Vikan


Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 15

Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 15
bezti drengur! Það er þetta sama viðkvæði, sem maður heyrir hjá öllum foreldrum í landinu. Og þau meina þetta, öll. f öllum réttarsölum lands- ins standa þessir aumingja rugl- uðu foreldrar og stara á mála- færslumennina sína — þegar börnin þeirra eru dæmd fyrir morð, ofbeldi, þjófnað og nauðg- un — og muldra: „En hann er svo góður drengur, ég þekki drenginn minn, hann hefur allt- af verið svo góður drengur.. . .“ — Hættu nú þessu, sagði hún. Mér kemur ekki við hvað aðrir segja. Eg þekki drenginn minn . . — Og hvenær hann fer í hátt- inn og hvernig hann endasend- ist um allt í þessum gamla bíl- skrjóð, sem hann hefur keypt sér. Hvar heldurðu að hann hafi fengið peningana fyrir hann? Og alla hina peningana sem hann eys út? Hún var seinmælt þegar hún svaraði: — Þrjú síðustu sumar- leyfin sín hefur hann verið að- stoðar-umsjónarmaður á barna- heimilum; hann hefur haft gott upp úr því og verið sparsamur. Og nú er skólanum lokið hjá honum og hann á að fara í her- inn, og þess vegna er hann laus og liðugur í sumar og skemmtir sér með vinum sínum — fyrsta sumarið sem hann er í borginni sem uppkominn maður. Hann er kornungur og þarf að fá að leika sér. Það er ekkert athugavert við það. — Og þessir nýju vinir hans? — Það verður ekki nema um stundarsakir. Hann jafnar sig aftur þegar hann hefur hlaupið af sér hornin. En allir þessir peningar, sem hann eyðir. Peningarnir fyrir bílinn? hélt Paul áfram. Hvað er þetta? Hann kost- að ekki nema 150 dollara. Og það voru hans eigin peningar. Paul leit á klukkuna. Hann var að verða of seinn. — Ég ætla að skreppa upp og gæta að því. — Gæta að hverju? -- Sparisjóðsbókinni hans. Dökkur roði kom fram í kinn- ar henni. — Ertu viss um að þú iðrist ekki eftir það? —- Já, ég er viss um það. Hún stóð grafkyrr og horfði á hann stórum, bláum augum —• sperrti þau upp svo að tárin kæmu síður fram. Hann hljóp upp stigann og inn í herbergi sonar síns, sem var hreinlegt og íburðarlaust, eins og unglingaherbergi eiga að vera. Hann gekk að kommóð- unni og fór að leita í skúffun- um. Bókin ætti að vera auðfund- in, og hann var vanur svona leitum. Hann fann sparisjóðs- bókina og sá að þar var 1300 dollara innstæða. Ekki hafði eitt cent verið tekið út allt sumar- ið. Að vísu fékk strákurinn vasa- peninga vikulega, en alls ekki eins mikla og hann gæti eytt eins og hann hafði gert í sum- ar. Nú heyrði hann fótatak Bill- ys í stiganum, en flýtti sér ekki að fela bókina. Ef ég hnýsist í fórur sonar míns, hugsaði hann með sér, vil ég að hann sjái það. Nú kom Billy þjótandi inn í herbergið. — Daginn, pabbi! sagði hann. — Meiri hitinn í dag. — Daginn, sagði Paul Matt- hew. — Ég ætla að fá mér steypu, sagði Billy. — Tennis í dag og áríðandi stefnumót í kvöld. Svo þagnaði hann allt í einu og starði á föður sinn. — Hvað ertu með þarna? — Sparisjóðsbókina þína. Hikandi og tortrygginn sagði pilturinn: — En . . . hvað ertu að gera við hana? — Hvaðan hefurðu peninga? spurði Matthew. — Peningana sem þú sólundar eins og skít? Billy roðnaði og varð vand- ræðalegur og tvísteig. — Ég hef grætt þá. — Grætt þá? Hvar og hvernig? — Á veðhiaupabrautinni. — Jæja, ertu orðinn svona fullorðinn? Þú veizt að þú hefur ekki aldur til að veðja á hesta — það er ólöglegt. — En maður má koma á brokkarabrautina. Við vorum margir saman og sumir okkar eru orðnir tuttugu og eins; það voru þeir sem veðjuðu fyrir okkur. Og ég var heppinn. Það er allt og sumt. — Hve mikið heppinn? — 350 dollara. — Og það eru peningarnir, sem þú hefur verið að eyða? spurði Paul Matthew og leit aft- ur í bókina. — Já. - Hvers vegna sagðir þú okkur ekki frá því? Mér eða henni mömmu þinni? Billy varð niðurlútur. — Ég — ég var hræddur um að ykkur mundi mislíka það. -— Já, vertu viss um að okkur hefði gert það. — En mér datt heldur ekki í hug, að þú mundir hnýsast í sparisjóðsbókina mína. — Því ræð ég sjálfur. Hef- urðu nú sagt mér satt, Billy? — Þú gerir mér rangt til, pabbi. Þú veizt vel að ég lýg ekki. Þú hefur kennt mér að segja satt. Nú kom að Paul Matthew að verða vandræðalegur. — En finnst þér það ekki líkt og að ljúga að þegja yfir sannleikan um? — Jo-ú, sagði Billy, — mér var líka um og ó 'en komst eftir langa umhugsun að því, að það væri bezt að þegja. Paul Matthew horfði lengi á son sinn og loks sagði hann, og röddin var svo annarleg að hann þekkti hana varla sjálfur; — Jæja, Billy. Ég trúi þér. Fyrir- gefðu mér að ég lét svona. Ég álít að þú hafir farið rangt að — en það eru meiri menn en þú og ég sem stundum getur skjátl- azt. — En mér datt ekki í hug að þú færir að skoða sparisjóðsbók- ina mína. — Áfellistu mig fyrir það? — Já, sagði Billy. ■—- Ég geri það. Það geta ekki verið til tvenns konar lífsreglur. Þú hefur alið mig upp samkvæmt reglum, sem þú verður að halda sjálfur. Þetta snart Paul Matthew illa og hann spurði: — Hvaða regl- ur? En hann vissi ofurvel svarið við því sem hann var að spyrja um. —• Þú hefur kennt mér ákveðna lífsreglu, sagði Billy. — Gagnkvæmt traust og persónu- lega ábyrgð. Ekkert snuðr, enga óþarfa afskiptasemi. Ég hef al- drei opnað bréfin þín, leitað í vösum þínum í leyfisleysi eða snert við skammbyssunni þinni. Og þú hefur heldur aldrei snert við því, sem mér kemur við, fyrr en núna. Hvað kemur til að þú gerðir það? — Fyrirgefðu, sagði Paul Matthew aftur. — Ég er líklega Framhald á bls. 36. 25. tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.