Vikan


Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 49

Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 49
Kristján og Anna svöruðu engu. Þau litu ekki hvort á annað. Anna fann að slagæðin á hálsinum sló hraðar. Henni var ekki vel við Georg og hafði aldrei verið það. En hvað vissi annað fólk um hjónaband þeirra? Ekkert. Og Kristín hafði aldrei sagt neitt fyrr. — Það er ekkert við því að segja, sagði hún núna. — Mað- ur er tryggur á sinn hátt, en hvílíkur misskilningur! Stefán er fjögurra ára, hann átti af- mæli í sumar og við Georg giftum okkur, af því að við áttum von á honum. Við skild- um það eiginlega hvorugt, en fjölskyldurnar kröfðust þess og við gátum ekki staðið gegn þeim. Upp á síðkastið hefur þetta ekki verið annað en hreinasta víti. Kristín kyngdi og snýtti sér. Hún leit ekki enn á þau. — Mamma . . . mamma varð veik eins og þið vitið, sagði hún loks. — Það var ellihrum- leiki og ekkert hægt fyrir hana að gera. Hún var send á geð- veikrahæli, þó að þeir gerðu allt sem þeir gætu fyrir hana og hugsuðu í alla staði vel um hana. Og það er bara eitt af því, sem Georg segir daglega við mig — að mamma mín sé geðveik og ég verði það líka. Að munsturteikningarnar mín- ar séu einskis virði og að ég gæti aldrei haldið mér á floti, ef hann sæi ekki fyrir mér. Að ég sé ófær í rúminu, kunni ekkert til hússtarfa og sé ekki þess virði að kallast kona. Að ég . . . Kristín! Guð minn góður! Anna greip fyrir andlitið, en Kristján stökk upp á nef sér. — Þessi bannsetti heimski drjóli! öskraði hann. — Kristín litla, vinkona . . . — í dag kom hann heim með stelpu, sem átti að búa hjá okkur, sagði Kristín bein í baki og rjóð í kinnum. -— En þá var því líka lokið. Áður hugs- aði ég með mér, hann er pabbi Stefáns og ég vildi reyna . . . Stefáni þykir vænt um hann og hann er góður við hann ... En nú gat ég ekki meira. Eg . .. ég . . . Svo ef ég má vera hér í sólarhring . . . Kristján settist hjá henni í sófann og tók utan um axlirnar á henni. Kristín þrýsti andlit- inu að j akkaboðungnum og skalf af gráti. Svona, svona, sagði Kristj- án blíðlega. — Gráttu nú bara, það er gott að gráta. Þá líður þér betur á eftir. Vertu hjá Framundan eru vorið og sumarið. Ný tizka ... nýjar hugmyndir . . . Ný efni berast daglega i Vogue - alltaf eitthvað sérstakt fyrir hverja konu. Sibreytilegt úrval i litum, mynstrum og efnisáferð vekur sköpunargleði og auðveldar hverri konu að skapa sinn eigin persónulega stíl. Við litum inn i Vogue ... til aó fá nýjar hugmyndir ... til að gera góð kaup ... til að fylgjast með tizkunni. Laugavegi 11, Skólavörðustíg 12, Háaleitisbraut 58—60, Strandgötu 31 Hafnarfirði.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.