Vikan


Vikan - 14.06.1962, Page 33

Vikan - 14.06.1962, Page 33
s Toni heimapermanent gerir hár yóar mjúkt, gljáandi og meófærilegt Með TONI fáið þér fallegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að „leyniefni" Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér þurfið aðeins að bregða greiðunni í hárið, til þess að laga það, Ekkert annað permanent hefir ,,leyniefni“, það er eingöngu Toni. Toni er framleitt i þremur styrkleikum REGULAR fyrir venjulegt hár SUPER fyrir mjög fínt hár GENTLE fyrir gróft hár, skolað og litað hár Einn þeirra er einmitt fyrir yður. Toni framleiðslatryggirfegursta hárið sig. Hann gekk út hægum skrefum. „Josée ....“ sagði Eva. „Þetta var harla léleg fyndni.“ „Alls ekki. Alan skildi hana full- komlega." Hún fékk sér sígarettu og hönd hennar titraði. Það tók Brandon fulla minútu að hafa uppi á kveikjaranum sínum og tendra logann. « „Um hvað vorum við annars að tala?“ spurði Josée. Hún fann fyrst og fremst til þreytu. * 00000 Bilhurðin skall að stöfum og Josée stóð titrandi upp við hana. Kinnel- systkinin störðu Þögul á hana. Hvergi ljós í húsinu. Þó stóð Chevrolettinn þar fyrir utan. „Hann hlýtur að vera sofnaður," sagði Eva, af lítilli sannfæringu. Josée yppti öxlum. Nei, ihann var ekki sofnaður. Hann beið þess að hún kæmi heim. Það mundi koma til harðrar sennu. Hún hræddist senn- ur, alla ósátt og átök og, þegar Alan var annarsvegar, öll orðasklpti. Samt sem áður gat hún einungis sjálfri sér um kennt. „Ég er heimskingi,“ hugsaði hún með sjálfri sér eins og svo oft áður. „Erkiflón. Hvers vegna gat ég ekki haldið mér saman?" I örvæntingu sinni sneri hún sér að Brandon. „Ég held ég hafi ekki neinn kjark í mér til þess,“ sagði hún. „Komdu rnér út á flugvöll, Brandon, lánaðu mér fyrir farinu. Eg held heim til Krakklands aftur.“ „Það geturðu ekki," sagði Eva. „Það væri svo .... svo .... skræfulegt.“ „Skræfulegt, skræfulegt .... Hvað gerir það eiginlega til? Ég er aðeins að reyna að komast hjá vitagagns- lausu rifrildi, það er allt og sumt. Þú talar eins og skátastelpa. Skræfu- legt ....“ Hún stóð á öndinni, leitaði örþrifa- ráða til að komast úr sjálfheldunni. Hún átti það yfir höfði sér að hún yrði gagnrýnd, af þeim sem hafði íullan rétt til þess. Það var tilhugs- un sem hún hafði aldrei getað þoiað. „Hann hlýtur að bíða komu þinnar,“ sagði Brandon. „Þetta hlýtur allt að hafa fengið mjög á hann.“ Þau töluðu í hálfum hljóðum, öll þrjú. Þau minntu mest á óttaslegna samsærismenn. „Allt i lagi,“ sagði Josée. „Þessi undanbrögð koma mér ekki að neinu haldi. Það er bezt fyrir mig að fara inn.“ „Þætti Þér kannski betra að við dokuðum eitthvað við?“ Svipur Brandons var þrunginn harmrænni göfugmennsku. „Minn gamli aðdáandi hefur tekið mig í sátt,“ hugsaði Josée með sér, „en með blæðandi hjarta.“ Hún brosti sem snöggvast. „Hann drepur mig ekki,“ sagði hún, og þegar hún sá skelfingarsvip þeirra, bætti hún við með áherzlu. „Og jafn- vel þótt svo færi ....“ Hún veifaði hendi til Þeirra i kveðjuskyni og afréð að taka örlög- um sinum. 1 París hefði þetta allt orðið með öðrum hætti; Þá mundi hún hafa eytt nóttinni í hópi kátra kunningja og ekki snúið heim fyrr en undir morgun, alltof þreytt til að kviða senunni. En hérna hafði hún verið í slagtogi við tvo stranga gagn- rýnendur, og smám saman hafði hún glatað þeim litla kjarki, sem fyrir hendi var. „Kannski drepur hánn mig,“ hugsaði hún, „hann vantar að minnsta kosti ekki brjálsemina til þess.“ En í rauninni lagði hún ekki neinn trúnað á það. Innst inni fyrir mundi þetta vekja hjá honum fögn- uð, hann mundi taka fegins hendi svo ákjósanlegri átyllu til að kvelja og pína sjálfan sig. Hann mundi krefja hana sagna um hvert smá- atriði, hvert .... „Guð minn góður," hugsaði hún, „hvað er ég að vilja hingað?“ Hún óskaði sér heim, til móður sinnar, í sitt gamla umhverfi, í hóp vina og kunningja. Hún hafði sett sér að öðlast yfirborðsfágun, ferðast, giftast, komast úr landi. Hún hafði talið sér trú um að það væri unnt að stokka upp spilin. Og nú, þessa molluheitu nótt á Florida, þegar hún lét hallast upp að dyrastafnum, lang- aði hana til að kjökra, kalla á hjálp, haga sér eins og tíu ára telpukrakki. Hún hratt upp hurðinni, nam staðar i myrkrinu fyrir innan. Kannski var hann líka sofnaður. Kannski átti hún að læðast á tám að rúminu svo hann yrði hennar ekki var. Hún varð skyndilega gripin æsilegri von. Þann- ig var það þegar hún kom heim úr skólanum með lélega einkunn, þegar hún stóð á þröskuldinum, hlustaði og reyndi að átta sig á því sem hún heyrði að innan. Voru boðsgestir hjá foreldrum hennar? E'f svo var, hafði hún ekkert að óttast. Tilfinningin var nákvæmlega söm, og óljóst gerði hún sér grein fyrir þvi að hún var ekki hótinu hræddari við bálreiðan bónda sinn nú, en hún hafði verið fyrir fimmtán árum við foreldrana, sem voru ekki sérlega uppnæmir fyrir núlli í landafræði, jafnvel þótt það væri einkadóttir þeirra, sem ! hlotið hafði þá einkunn. Ef til vill voru hámarkstakmörk varðandi samvizku- bit, varðandi óttann við afleiðingarn- ar og ef til vill náði maður því há- marki í eitt skipti fyrir öli á tólf ára aldri. Hún þreifaði eftir rafmagns- rofanum og kveikti. Alan sat á legu- bekknum og horfði á hana. „Þá kemurðu," sagði hann heimsku- lega. Og hún beit á vörina. Hún lá við höggi, en hann hlifði henni. Hann var fölur, en flaska hvergi sjáanleg í námunda við hann. „Hvers vegna siturðu í myrkrinu?“ tók hún til máls.' Og hún settist með hógværð skammt frá honum. Hann strauk hendi um hvarma sér, eins og hann gerði svo oft, og skyndilega fann hún vakna hjá sér löngun til að leggja VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.