Vikan


Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 50

Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 50
Q.T. gerir yður eðiilega sólbrún, meðan þér sofið. Notið Q.T. inni sem úti, í regni sem sól og á 3 tii 5 tímum verðið þér eðlilega sólbrún. Q.T. er framleitt af COPPERTONE. Heildsölubirgðir: HEILDVERZLUNIN ÝMIR S.F. sími 14191 og HARALDUR ÁRNASON HEILDVERZLUN H.F. Hamarshúsinu, sími 15583. „Ég get vel skiliS, hvernig þér hefur liðið. En eru ekki morð út af ástamálum dæmd vægara hér en í mörgum öðrum löndum?" „Þetta er að breytast," svaraði hann. Hann gekk til dyranna. Luca opnaði. Desmond vatt sér við áður en hann gekk út og mælti: „Ég vildi hún hefði verið eins og þú." Hurðin féll að stöfum að baki honum. Anna stóð titrandi við hlið mér og hvíslaði: „Hann ér þá Barcelonamorðinginn . . ." „Já, hann drap dansmeyna eins og hann drap manninn í dag. Hann var orðinn morðingi, þegar við kynntumst honum. Æ, guð minn góð- ur . ." 9. KAFLI Það byr|aði að skyggja úti og skuggarnir í dalnum báru á sér purpura- litan blæ. Anna lá á rúmi sínu, og milli þess sem hún snökti lágt ásak- aði hún mig fyrir að eiga sök á vandræðunum. Loks féll hún í svefnmók en vaknaði með ópi, þegar Luca bar töskurnar okkar inn í herbergið. Hann brosti til mín og læsti hurðinni á eftir sér. Ég kveikti á lampanum og tendraði í vindlingi, íhugaði hvernig hægt yæri að flýja en gafst upp 50 VIKAN 25-tbl- á því. Til að róa taugarnar brá ég mér í steypibað en hafði auga með dyrunum. Vatnið var næstum kalt. Skyldi Luca hafa haldið, að við þyrftum ekki meira af heitu vatni? Það var óhugnanleg tilhugsun. A eftir valdi ég mér fallegan kjól úr töskunni og farðaði mig í framan, en Anna rak upp stór augu, þar sem hún lá í rúminu. „Hvað er eiginlega á seyði?" spurði hún. „Ég hélt þú hefðir augu í höfðinu," svaraði ég eilítið háðslega. „En veiztu ekki, dvað það getur verið styrkjandi að hafa fataskipti? Að minnsta kosti líður mér betur núna. Af hverju gerirðu ekki það sama?" Hún titraði. „Ég skil ekki, hvað þú getur verið köld og róleg, Lísa. Þeir geta komið á hverri mínútu og . ." Röddin brast. Anna lagði höfuðið aftur á koddann hálfkjökrandi. Ég settist á rúmstokkinn og sagði: „Ég trúi ekki, að Desmond eigi eftir að gera okkur nokkurn skapaðan hlut." Það var eins og hún hrykki við. Það var óhugnanlegt að sjá hana svona með ógreitt hárið. „Hvers vegna skyldu þeir gera okkur neitt?" gall hún við. „Held- urðu að ástandið hafi eitthvað skánað við, að þú talaðir við hann og lézt hann halda, að þú hefðir samúð með honum? Því skyldi hann sleppa okkur og eiga á hættu, að við færum beint til lögreglunnar? Eða held- urðu, að hann vilji taka þig upp á sína arma bara af því þú reyndir að gangða í augun á honum og fékkst hann til að segja, að hann óskaði þess, að þú hefðir verið konan hans?" Ég roðnaði og reis upp. „Ég skrökvaði alls ekki að honum. Og ég reyndi heldur ekkert að smjaðra fyrir honum. Mundu, að við erum báðar í sama báti og verðum áfram. Við verðum að vinna saman." „Ég vil ekki heldur, að við séum ósammála, Lísa. Hún lagði höfuðið aftur á koddann. ',,Ég er bara svo hrædd, að ég er ekki með sjálfri mér. Get ekki einu sinni klætt mig almennilega. Og hvaða gagn er í því, ef þeir ætla sér að kála okkur?" „Þeir gera okkur enginn neitt mein," sagði ég einbeittlega. „Það er ég viss um nú. Þeir væru búnir að því, ef þeir ætluðu sér það. Desmond er sjálfsagt að reyna að finna einhverja björgunarleið." „Ég vildi óska að ég gæti trúað þér," tautaði Anna. „En ég er ... svo hrædd." „Hlustaðu!" sagði ég og gekk að dyrunum. Kunnuglegt hljóð barst úr fjarska. „Hvað er þetta?" Anna settist upp í rúminu og góndi á mig upp- glenntum augum. „Einhver er að setja bílinn í gang." „Nei!" æpti Anna upp. „Þá eru þeir að fara. Setjum slagbrand fyrir dyrnar. Þeir mega ekki koma hingað inn, Lísa. Þeir . ..." „Þegiðu!" skipaði ég. „Hlustaðu. . . " Hljóðið í bílvélinni hækkaði og varð eðlilegt og lækkaði svo smátt og smátt er bíllinn fjarlægðist. „Það hefur einhver keyrt burt í bíln- um," sagði ég. „Þá hafa þeir lokað okkur hér inni!" hvein í Onnu. „Til þessa staðar kemur aldrei neinn annar en Luca. Það hefur hann sjálfur sagt. Þeir ætla að láta okkur svelta til bana . „Desmond hefur sjálfsagt ekið niður til þorpsins," sagði ég en var ekki vel trúuð á það. Var það ekki rétt, sem Anna var að segja? Að Desmond vildi ekki hafa nein lifandi vitni? Kannske ættu þeir eftir að fela bílinn einhversstaðar í nágrenninu og læðast til okkar og ... En nú heyrði ég eitthvað hreyfast skammt frá, eins og hringlaði í skál. Ég dró andann léttara og mælti: „Luca er hér enn, ég heyri í honum. Hlustaðu sjálf. Þú mátt ekki mála skrattann á vegginn, Anna." Ég gekk að glugganum og horfði út. Rökkrið var að síga yfir fallegan dalinn. „Hann kemur aftur. Ég heyri í bílnum!" Anna hafði setzt upp í rúm- inu og hlustaði spennt. Bílhljóðið færðist í aukana. Ég heyrði bílinn stanza og siðan fótatak og hurð opnast. Nú fær maður einhverjar fréttir, hugsaði ég, en vissi ekki, hvort ég átti að hryggjast eða gleðjast. Ég svipaðist um í herberginu eftir einhverju vopni, þótt ég vissi, að um ekkert slíkt væri að ræða. Ég heyrði Desmond segja eitthvað lágum rómi við Luca og sá þá i huganum kinka kolli hvor til annars brosandi. Ég titraði á beinunum og settist á rúmstokkinn hjá Onnu. Við heyrðum útidyrnar opnast tvívegis eins og þeir væru að bera eitthvað út í bílinn. Svo nálgaðist létt fótatak Desmonds dyr okkar. Fingur Önnu boruðust inn í handlegginn á mér, en hann gekk framhjá og til síns herbergis. Og þar fannst mér hann vera langalengi áður en hann gekk aftur fram hjá dyrunum okkar. Eitthvað skall í steinvegginn með skörpum smelli. Riffl- arnir! hugsaði ég með hrolli. Enn voru útidyrnar opnaðar, og nú varð dauðakyrrð yfir öllu. „Þeir eru að láta dótið okkar inn í bílinn," hvíslaði Anna. „Hvað sagði ég ekkil" „Ef þeir eru að fara burt, láta þeir okkur að minnsta kosti ekki svelta," hvíslaði ég á móti. „Luca hefur eldað einhvern mat." Framhald f næsta blaði. j

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.