Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 7
Svar til „einnar
örvæntingarfullrar“
Mjög sennilega reynist ótti
þinn á rökum reistur, eins og þú
ættir nú að vera búin að kom-
ast að. Ef það kemur ekki fram
á þann hátt, muntu eiga, engu
að síður, í einhverjum erfið-
leikum og þá sennilegast í sam-
bandi við þessa menn — heldur
þó hann sem átti afmælisdag-
inn.
Vilja til sjós
Elsku Póstur!
Við erum hérna tvær stelpur
á Akureyri sem langar mjög
mikið til að vita í hverju messa-
starf á skipi er fólgið og hvort
aðeins strákar séu ráðnir sem
messar. Einnig hvaða menntun
skipsþernur þurfi að hafa, og
hvort einhver aldurstakmörk
gildi varðandi þessi störf.
Tvær með útþrá.
P.S. Hvernig er skriftin?
Messarnir vinna einkum aðstoð-
arstörf í eldhúsi, borðstofum og
fleira af því tagi. Ekkert ætti að
vera því til fyrirstöðu að stúlk-
ur komist í þessi störf, að
minnsta kosti ræður Skipaútgerð
ríkisins á skip sín vikastúlkur,
sem gegna svo að segja sömu
störfum og messadrengir. Engr-
ar sérstakrar menntunar er kraf-
izt til messastarfa eða til hins
að verða skipsþerna, en stúlkur
geta í hvorugt komizt fyrr en
þær eru orðnar átján ára.
Skriftin er ósköp snotur.
Ásgerður á plötu
Kæri Póstur!
Ég sá hjá þér um daginn bréf
þar sem var spurt hvort hún Ás-
gerður Flosadóttir ætti ekki að
syngja „Það var sólskin þann
dag“ inn á plötu og þú svaraðir
því til að ekkert slíkt væri í bí-
gerð.
Þar hafðir þú rangt fyrir þér,
því sú plata er einmitt á leið-
inni — og hinum megin er
„Friður á jörðu“ (Give Peace a
Chance), flutt af þeim Axel
Einarssyni í Tilveru, Jónasi
Jónssyni sem var í Náttúru,
Pétri Kristjánssyni í Náttúru
(áður í Pops), Birgi Hrafnssyni
í Ævintýri, Sveini Guðjónssyni
sem var í Roof Tops og Sævari
Árnasyni í Pops. Það er ný
hljómplötuútgáfa sem ætlar að
gefa þetta út.
Fyrirgefðu ónæðið.
Valdi.
Ekkert að fyrirgefa, við þökk-
um upplýsingarnar og biðjum
forláts á að hafa ekki orðið okk-
ur úti um þennan fróðleik fyrr.
Opið bréf til ráðherra
þjóðskrár
Vikalipra Vika.
Viltu vera svo vinsamleg að
flytja Magnúsi Jónssyni, ráð-
herra Þjóðskrár, eftirfarandi
orðsendingu:
Fyrir rúmu ári birti Árelíus
Níelsson, klárkur, fréttir í Tím-
anum af mótmælum mínum
gegn skjalafalsi ríkisvaldsins á
mér í Þjóðskrá og kirkjubók. í
þeim segir hann að á miðanum,
sem ég fékk þér þá í Lang-
holtskirkju, hafi staðið: „Getur
Jósef trésmiður fengið vinnu?“
Vilt þú, ráðherra, votta á sama
vettvangi (þ. e. í Tímanum) að
þessi frétt Árelíuss sé lýgi, og
birta vísuna, sem á miðanum
stóð, því til staðfestu.
Helgi Hóseasson.
Til skýringar skal þess getið að
orðið „klárkur“ er nýyrði Helga
Hóseassonar á embættistitli
kirkjunnar þjóna.
Svar til „þriggja
forvitinna úti á landi“
1. Rithöndin ber vott um
nokkurt yfirlæti, en jafnframt
öryggisleysi.
2. Gefur til kynna reglusemi
og snyrtimennsku.
3. Ber vott um dugnað, skýra
hugsun og sjálfsöryggi.
Á í stríði
Kæri Póstur!
Ég á í stríði við vandamál sem
mér er ómögulegt að leysa. Það
er þannig að ég er skotinn í
stelpu, en hún er þremur árum
eldri en ég. Ég er ekki beint bú-
inn að sýna henni ástarhug minn
til hennar. É'g vona að þú birtir
þetta bréf mitt, Póstur minn.
Einn í vandræðum.
P.S. Hvernig er skriftin mið-
að við fimmtán ára aldur?
Það mun ekki ýkja algengt að
átján ára dömur festi mikla
elsku á fimmtán ára drengjum,
sem veniulega eru mestu roll-
ingar í þeirra augum. Almennt
séð sjáum við ekki fram á að þú
hafir mikinn séns í bráðina. En
ef þér finnst þetta skipta miklu
máli. ættirðu ekki að Iáta drag-
ast úr hömlu að gera eitthvað í
málinu; meðnn svo stendur að
þú ert ekki „beint búinn að sýna
benni ástarhug þinn“ og veizt
því ekkert um hennar hug, þá
er erfitt fyrir utanaðkomandi
nðila eins og okkur að gefa þér
nokkur ákveðin ráð.
Skriftin er heldur klén. jafn-
vel þótt ekki sé miðað við nema
fimmtán ára aldur.
pourii*
"UI.¥TB
‘‘"•AUtm*
ÞOlYTíX
PDLYTEX
býður yður glæsilegt litaúrval. Fegr-
_ ið heimili yðar með Polytex plast-
Wj ^ málningu úti og inni.
vorifi
er timi
nýrrá
lita
jSflSl EFNAVERKSMIÐIAN SJÖFN
Þér soarifl meO áskrilt
VIKAN
Skipholti 33 - sími 35320
25. tbi. VIKAN 7