Vikan - 18.06.1970, Blaðsíða 8
MIÐA
PREIMTUINI
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320
Smíðum hilluskilrúm úr öllum viðartegundum.
Leitið upplýsinga og fáið tilboð hjá framleiðanda.
Sverrir Hallgrímssoi
Smíðastofa, Skipholti 35, sími 36938.
HILLUSKILRÚM
teiknuð af Þorkeli G. Guðmundssyni, húsgagnaarkitekt.
Vanfær skólastúlka
Kæri draumráðandi!
Ég er fimmtán ára stelpa í
gagnfræðaskóla. Mig langar til
að biðja þig að ráða fyrir mig
draum, sem mig dreymdi fyrir
stuttu:
Mér fannst ég vera ófrísk, ber-
sýnilega komin langt á leið, en
ég var mjög hamingjusöm, þótt
ég vissi, að ég yrði að hætta í
skóla eftir prófin í vor. Ég hafði
engar áhyggjur af því, þótt
mamma gæti ekki séð umkrakk-
ann fyrir mig, og ég væri stað-
ráðin í að fara í langskólanám.
Allt í einu er ég komin upp
í skóla. Skólastofan mín er innst
á gangi, en ég þurfti að komast
út og varð þess vegna að fara
eftir ganginum endilöngum. Það
var ekki auðhlaupið að því, af
því að margir krakkar voru á
ganginum og allir í ájflogum.
Þar sem ég gekk þarna eftir
ganginum, varð skyndilega allt
steinhljótt. Krakkarnir hættu að
fljúgast á og gláptu öll á mig.
En ég bar höfuðið hátt og var
alltaf svona undarlega ánægð og
hamingjusöm.
Bamsfaðir minn var strákur
í öðrum bekk. Eg þekki hann
ekkert, bara rétt kannast við
hann. Við vildum hvorugt með
hitt hafa í draumnum, en þrátt
fyrir það lögðu allir að mér að
koma honum ekki undan skyld-
um sínum og vildu að við fær-
um að búa. En ég sagðist held-
ur vilja standa ein uppi með
barnið, en að búa með manni,
sem mér þætti ekki vænt um.
Draumurinn varð ekki lengri,
en hann var mjög skýr. Eg hef
heyrt, að það sé fyrir ógæfu að
dreyma barn sem fæðist utan
hjónabands, en barnið fæddist
ekki í draumnum.
Með fyrirfram þökk,
Þ.K.
Það er rétt, að margir telja að
það sé slæmur fyrirboði að
dreyma að maður eignist barn
utan hjónabands. En ekki mundi
það eiga við þinn draum. Þessi
draumur er áreiðanlega frekar
hagstæður en hitt. Að okkar
dómi táknar hann vaxandi sjálfs-
traust þitt og bendir tii þess, að
þú munir auka virðingu þína óg
álit meðal jafnaldra þinna. Þetta
þarf alls ekki að vera á sviði
ástar eða hjónabands, hvað þá
barneigna. Líklegast er, að
draumurinn sé fyrir velgengni
á listrænu sviði, sem þú hefur
lengi haft áhuga á.
Jólakort á
kosningadaginn
Kæri Vika mín!
Ég ætla að biðja þig að ráða
fyrir mig tvo drauma, en þeir
eru á þessa leið:
Maðurinn minn og eldri dótt-
ir okkar voru úti á svelli í bæn-
um, sem við áttum heima í til
skamms tíma. Mér fannst svell-
ið vera svo slétt og fallegt, að
ég sendi einhvern krakka heim
eftir skautunum mínum. Hann
kom með þá, og ég fór á skaut-
ana og skautaði með dóttur
mína í fanginu. Allt í einu sá ég
eitt húsgagnið úr íbúðinni okk-
ar vera komið út á svell. Ég
varð undrandi og ætlaði að fara
að spyrja um þetta, þegar stelpa
kom með jólakort til okkar frá
vinum okkar. Við urðum mjög
hissa, því að þetta var ekki á
jólunum, heldur á kosningadag-
inn!
Svo vaknaði ég. Seinni draum-
urinn var svona:
Mig dreymdi, að ég fengi bréf
frá tengdamóður minni. Ég opn-
aði það og fyrstu orðin voru
svona: „Kærkomna D....“ Þeg-
ar ég las áfram, var hún að
biðja mig að koma til sín, því
að enginn gæti hjúkrað henni
nema ég, en hún væri svo veik.
Ég vildi fegin fara, en komst
ekki. Svo vaknaði ég við það,
að ég var að hugsa um, hvort
ég gæti hvergi fengið hesta til
að komast til hennar.
Bless og með fyrirfram þökk,
Deitla.
Fyrri draum|urinn mundi vera
fyrir einhverjum vonbrigðum
vegna breyttra affstæðna. Ef til
vill hefur þú bundiff of miklar
vonir viff flutningana, eða aff
minnsta kosti haldiff, aff öffru-
vísi yrffi umhorfs á nýja staffn-
um en raunin varff. Þaff mun
taka þig nokkurn tíma aff sam-
lagast nýjum staffháttum, en lík-
lega gengur allt betur hjá þér
síffar meir. Samkvæmt síðari
draumnum mun einhver nákom-
inn ættingi leita á náffir þínar í
nauffum sínum, en þér mun því
miffur ekki veitast tækifæri til
aff hjálpa honum, þótt þú vildir
fegin gera þaff.
8 VIKAN
25. tbl.
*