Vikan - 22.04.1971, Qupperneq 5
sveitaböllin svoleiðis að engir
sveitamenn sjást þar, því allt
morar af Reykjavíkurlýð. Jæja,
kæri Póstur, nú hættum við, en
finnst þér þetta ekki óréttlátt
okkar vegna? Með fyrirfram
þökk fyrir birtinguna.
Þrjár geitur.
P.S. Við erum ekki nema lítið
brot af þeim krökkum hér fyrir
austan, sem eru á þessu máli.
Sömu.
Frekja og yfirgangssemi í fram-
komu er alltaf andstyggð, og ef
atferli Reykjavíkurkrakkanna er
eins og þið lýsið því, er það
fordæmanlegt. Kannski láta þau
sér segjast við bréfið ykkar. En
ef frekjan í þeim keyrði fram
úr hófi, kæmi þá ekki til greina
að reyna að fá ráðamenn
skemmtistaðanna til að tak-
marka eitthvað aðgang aðkomu-
fólks að þeim, á einhvern hátt?
Viö lindina
Við höfum fengið ein tvö bréf
með beiðnum um að birta texta
Lofts Guðmundssonar, „Við lind-
ina", sem Asgerður Flosadóttir
söng inn á plötu í fyrra. Og hér
er textinn:
Hvort var það bara draumur
eða vaka, að því ég spyr.
En síðan finnst mér ekkert
með sama hætti og fyrr.
Eg sat í grænum hvammi ein
við silfurtæra lind
og horfði á heiðarbárur
spegla himinblámans mynd.
Það var sólskin þann dag
það var sólskin þann dag,
og fuglarnir sungu sitt fegursta
lag.
Eg greiddi Ijósa lokka
meðan lindin kvað sinn brag
um sumar og æsku,
það var sólskin þann dag.
Þá birtist mér hans andlit
þar bjart og hvítt að sjá,
og alltaf man ég augun hans
svo undurdjúp og blá.
Þau störðu á mig andartak
en allt sem næst við bar
ég veit og veit þó ekki
hvort að var eða ekki var.
Það var sólskin þann dag
og svo framvegis.
Decorenc Vinyl
ve^gffóðnr
DECORENE
er mjög auðvelt að þrífa,
það þolir þvott með alls konar
þvottaefnum, en í flestum
tilfellum nægir að strjúka af þvi
með rökum klút.
DECORENE
er sérstaklega auðvelt í
uppsetningu.
DECORENE
hefur fallega áferð, er
endingargott og fæst í fjölbreyttu
litavali og mynstrum.
DECORENE
er ódýrt og lækkar byggingar-
kostnaðinn.
Fegrið gömlu
og nýju íbúðina með
DECORENE
Sölustaðir:
Málning og járnvörur
Laugavegi 23.
Litaver sf.
Grensásvegi 22—24.
T. Hannesson
& Co., hf.
Armúla 7.
Og byggingavöruverzlunum
víða um land.
Innflytjandi:
íslenzka
verzlunarfélagið hf.
sími 19943.
Einn í ástarsorg
Kæri Póstur!
Ég vona að ég fái svar við þessu
bréfi fljótlega, því að ég er al-
veg að farast úr ástarsorg. Svo
er mál með vexti að ég hef
þekkt þessa stelpu lengi, en
ekki borið ást til hennar fyrr en
í haust. Við erum í sama skóla
núna, svo ég sé hana á hverjum
degi. En vandamálið er að hún
er með öðrum strák, sem er
einnig í þessum skóla. Síðan
fyrsta kvöldið sem þau voru
saman hef ég mjög lítið talað
við hana, því ég get helzt ekki
hugsað mér að sjá hana. En ég
elska hana og ég held að hún
beri smáást til mín. En ég veit
að hún getur ekki sagt strákn-
um upp, því hún getur ekki
gert skordýri mein, né öðrum
dýrum frekar en ég. Vanda-
málið er sem sagt þetta: Hvern-
ig á ég að vinna ást hennar
þannig að við verðum saman.
Vonast eftir svari sem fyrst. Ég
verð sextán ára í haust og hvað
geturðu lesið úr skriftinni?
HH Rang.
Svo fremi að þessi smáást sé
annað og meira en óskhyggja
hjá þér, þá ætti þetta að geta
tekizt. En auðvitað myndi það
kosta að þið yrðuð að hætta að
taka alveg svona mikið tillit til
stráksins, sem hún er með í
augnablikinu. Þótt góðmennsk-
an sé allra góðra gjalda verð,
þá gildir hún ekki í þessu til-
felli ef þetta á að hafast. Reyndu
að sæta lagi að gefa stúlkunni
ótvírætt til kynna hvernig þér
er innanbrjósts, og ef henni er
í raun réttri ekki sama um þig,
fer varla hjá því að hún láti það
þá í Ijós á einhvern hátt.
Skriftin er fíngerð og bendir til
þess að þú sért mikill fagur-
keri og tilfinninganæmur.
Svar til
Trillu ástföngnu
Að okkar áliti er ekki hægt að
kalla þetta að vera með, að
minnsta kosti þyrftirðu að vera
nokkuð lítilþæg til þess. Og
áhuginn virðist standa næstum
á núlli hans megin, fyrst hann
lætur félaga sína sitja svona al-
gerlega fyrir þér. Líklegt er
einnig að hann sé mjög óþrosk-
aður og óráðinn.
Skriftin gæti gefið til kynna að
þú værir lífsglöð og fjörmikil.
Vog og tvíburi eiga yfirleitt
mjög vel saman.