um algengustu orsakir slysa á börn-
um. „Það er kannski leiðinlegt að þurfa að segja það, en
slíkar eitranir eru oftast hreinni vanrækslu og kæruleysi
að kenna, hjá fullorðna fólkinu."
— Hverskonar eitranir eru það, aðallega?
„Krakkar komast t. d. í sigarettustubba í öskubökkum og
éta þá. Nikótínsýran, sezt til i stubbunum og getur verið mjög
hættuleg, ef smákrakkar taka upp á því að éta þá.“
— Þú segir mjög hættulegt. Áttu við að það geti verið
lífshættulegt?
„Það getur verið það. Ég man að vísu ekki eftir neinu til-
felli hérna heima, þar sem börn hafa dáið af sliku, en það
liei'ur komið fyrir erlendis."
— Ég þarf varla að spyrja Þig ráða um varúðarráðstafanir
gegn þessu Það er auðvitað fyrst og fremst að hafa ekki
öskubakka þar sem börn geta náð til þeirra ....
„Já, og að hreinsa þá oft. Láta sígarettustubba ekki liggja
í öskubökkum lengur en nauðsyr.legt er, ef börn gætu með
einhverju móti náð til þeirra. Annars gildir þetta aðeins
um rnjög ung börn, held ég. Strax og þau fara að stækka,
er rniimi hætta á að þau leggi sér slíkt til nrunns.“
— L’.'u fleiri eiturlyf yfirleitt hættuleg í heimahúsum .. . . ?
„Já, ég er nú hræddur um það. Það eru t. d. allskonar
hreinsivökvar, gólf- og húsgagnabón, þvottalögur eins og t. d.
klorox, se..i Þó er liklega ekki lifshættulegt, vegna þess að
það er ekki svo sterk blanda. Svo er það vítissódi, edikssýra,
sern íólk kaupir stundum í iyfjaverzlunum, acetone, sem
kvenfólk notar til að hreinsa naglaiakk af nöglum og svo
náttúrulega ekki sízt ýmis konar töílur og önnur lyf, sem fólk
geymir oft ótrúlega kæruleysislega."
— Gamlir afgangar og svoleiðis . . . . ?
„Já. Oft og tíðum hefur fóllt enga hugmynd um, hvað í
glösunum er, né hverskonar töflur er um að ræða, og þá
verður það að koma með umbúðirnar til okkar, til þess að
við getum beitt réttri aðferð við lækninguna. Annars er maga-
tæming aö sjálfsögðu gerð þegar í stað. Það er eitt með þvi
algengara, sem við gerum við litla krakka.”
— Það ætti að vera lítill vandi að geyma slík lyi á ör-
uggum stað.
„Já, ef nokkur ástæða er þá til að geyma þau. Þegar fólk
er hætt að vita hverskonar lyf það eru, og miðar dottnir
af glasi eða öðrum umbúðum, þá áiít ég sjálfsagt að henda
innihaldinu, svo það verði engum að skaða. Annars á að
geyma öll lyf á ákveðnum og öruggum stað, þar sem börn
hafa engan möguleika á að ná í þau.“
— Hvert er svo næstalgengasta vandamálið?
„Það eru líklega miðstöðvarofnarnir ....“
— Miðstöðvarofnarnir .. . . ?
„Já, það er eins og þeir séu alltaf beint fyrir framan krakka-
greyin, þegar þau detta framyfir sig. Þau eru að hlaupa u i
og leika sér, og svo detta þau beint framyfir sig. Stundum
er ekkert fyrir framan þau nema bert gólfið, eða gólftepp.,'
stundum stóll eða borð, og Þá meiða þau s!g venjuiega ekki
svo illa, að þau þurfi sérstakrar aðgerðar við. En þegar mið-
stöðvarofn er fyrir framan. þau og þau lenda með andlitið
á skörpum brúnunum, þá er oft illt í efni. Þau koma þá
hingað með djúpa skurði á enni og kinn, en sjaldan er það
mjög alvarlegt."
— Já, ég kannast við þetta af eigin reynsiu. Hvað er annars
helzt hægt að gera við þessu?
„Það er ekki svo gott að segja. Auðvitað er það ekki alveg
sama, hvaða gerð af miðstöðvarofni er um að ræða. Þeir