Vikan


Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 5

Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 5
# vísur vikunnar Heimsins voldugu herrar hyggja sem fyrr á stríð. Arabar eygja í sigti ísraels hrjáðan lýð. í mannúð og allri mildi er mörgum sem yfirsést Allah og Jehova eru á öndverðum meiði um flest. Þungbúnir fjandaflokkar föndra við stál og blý biðandi þess að berjast þó báðir tapi á því. Rex Harrison ekki af baki dottinn Batnandi manni er bezt að lifa Það er ýmist sagt að hann standi í skilnaðarmáli, eða það er dregið til baka; enginn veit það sanna í málinu. Rex Harri- son kvæntist Rachel Roberts fyr- ir átta árum. — Við búum sam- an í dásamlega stormasömu hjónabandi, sagði Rex nokkru eftir brúðkaupið. Þetta er hans fjórða og hennar þriðja hjóna- band. Rex virðist hafa haldið storm- inn út í átta ár, en nú er sagt að þau hjón séu að skilja og ástæð- an fyrir því sé hin þrjátíu og þriggja ára gamla Elizabeth Harris, aðalsmannsdóttir og enn- þá eiginkona leikarans Richard Harris. Frú Rachel neitar því alger- lega að um skilnað sé að ræða. — Ég dái og elska Rex, segir hún. — Ég hefi ekkert á móti því að hann eigi vinkonur, til dæmis hefi ég ekkert á móti Elizabeth Harris! Rex, sem er orðinn sextíu og tveggja ára, segir: — Ég skil ekki konu mína. Það er bezt að • Eiginkona, sem hefur stjórn á skapi sínu, hefur í flestum til- fellum fullkomna stjórn á mann- aumingjanum sínum. • Þótt kvenfólkið sé sjaldan handsterkt tekst því samt alltaf einhvern veginn að skrúfa lokið þannig á niðursuðuglasið, að hver meðalsterkur karlmaður sé minnst 20 mínútur að ná því af. • Rannsóknir hafa sýnt, að menn eru skapverstir, rétt áður en kallað er til máltíða. Á hinn bóginn eru menn aldrei bónbetri en þegar þeir eru nýbúnir að borða. • Karlmenn vita venjulega, hvenœr þeir eru ókurteisir, en kvenfólk veit það aldrei. segja söguna eins og hún er, við búum alls ekki lengur saman! Hvar þetta endar er ennþá ó- ráðin gáta ... -fc Albert Zubrinski heitir kaup- maður nokkur í Los Angeles. Hann hefur verið í þungu skapi að undanförnu og hefur vissu- lega ástæðu til þess. Bófar heimsóttu hann nýlega, rændu af honum 900 dollurum og kvöddu með þessum kulda- legu orðum: — Þetta er hreint engin um- setning hjá þér, góði. Viku seinna komu þeir aftur og fundu þá 4500 dollara, sem þeir hirtu auðvitað, en létu þessi orð fylgja með: — Þetta er að koma hjá þér, góði. Afkvæmi Ijónynju og hlébarða í dýragarðinum Hansin-Park- Zoo, sem er á milli Osaka og Kope, hefir nýlega tekizt að fá afkvæmi ljónynju og hlébarða, og eru hvolparnir nefndir „Leo- pon“, sem er tekið af ensku orð- unum leopard og lioness. Hinir stoltu foreldrar eru „Sonoko“, móðirin, sem vegur 135 kg, og er nokkuð þungbyggð, miðað við föðurinn „Kaneo“, sem vegur aðeins 32 kg. Forstjóri dýragarðsins hafði ekki svo mikl- ar áhyggjur af stærðarmun dýr- anna, heldur skapferli rándýr- anna, sem gat boðið upp á nokkra hættu. En með hormónasprautum var hægt að koma á vinsamleg- um samskiptum, svo að nú eru þrír hvolpar þarna, sem í raun og veru eru ný dýrategund. Hvolparnir eru undir ströngu eft- irliti og virðast dafna vel. ☆ 25. tw. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.