Vikan - 22.04.1971, Blaðsíða 28
George Brown er söngelskur maður.
Sá frægi maður, George Brown, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Bretlands, heimsótti ísland á dögunum og var
gestur á árshátíð Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. Hann
hélt fund með blaðamönnum, ræddi við stúdenta og brá
sér í ferðalag til V'estmannaeyja. Koma Browns vakti
mikla athygli, enda maðurinn engan veginn hversdags-
legur í tali og háttum. Á blaðamannafundinum lét hann
ýmis smellin ummæli falla um íslendinga. Hann sagði
til dæmis, að við mættum eiga elzta þing í heimi, en að-
eins með því skilyrði, að við sættum okkur við tólf mílna
landhelgi. Fyrstu viðbrögð hans við reykvísku umhverfi
voru á þá leið, að líklega væri húsgerðarlistin enn verri
hjá okkur en B'retum. Brown hefur nú hlotið lávarðar-
nafnbót og situr í lávarðardeild brezka þingsins. Það kom
í Ijós, að honum er meinilla við að vera kallaður „lord“
og telur nafnbótina aðeins nýjan aðgöngumiða fyrir sig
að þinginu. Hann kvaðst verða að sætta sig við þetta,
fyrst hann hefði staðið sig svona illa í síðustu kosningum
og fallið.
Á árshátíð Alþýðuflokksfélagsins flutti Brown grafal-
varlega ræðu um stjórnmálaástandið í heiminum. Hins
vegar skemmti hann gestum með ýmsum tiltektum og
uppátækjum. Þegar Stúdentakórinn hafði sungið undir
stjórn Atla Heimis Sveinssonar, varð Brown svo hrifinn,
að hann rauk fram á gólfið og heimtaði að fá að syngja
með. Hann fékk fleiri menn til að syngja einnig með
kórnum, til dæmis Gylfa Þ. Gíslason, menntamálaráð-
herra. Á þessari opnu sjáum við skemmtilegar myndir
af því óvenjulega atviki, þegar sá makalausi George
Brown gerðist söngfélagi í Stúdentakórnum. *
ÞEGAR
SÖNG
MED
MYNDIR: EGILL SIGURÐSSON
28 VIKAN 16. TBL.