Vikan


Vikan - 14.06.1962, Side 17

Vikan - 14.06.1962, Side 17
væntanlegum starfsfélögum .... Hann kinkaði kolli vingjarnlega. Leit svo til Einars. — Mig langar til að segja nokkur orð við yður, Einar, ef þér hafið tíma til þess, sagði hann. Eva kvaddi þá og hélt út úr skrif- stoíunni. Þegar hún hafði lokað dyr- unum, tók Ström yfirlæknir að troða í pípu sina. — Þér eruð þreytulegur, Einar, mælti hann. Það er og sízt áð undra, þetta hefur verið erfið nótt. En Það var ekki fyrst og fremst það, heldur allt annað, sem mig langaði til að ræða við yður. Það leyndi sér ekki, að Ström yf- irlæknir átti erfitt með að hefja máls á þvi, sem honum lá á hjarta. Það virtist viðkvæmt mál, og Einar fór að gruna hvað það mundi vera. — Eins og þér vitið, reiði ég mig mjög á álit yðar, sagði hann loks. Og mig langar til að vita hið sanna um hvernig þessu var í rauninni hátt- að með Bertilsen lækni í gær. ■ Skýrsla Ingiríðar hjúkrunarkonu var, satt bezt að segja heldur uggvænleg. Er það satt, að hann hafi verið ölv- aður við skurðaðgerðina? Einar gerði sér það fyllilega Ijóst, að yfirboðari hans treysti honum, og það hafði sínar skuldbindingar í för með sér. Og hann hvorki vildi bregð- ast því trausti né gat Það. Hinsvegar gerði hann sér einnig Ijóst, að fram- tíð Bertilsen, sem verið hafði vinur hans um langt skeið, gat að miklu leyti oltið á svarinu. — Nei, það er of sterkt að orði kveðið að segja að hann hafi verið ölvaður, svaraði Einar eftir nokkra þögn. Síðan sagði hann frá því, hvernig þetta hafði gerzt, og hvers vegna hann hefði sjálfur leyst Bertil- sen af hólmi við skurðaðgerðina. Hann var örvílnaður og ekki fyllilega með sjálfum sér, herra yfirlæknir, sagði hann að lokum. Þér vitið það bezt sjálfur, að hann er mjög fær skurð- læknir, þegar hann nýtur sín. Ström yfirlæknir kinkaði kolli. — Hann hefur að minnsta kosti verið það, sagði hann. Það eru vand- ræði, að hann skuli vera farinn að drekka. Að visu ekki svo, að orð væri á því gerandi, ef ekki væri um lækni að ræða; en það má aldrei koma fyrir að læknir sé skjálfhentur við skurð- arborðið, eða svo mikið sem grunur hvíla á um það, að hann sé undir áhrifum áfengis þegar svo ber undir. Ég kemst ekki hjá því að leggja þetta mál fyrir yfirstjórn sjúkrahússins. Það er annað en gaman, en hvað á ég annað að gera? Ég ber ábyrgðina, bæði gagnvart stjórn sjúkrahússins og sjúklingunum. Þar með mundi framtíð hans gersamlega lögð í rústir, svaraði Bin- ar. Og það væri sannarlega illa farið. Hann var ekki ölvaður, ekki í eig- inlegum skilningi .... það get ég svarið. Að visu veit ég, að hann hefur gert nokkuð mikið að því að undan- förnu að neyta áfengis, en hann hef- ur aldrei verið drukkinn í starfi sínu. Þér vitið hvernig hjónaband hans var, og hvernig það fór. I rauninni er ekki unnt að dæma neinn strangt fyrir það, þó hann leiti á náðir vínsins, Þegar allt gengur honum þannig á móti. Það er ekki öllum léð það þrek, sem með þarf til að standast það. Eri ég trúi því samt statt og stöðugt að hann sigrist á Þessu. Svo eru það líka efnahagsvandamál, sem þjaka honum. Ég legg til að þér veitið honum tæki- færi. Hann er fyllilega þess virði, bæði sem maður og læknir .... I — Ekkert kysi ég einmitt frekar. En hvernig er það —■ er ekki nokkur leið að fá einhverja góða konu til að taka hann að sér? Hann þarfnast þess fyrst og fremst að eignast góða konu og gott heimili. Hvernig er þetta með hann og Grétu? — Hún ann honum hugástum, en það lítur ekki út fyrir að hann hafi einu sinni hugmynd um það. Jæja, kannski augu hans opnist, áður en það var um seinan. Maðúr verður að vona það. Yfirlæknirinn sló öskuna úr píp- unni. — Jæja, mælti hann Þungt hugsi. Ég verð að minnsta kosti að tala við hann og vara hann við. — Ég efast um að það væri hyggi- legt, þegar maður með hans skap- ferli á hlut að máli. Það er ekki gott að vita upp á hverju hann kynni þá að taka. Tilfinnirigar hans eru eins og opin kvika þessa dagana. En ef þér treystið mér, þá skal ég taka málið í mínar hendur, eins og það liggur nú fyrir og reyna að hafa áhrif á hann. — Ég þigg það með þökkum, fyrst þér viljið taka það að yður. Mér þykir gott að sleppa. Ég verð að játa, að mér hefur ekki verið rótt, síöan Ingiríður hjúkrunarkona flutti mér skýrslu sína. En nú skal ég ekki tefja yður lengur. Nú skuluð þér fara heim og hvíla yður .... og skilið kveðju minni til Lilian. Hvernig líður henni annars? Einari vafðist tunga um tönn, þótt hann vissi ekki sjálfur hvað olli. — Hún þreytist enn óeðlilega fljótt. E'n höfuðverkurinn er að mestu leyti úr sögunni. — Gott er það. Hvernig sefur hún? — Yfirleitt vel, en það kemur þó fyrir að ég verð að gefa henni lyf, svo hún sofni... 1 rauninni er ekkert óeðlilegt við það. I ' I ÞEGAR Einar hafði kvatt yfirlækn- inn og hélt á brott, gat hann ein- hverra hluta vegna ekki varizt þeirri hugsun, að það hefði verið eitthvað meira en venjuleg hugulsemi ein- göngu, sem Ström gekk til, þegar þann spurði svo náið um líðan konu hans. Það var eins og hann vildi spyrja: Hvernig er það .... gerir þú eiginkonu þína hamingjusama? Og Einar skelfdist við spurninguna, sem þó hafði ekki verið lögð fyrir hann beinum orðum. Hvernig gat nokkur efazt um að hún væri hamingjusöm? Leit hún þannig út, að það vekti með fólki grun um að svo væri ekki? Eða óafði húh ef til vill gefið einhverjum eitthvað í skyn i þá átt? Nei, það var með öllu útilokað; hún var bæði of dul og of stolt til þess, að hún ræddi þannig einkamál sín. Hann var þess meira að segja fullviss, að Sol- veig Halle, sem var bezta vinkona hennar, átti ekki trúnað hennar í þeim málum. Eflaust var þarna ein- ungis um hans eigin imyndun að ræða. Vitanlega hafði yfirlækninum ekki gengið annað en vinátta og hæ- verska til, er hann spurði þannig. En það var annað, sem var mun alvarlegra í þessu sambandi. Þessi tilefnislausa krufning hans á spurn- ingu yfirlæknisins hjaut að eiga ræt- ur sinar að rekja til slæmrar sam- vizku. Og hvað gat eiginlega valdið slæmri samvizku hans? Hann hafði gert læknisstarfið að lífsstarfi sínu vegna þess að hann unni því, og hafði dreymt um að verða læknir, allt frá k Því hann var lítill hnokki. Gat það »valdið honum slæmri samvizku, þótt Það er örðugt í ann- ríki læknisins að fylgjast með ungri og fallegri eiginkonu. hann rækti það starf, sem var I senn mikilvægt og ábyrgðarmikið, eins vel og honum var framast unnt. Vitanlega unni hann þeim báðum hugástum, Lilian og Súsönnu. Raunar gat Lilian ekki tekið neinn þátt í starfi hans, en hún sýndi þó meiri skilning gagnvart því, en títt var um konur lækna yfirleitt, og var ekki með neitt þref eða Þjark, þótt starfið í sjúkrahúsinu hefði það í för með sér, að hann gæti ekki sinnt heimil- inu nema að takmörkuðu leyti. Það kom ekki oft-fyrir að hann gæti setið heima við arininn á kvöldin í ró og næði —- annað hvort var það nætur- varzlan i sjúkrahúsinu, eða þá sjúkra- vitjanir, stundum langt fram á nótt. Og þegar hann hafði lausa stund, sem sjaldnast var, þá var hann yfirleitt svo þreyttur að hann hafði mesta löngun til að sofa og hvíla sig. Raun- ar var það þá eins oft, að það var Lilian sjálf, sem var svo þreytt, að hún vildi helzt af öllu sofa. Og ekki var heldur neitt einkennilegt við það; hún hafði heimilisstörfin um að sjá, auk þess sem hún var að annast Sús- önnu litlu, og satt bezt að segja, þá var hún ekki neinn þrekforkur. Auk þess hafði hún vanizt rólegu og á- hyggjulausu lífi í æsku, og alltaf átt þess kost að njóta skemmtana- upp einhverja tómstundaiðju, eða eignast einhver áhugamál, mundi henni veitast það auðveldara. Ekki vantaði hana bækurnar, því að bókasafn Patriks gamla frænda var bæði mikið og vandað, en hún hafði ekki mikið yndi af bókum yfir- leitt. Þau höfðu fengið stóran flygil í brúðkaupsgjöf, hið vandaðasta hljóð- færi, sem hún hafði oft leikið á fyrstu árin, en nú kom Það varla fyrir. Og auk þess áttu þau vandaðan útvarps- grammófón og gott plötusafn, en smekkur hennar varðandi hljómlist, var allur annar en hans — öll sí- gild tónlist þótti henni leiðinleg, eða hún gat ekki notið hennar, en það þótti honum aftur á móti hin bezta hvíld. Hann hafði gert sér vonir um, að sér mætti takast að breyta smekk hennar smám saman, en það var öðru nær. Með öðrum orðum — hann hlaut að horfast í augu við staðreyndirnar, hann vanrækti hina ungu og fögru eiginkonu sina, og Það var skylda hans að géra þar breytingu á. Hann ákvað að nota væntanlegt sumarleyfi sitt til langferðalaga með henni. Sús- anna litla var orðin fjögurra ára, Eva mundi fúslega taka það að sér að sjá um hana meðan Þau væru fjarver- andi, svo það var ekki neitt vanda- lifsins í höfuðborginni, svo það varlip,i _ __ , „ -4. sízt að undra, þótt henni hefði ekkife|mal- D£er Krfm’ raðskonan og Bnt. enn tekizt að fella sig við lífið í af-Évlnnukona ------ """ ■m skekktum smábæ. Ef hún hefði tekið" þeirra læknishjónanna, Framliald á bls. 38. TIKAM 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.