Vikan - 02.09.1971, Síða 3
35. tölublað - 2. september 1971 - 33. árgangur
Imynd
karlmennsk-
unnar
Það blés ekki byrlega hjá
Clark Gable í fyrstu. Þegar
hann fæddist hentu þau
mistök fæðingalækninn, að
hann skrásetti hann sem
stúlkubarn. Síðar varð
Clark Gable ímynd karl-
mennskunnar í heiminum
eins og allir vita. Nú eru
tíu ár liðin frá því að hann
lézt, og í tilefni af því
segjum við sögu hans í
greinaflokki. Sjá bls. 16.
hún
Myrti
börnin
sín?
Hún lifði ljúfu lífi eftir að
hún skildi við manninn
sinn. En einn góðan veður-
dag gerðist óhugnanlegur
atburður. Bömin hennar
tvö fundust myrt. Nafn-
laust bréf varð til þess, að
hún var sakfelld fyrir að
hafa myrt að minnsta kosti
annað þeirra og situr nú í
fangelsi. Átakanleg saga
þessarar konu birtist á
blaðsíðu 10.
Blek-
klessan
Smásaga þessa blaðs heitir
„Blekklessan“ og segir
frá skólaminningu manns
nokkurs. Hann varð fyrir
því óhappi að hella bleki
ofan á spánnýtt parket-
gólf í bókasafni skólans.
Þetta óhapp hefði getað
orðið afdrifaríkt fyrir hann,
ef hann hefði ekki notið
lijálpar skilningsríks
kennara. Sjá
blaðsíðu 12.
KÆRI LESANDI!
Enginn skyldi voga sér að am-
ast við réttindabaráttu kvenna á
þessum síðustu og merkilegustu
límum, eiida er það sjaldan gert,
nema /;á helzt af konum sjálfum.
Karlmenn verða flestir afskap-
lega skilningsríkir í framan, þeg-
ar þeir tala við rauðsokkur og
þykir sjálfsagt, að öll þeirra bar-
áttumál næðu fram að ganga.
Ilins vegar er ekki eins víst, að
þeir vildu vera lwæntir rauð-
sokku!
En nú er komin fram á sjónar-
sviðið í Bandaríkjunum kvenrétt-
indakona, sem karlmenn elska.
Hún heitir Germaine Greer og er
þrjátíu og tveggja ára gömul.
Hún skrifaði bók um kvenrétt-
indi, og er það eitt varla í frá-
sögur færandi. Slíkum bókum
hefur rignt á markaðinn i svo
stórum stíl, að þær eru fyrir
löngu teknar að vekja leiða og
eru flestar aðeins lesnar af fái-
nnj. En bák Germaine Greer er
öðruvísi. Hún heitir „The Female
Eunuch“ og lýsir áliti höfundar
á samfélagi karlmannanna á
þann hátt, að rækilega athygli
vekur. Gagnrýnendur urðu yfir
sig hrifnir; það birtust viðtöl við
hina nýju og óvenjulegu kven-
hetju í blöðum og sjónvarpi. Hún
kom til dæmis fram í sjónvarps-
þætti hjá David Frost og tókst að
kveða hann eftirminnilega í kút-
inn. Grein um Greer er á bls. 16.
EFNISYFIRLIT
GREINAR Ms.
Kvenréttindakonan, sem karlmenn elska, grein um Germaine Greer 6
Engin miskunn — myrti hún börnin sín? frásögn um átakanlegt sakamál 10
Clark Gable — hann leitaði að ástinni allt sitt líf, fyrsta grein
Jeanne D'Arc Norður-írlands barnshafandi 46
Ævintýraferð í sól 49
SÖGUR
Blekklessan, smásaga 12
Lifðu lifinu, framhaldssaga, 7. hluti 8
Barn Rosemary, framhaldssaga, 3. hluti 20
ÝMISLEGT
VIKAN kynnir Love Story: Bókin, sem slegið hefur öll met í sölu 24
Myndin, sem fékk slæma dóma, en því meiri aðsókn 26
Vikan birtir kafla úr þessari frægu sögu 28
FASTIR Þ/ETTIR
Pósturinn 4
Heyra má 14
Myndasögur 35, 38, 42
Krossgáta 31
Stjörnuspá 32
í næstu viku 50
FORSÍÐAN
Ali MacGraw og Ryan O'Neal leika aðalhlutverk-
in í Love Story, Oliver og Jenný. Vikan kynnir
þessa frægu skáldsögu og eins kvikmyndina í til-
efni af því, að bókin kemur út á íslenzku í haust
— og myndin verður sýnd í Háskólabíói innan
skamms. Sjá bls. 24—28.
VIKAN Útgefandl: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. BlaSamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: SigríBur
Þorvaldsdóttir og Sigriður Ólafsdóttir. — Ritstjórn,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ögúst.
35. TBL. VIKAN 3