Vikan


Vikan - 26.07.1962, Síða 16

Vikan - 26.07.1962, Síða 16
Andartaki síðar laumaðist Gústav út á eftir henni. Þá stóðst Lilian ekki mátið. Hún hvarf út á eftir þeim. Fyrst í stað gat hún ekki komið auga 4 þaú, en svo heyrði hún eitthvert þrusk .... Gústav stóð við sýrenu- runnan og svo var að sjá, sem hann væri að svipast eftir einhverjum. Loks kallaði hann lágum rómi út i myrkrið á Evu. Lilian læddist á bak við tré. Hvað gat hann viljað henni? .... En allt í einu þóttist hún mega skilja hvað var. Eva hafði lagt snöru sína einnig þar. Það var þá hún, sem átti sökina á því, hve gerbreyttur hann var í viðmóti að undanförnu. Skinhelgar manneskjur eru öllum hættulegri, Það sannaðist hér. En nú skyldi Eva ekki leika lengur á hana eða aðra. Einar skyldi fá að vita hvernig hún var í rauninni, þessi læðimús. Ætli honum mundi ekki koma það á óvart .... Nú óttaðist hún það ekki lengur, band með okkur nokkra undanfarna mánuði, henni og mér. En nú er ég staðráðinn í að slíta því. Þoli það ekki lengur. Hún yfirgefur Eineir aldrei, það er mér loks ljóst þótt seint sé. Hún fórnar aldrei þeim lífsvenj- um, sem hún er orðin samgróin. Ég á ekkert nema skuldir, en Einar er auðugur og stendur til mikils frama. Ég get ekki boðið henni neitt, sem jafnast á við það i hennar augum. — Þú hefur heiðarleika þinn. Þú verður að verja hann, Gústav, slíta af þér fjötrana. Þetta sæmir þér ekki. — Heldur þú í rauninni að mér megi takast að slíta fjötrana? Treystir þú mér til þess, Eva? Lilian ýtti liminu frá með ýtrustu varúð, svo hún gæti greint þessar tvær skuggaverur. Hún sá að Eva lyfti armi, og af hreyfingum hans gat hún ráðið að hún stryki Gústav um hárið, eins og hún vildi hugga hann. mér annað en fýsn, sem veldur því að ég hef andúð og vi,ðbjóð, bæði á sjálfum mér og henni. Þú ein getur bjargað mér, Eva. — Þú ýkir í örvæntingu þinni, vin- ur minn. Við skulum tala betur um þetta seinna. Þú manst að ég hét þér nóttinni i nótt .... en eftir þessi orð þin get ég ekki staðið við það heit. Eigi að takast með okkur náin .... vinátta, þá má hún ekki eiga sér það upphaf, að hún sé fyrirfram dæmd. Það hlýturðu að skilja.... Nei, nei, Gústav .... þú mátt ekki .... mátt ekki eyðileggja allt .... Skilurðu mig þá ekki Eva spratt á fætur, en Gústav vafði hana örmum. — Þú mátt ekki fara. Það er ein- ungis ást þín, sem getur bjargað mér. Hvar hef ég eiginlega haft aug- un, Eva? Þú ert töfrandi .... — Ég vil ekki blekkja þig, Gústav. Ég skal segja þér sannieikann, fyrst sig af honum og tók á rás, hann veitti henni eftirför út í myrkrið — og Lilian elti þau ósjálfrátt og án þess að gera sér það ljóst. Eva kleif upp lága hæð og hélt áfram flótt- anum, en Gústav greip báðum hönd- um um höfuð sér, hætti eltingarleikn- um og sneri heim að setrinu. En Eva hljóp enn •— og Liiian vissi hvert stígurinn lá. Gripin æðislegum fögn- uði veitti hún Evu eftirför . .. Lilian nam staðar í myrkrinu og hlustaði, og hver taug í líkama henn- ar var spennt til hins ýtrasta. Hún heyrði steina velta undan fótum Evu; það þýddi að hún væri komin niður í snarbrattan hallann að brún grjót- námunnar hinum megin, en þar tók við margra mannhæða hengiflug að botni námunnar Það var óhugsandi með öllu að Evu mætti takast að stöðva sig i hallanum, auk þess sem hún gat ekki séð hvað við tók, hafði ekki neinn grun um það heldur, því FRAMHALDSS AGAN 9. HLUTI EFTIR BODIL ASPER að Eva mundi geta hróflað við því, sem henni var hjartfólgnast — því efnahagslega öryggi, sem Einar veitti henni. Og hún skyldi lika finna ráð $il þess að Gústav missti allan áhuga á þessari lítilfjörlegu hjúkrunarkonu sem ekki átti einu sinni utan á sig leppana. Á einu vetfangi hafði hatur Lilian á Einari beinzt að Evu, það var hún, sem átti upptökin að því, hve allt hafði gengið úrskeiðis fyrir henni að undanförnu. En nú skyldi svipt af henni sakleysishjúpnum. Hún heyrði Evu svara lágt við kirsuberja- tréð, heyrði Gústav hvisla heitum, æstum rómi, en gat ekki greint orð- in. Hjartað barðist ákaft I barmi hennar, hún hélt niðri í sér andan- um og laumaðist á milli trjánna, enn nær þeim, unz hún gat heyrt hvert orð þeirra án þess að eiga á hættu að þau yrðu hennar vör. — Jú, það er hverju orði sannara, það hefur verið hið nánasta sam- — Ég treysti þér, Gústav, hvíslaði hún. Ég treysti þér .... Lilian opnaði munninn og hefði rekið upp hljóð ef raddböndin hefðu ekki brugðizt henni. Og hatursglott lék um varir henni, þegar hún sá Gústav krjúpa á kné og leggja höfuð sitt i skaut Evu. — Hjálpaðu mér, Eva. Ég þarfnast þín .... þú ein getur hjálpað mér ... — Ég vildi óska að ég gæti Það. En hvernig ætti ég .... — Þú ert svo góð og hrein. Þú getur gert mig að manni. Ég veit ósköp vel, að ég er þin ekki verður. Ég hreyfst af þér í fyrsta skipti sem ég sá þig, og þó þú gerir þér að sjálf- sögðu ekki grein fyrir því, þá á ég það þér að þakka að mér er orðið ljóst hversu ósæmandi samband okkar Lilian er. Ég hef ekki komizt hjá því að bera ykkur saman. Þið eruð eins ólíkar og tilfinningarnar sem þið vek- ið hjá mér. Lilian vekur ekki hjá þú knýrð mig til Þess. Þegar ég hét þér nóttinni í nótt, var það alls ekki af því að ég væri ástfangin af þér. Ekki einu sinni hrifin af þér. Það var eingöngu af örvæntingu. Þá kom mér ekki heldur til hugar að þú hefðir raunverulega þörf fyrir vináttu mína. Nú horfir þetta allt öðru vísi við. Það er eingöngu einlæg og innileg vinátta, sem ef til vill gæti bjargað okkur báðum — og þeirri leið megum við ekki loka. Slepptu mér .... vinur minn .... — Nei, nei .... ég sleppi þér ekki. Og loforð þitt skaltu verða að efna. Kysstu mig .... Rödd hans skalf af ástriðu. Lilian kannaðist við hana þannig og hún vissi lika að öll mótspyrna varð ein- göngu til þess að espa hann og eggja. Hún sá hvernig Eva hratt honum frá sér og hvernig hann þreif til hennar aftur, vafði hana örmum og reyndi að leggja hana i grasið. En hún sleit hún hafði aldrei komið þangað i björtu. Lilian stóð sem niðurnegld en hugsanir hennar og skynjanir voru því hraðari. Eftir tvær eða í mesta lagi þrjár mínútur mundi hún heyra skelfingarvein Evu þegar hún rynni niður brattann og fram af brúninni, og hún ákvað að halda heim eins og ekkert hefði ískorizt, þegar það væri Þagnað, og taka þátt í veizlu- gleðinni. Það gat liðið á löngu að E'vu yrði saknað, og leit yrði ekki gerð að henni fyrr en birti. Engan mundi nokkurn tíma renna grun i að Lilian hefði verið nærstödd þegar hún hrapaði, enn síður að það hefði verið á hennar færi að koma í veg fyrir að hún færi fram af brúninni. Örlögin höfðu skyndilega snúizt á sveif með henni; Eva, sem hafði laumazt inn á heimilið í Fosshlíð og engu munað að henni tækist að leggja það í rúst, mundi hverfa úr sögunni i næstu andrá fyrir fullt 16 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.