Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 8
BIBLÍAN
RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA
BIBLÍAN — RIT HENNAR I MYNDUM
OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóða-
útgáfu. Myndirnar, sem danska listakon-
an Bierte Dietz hefur gert, eru litprentað-
ar í Hollandi, en textinn er prentaður hér-
Iendis. Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor, hefur annazt útgáfuna og ritar inn-
gang og ágrip af sögu íslenzkra Biblíuþýð-
inga frá upphafi. — Þetta er vönduð og
glæsileg myndabók, sem hefur að geyma
nýstárlega túlkun á Heilagri ritningu.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
Dreymdi Vikuna!
Kæri draumráðandi!
Fyrir nokkru dreymdi mig
þennan draum, sem mig langar
til þess að biðja þig að ráða.
Ég var stödd í ókunnu um-
hverfi ásamt vinkonu minni og
einhverjum, sem ég vissi ekki þá
hverjir voru. Við vorum að flýja
eða fela okkur fyrir einhverjum.
Við hlupum þarna að húsi, kom-
umst þar inn og fórum ótal
krókaleiðir þar til við komumst
á áfangastaðinn. Ég var síðust
og í eitt skiptið urðum við að
stökkva niður um gat til þess að
komast á hæðina fyrir neðan. í
fallinu hélt ég allt í einu á mörg-
um pennum, en missti þá þegar
ég kom niður, svo að þeir
hrukku allir í sundur. Þar sem
ég var að flýta mér, gat ég ekki
sett þá saman, heldur leitaði að
einhverju til að setja þá í. Það
var ruslakarfa þarna nærri og í
henni voru blöð. Ég tók eitt
þeirra og vafði utan um penn-
ana. í sama bili kallar vinkona
mín og spyr, hvort ég sé ekki að
koma. Ég svara „Jú“ og þýt af
stað og fyrir horn á þessum
gangi og niður stiga, sem þarna
var. Það var maður að þvo stig-
ann, en ég skipti mér ekkert af
honum og stefndi að opnum her-
bergisdyrum, því að ég heyrði
að félagar mínir voru þar. Það
var mjög bjart þarna inni og
þegar ég kemst loks inn í her-
bergið, er ég alveg að niðurlot-
um komin og læt mig falla nið-
ur á hjónarúm. í rúminu lágu
tveir strákar, annar dökkhærð-
ur, en hinn ljóshærður, og voru
það þeir, sem með okkur vin-
konunum voru, þótt ég hefði
ekki séð þá fyrr. Stuttu seinna
kemur svo þvottamaðurinn og
býður okkur sælgæti, sem við
þáðum. Ég veit ekki hvort við
erum búin að vera þarna lengi,
en allt í einu er ég og sá Ijós-
hærði farin að skoða VIKUNA
því miður man ég ekki hvaða
tölublað það var) og sitjum
saman í rúminu og erum í ein-
hverjum ástarhugleiðingum. —
Hann heldur utan um mig og
mér finnst ég vera hrifin af hon-
um, en við kunnum ekki við að
fara að ,,kela“ þarna að hinum
ásjáandi. Þau voru ekkert að
draga sig saman að því er virt-
ist. Vinkona mín stóð alltaf úti
á gólfi. Einhvern tíma varð okk-
ur litið út um gluggann og sá-
um þá stelpu með hest burðast
upp brekku dálítið fjarri. Við
hlógum og sögðum, að hún
mundi aldrei finna okkur hér.
Það var einkennandi fyrir
þennan draum, hvað flýtirinn
var mikill á öllu. Það skal tekið
fram, að ég hef alltaf verið
hrifnari af dökkhærðum strák-
um en ljóshærðum.
Með fyrirfram þökk.
E.
Atarna var kúnstugur draumur
og engan veginn auðveldur við-
ureignar. En ekki getur hann
táknað neitt illt, fyrst Vikan
kemur þarna við sögu! Gaman-
laust mundi hann líklega vera
fyrir freistingu, sem þú fellur
fyrir, og áreiðanlega er hún á
sviði ástamála. Þú munt lifa í
eins konar feluleik í nokkurn
tíma og ekki trúa neinum fyrir
leyndarmáli þínu nema vinkonu
þinni, sem aðstoðar þig dyggi-
lega við laumuspilið og bregzt
þér hvergi, eins og hennar var
von og vísa. En mögulegt er, að
þvottamaðurinn merki, að fyrst
þú kemur ekki til móts við ætt-
ingja þína og velunnara, þá
komi þeir til þín. Og þar sem
þvottamaðurinn býður ykkur
sælgæti, þá hefur að öllum lík-
indum allur óttinn og allt
laumuspilið verið ástæðulaust.
Svefn í draumi
Kæri draumráðandi!
Gætir þú veitt mér upplýsing-
ar um, hvað svefn táknar í
draumi? Mig hefur nokkrum
sinnum dreymt, að ég væri sof-
andi og þykir það anzi skrítið.
Þegar maður hugsar um það, er
það meira en lítið kúnstugt að
vera sofandi og dreyma að mað-
ur sé sofandi!
En sem sagt: Spurningin er,
hvað táknar svefn í draumi?
Með beztu kveðjum og kæru
þakklæti fyrir óborganlegar
ánægjustundir.
S. M.
„Það mun vera fyrir lasleika að
dreyma sig eða aðra sofandi.
Fyrir vonbrigðum er að sofna
hjá stúlku og skaða að sofa hjá
bróður eða systur. Dreymi gifta
konu, að hún sofi í faðmi manns
síns, er það fyrir því, að hún fær
slæmar fréttir af honum. Öfugt
er þetta með manninn. Það er
fyrir hörmulegu mótlæti og jafn-
vel ævilöngu böli að dreyma
sjálfan sig sofandi í kirkjugarði.
Dreymi mann að hann veki
marga aðra í svefni, er það fyrir
því, að hann ber fram eitthvert
mál, sem horfir til almennings-
heilla.“ — Þessi klausa var tek-
in úr ágætri draumráðningabók
og höfum við engu við liana að
bæta.
8 VIKAN
8. tbl.