Vikan - 26.07.1962, Blaðsíða 34
Yolanda syngur. f
Framhald af bls. 28.
eru á myndinni Dave Lambert, sem
er sköilóttur og gráskeggjaður, síð-
an er það söngkonan Annie Ross>
sem er skozkrar ættar, bún söng
með bijómsveitum i Englandi fram
til tvítugs, en fór þá tii Bandaríkj'
anna þar sem bún náði (jazz)-
be.msfrægð og þá er það negrinn
John Hendricks.
l.ambert-Hendricks-Ross tríóið
hiaut trægð lyrir jazzsöng sinn, sem
nyggist á þvi að þau syngja gamlar
jazzhljpmsveitarplötur tón fyrir
ión og hefur Hendricks gert texta
við hljómsveitarkafiana, sólór og
allt hvað eina. Textar hans eru
nrem snilld.
Tríó jjetta hefur lialdið saman i
fjögur ar, en þegar þau voru á
hijómleikaferðalagi 1 Englandi fyr-
ir nokitrum vikum þá greip heim-
þráin um sig og Annie Ross ákvað
að verða eftir þegar þeir félagar
íóru aftur heim tii USA. Þeir réðu
i hennar stað, söngkonu, sem um
ieið var jjekktasta jazzsöngkona
heims, við það að syngja í þessu
iræga triói, söngkonu, sem, ótrúlegt
en satt, söng hér á iandi fyrir
nokkrum árum, án þess að eftir
henni væri tekið, nema af þeim sem
gáfu góðum jazzsöng gaum, söng-
itonu, sem kallar sig Yolanda.
essg.
Gamla myndin.
Framliald af hls. 28.
á trommur og verzlar með liljóð-
færij, Gísii Einarsson, tenór-saxó-
íónn og harmonika (hann leikur
ekki lengur, en er nú starfandi bíl-
stjóri). — Sitjandi er svo borvaldur
Steingrímsson, sem líklega hefur
ieikið á klarinet, altó-saxófón og
i'iðlu (Þorvaldur er nú búsettur í
USA). ★
Halldór Hansen segir:
Framhald af hls. 13.
og slítur mann þannig úr sambandi
við daglegar áhyggjur og annir. Það
sem flesta bagar nú á dögum, er
einmitt þetta, að menn losna aldrei
úr þeirri spennu, sem sífelld ein-
ijeiting við hin daglegu störf skap-
ar, en það er einmitt orsölt ýmissa
ltvilla í liinu margslungna nútíma-
þjóðfélagi. Fyrir fjölmarga þeirra,
sem þannig er ástatt um, gæti það
áreiðanlega reynzt heillavænlegt
læknisráð að byrja að iðka golf.
Niðurstaðan í svari minu er því
þessi: Ég stunda golf, af því að það
er spennandj og skemmtileg iþrótt,
andlega og líkamlega holl. ★
Svifflugmaðurinn segir:
Framhald af hls. 12.
meðbræður hans á jörðu niðri
skjálfa og bölva norðanrokinu,
íþróttir faila niður á Laugardals-
velli og heita vatnið er á þrotum,
eða þegar sólin skín í heiði og
góðviðrisbólstrarnir dreifa sér um
loftið og svifflugmaðurinn nýtur
einverunnar glímandi við taflborð
himinsins, þess fullviss að komast
hvert á land sem er, þar sem sólin
skín — en laxinn liggur i leti i
*|skugga árbakkans Og stigvéíið Íekúf.
Þegar skaparinn vökvar jörðina,
kynnir svifflugmaðurinn sér veður-
fræði, flugeðlisfræði, reynslu og
affek annarra svifflugmanna Og
ræðhr óráðnar gátur síns eigin
fliigs. Ef. hægt að verja tómstund-
um sinum betur?
Ég tel svifflugið vera iþrótt
íþróttanna fyrst og fremst vegna
þess, að svifflug geta allir iðkað,
kouur jafnt sem karlar, allt lil elli-
ára og stöðugt bætt við leikni sína
og þekkingu.
Með virðingu fyrir öðrum íþrótt-
um. ★
Ólafur Bjarki segir:
Framhald af bls. 13.
unum o. s. l'rv., og svo upptekinn
verður maður, að allt annað gleym-
ist.
Þá má segja, að svarið sé að mestu
komið: Eg leik golf vegna fjöl-
breytni iþróttarinnar, vegna þess,
að Jjað býður upp á ný og ný við-
fangsefni og ef til vill ekki sizt
vegna þess, að í golfi gleymir mað-
ur hókstaflega öllu hinu daglega
argaþrasi. ★
Brjónuð drengjaföt.
Framhald af bls. 25.
jafnlangar framstykkinu, er mælt á,
til Jjess að fá vídd i buxurnar.
Mælið á Jjannig: prjónið þar til
8 1. eru eftir á prjóninum, snúið þá
við, takið fyrstu 1. óprjónaða frain
af prjóninum og prjónið til baka,
þar til 8 1. eru eftir, snúið liá aftur
við, takið fyrstu 1. óprj. og prj. Jjar
til lö '1. eru eftir. Snúið þannig við
með 8 1. millibili, Jjar lil 32 1. eru
báðum megin, prjónið þá umf. á
enda. Takið prjóna nr. 2 og prjónið
brugðning, eftir 2 cm eru gerð 2
hnappagöt, yfir 3 1., sitt hv. megin
við 32 miðlykkjurnar.
Hnappagötin eru gerð þannig að
fella af 3 1. og fitja síðan upp 3 1. í
næstu umferð yfir Jjeim affelldu frá
fyrri umferð. Prjónið brugðninginn
áfram þar tii hann mælist 3 cm og
feilið af.
Axlabönd: Fitjið upp 14 1. á
prjóna nr. 2 og prj. 1 1. sl. og 1 1. hr.
42 (45) cm. Fellið af. Prjónið ann-
að axlaband eins.
Pressið nú öll stykkin mjög laus-
lega frá röngu eða leggið þau á
þykkt stykki, mælið form Jjeirra út
með tituprjónum, leggið rakan klút
yfir og látið Jjorna vel áður en
hreyft er.
Gangið frá öllum endum. Saumið
saman hliðar-. og ermasauma með
úrröktu garninu og aftursting.
Takið upp hálsmál, 123 (129) 1.
með jöfnu millibili á prjóna nr. 2
og prjónið 1 I. sl. og 1 1. br.
Prjónið saman 2 1. við miðju í
annarri hv. umf. (alltaf frá réttu).
Prjónið 2 cm og fellið af.
Saumið buxurnar saman á sama
hátt og peysuna. Takið upp 90 1. í
skálmarstað (helzt 4 prjóna) á prj.
nr. 2. Prjónið 2 cm brugðning og
fellið af.
Gangið frá hnappagötunum með
kappmelluspori.
Festið tölur á axlaböndin, saum-
ið þau föst að framan, leggið á mis-
víxl og hneppið að aftan. ★
34 VIKAN