Vikan - 02.09.1971, Side 4
í fyrsta sinn á íslandi:
STRING
HILLUSAMSTÆÐURNAR
sem fóru eins og eldur í sinu
og slógu í gegn í flestum Evrópulöndum
á síðustu árum
Einfalt, nútímalegt, ódýrt og splunkunýtt
Pír a - umbodid
HÚS OG SKIP
á horni Nóatúns og Hátúns
Sími 21830
v.______________________________'
P0STURINN
Er þaö virkilega
satt... ?
Kæri Póstur!
. . . Svo spyr ég, er það virki-
lega satt að lögin mæli svo fyr-
ir að 16 ára megi stúlka byrja
að lifa með karlmanni, 18 ára
giftast honum og 20 ára fara í
ríkið og kjósa?
Ein sem elskar að skrifa.
—
r-----------A--------
Já, það er satt.
Langar að
kynnast stúlkum
Kæri Póstur!
Við höfum tekið eftir því að þið
hafið einstaka sinnum birt aug-
lýsingar, þar sem fólk er telur
sig einmana óskar eftir bréfa-
skiptum eða að kynnast fólki í
svipuðu hugarástandi. Þannig er
það að við erum tveir á aldrin-
um þrettán til fjórtán ára, sem
langar að kynnast tveimur
stúlkum á svipuðu reki. Við
vonum að þú getir hjálpað okk-
ur eitthvað að bæta úr þessu
hallæri. Víð vonum að þetta
bréf lendi ekki í ruslafötunni.
Fyrirfram þökk fyrir gott svar.
Tveir sem bíða og vona.
P.S. Gerið ekki grín að okkur.
r--
í Vikunni eru alltaf annað veif-
ið birt nöfn og heimilisföng
fólks, sem óskar eftir bréfa-
skiptum. Ef svo skyldi standa á
að þið hefðuð slatta af Viku-
blöðum við hendina, gerðuð
þið rétt í að fletta upp í bréfa-
skiptadálkinum og vita hvort
ekki fyndist þar eitthvað, sem
ykkur hentaði. Svo er auðvitað
ekki nema velkomið að birta
nöfn ykkar og heimilisföng
ásamt ósk um bréfaskipti, ef þið
senduð okkur þetta.
Alveg að
klikkast
Kæri Póstur!
Ég þarf að biðja þig að hjálpa
mér með vandamál, sem vefst
dálítið fyrir mér. Þannig er mál
með vexti að ég er með strák
(sem er átján ára en ég er sjálf
sextán), sem mér þykir mjög
vænt um, en ég er hrædd um
að honum sé hætt að þykja vænt
um mig, en hann virðist samt
vilja vera með mér, og stundum
segir hann við mig að hann elski
mig og er að tala um hjónaband
og allt hvað eina, en stundum
segir hann við mig að honum
þyki ekkert vænt um mig og að
honum sé sama hvert ég fer og
hvað ég geri,
Ég er búin að vera með honum
í mánuð og er alveg að klikkast
af þessari hringavitleysu, því
hann er í þokkabót alveg hætt-
ur að bjóða mér með sér þang-
að sem hann fer, en samt ætlar
hann alveg að klikkast ef ég svo
mikið sem tala um eða við aðra
stráka. En mér þykir svo vænt
um hann að ég vil ekki missa
hann.
Góði Póstur, hvað á ég að gera
til að fá botn í þetta? — Vonast
eftir greinargóðu svari sem fyrst.
Ein ráðþrota.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
Allt bendir tii að strákurinn sé
svo óráðinn að hann hafi sjálf-
ur nánast enga hugmynd um
hvað hann vill. Hann er sjálf-
sagt eitthvað skotinn í þér, fyrst
hann er afbrýðisamur, en vill á
hinn bóginn engu fórna af eigin
„frelsi". Bæði eruð þið svo ung
að þið ættuð að hafa efni á að
taka þessu rólega, sjá hvað set-
ur. Það að hann breytist mikið
á þann veg, sem þú mundir telja
til batnaðar, er ólíklegt, að
minnsta kosti á næstunni. Þú
verður því að gera það upp við
þig, hvort þú sættir þig við hann
eins og hann er, eða ekki. Ef
þér finnst hirðuleysi hans um
þig með öllu óbærilegt, ættirðu
ekki að láta dragast að slíta við
hann öll tengsli.
Skriftin er dugnaðarleg, en gæti
bent til nokkurrar fljótfærni.
Þriðji flokkur Fram
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð að birta stóra
mynd af þeim félögum í fót-
4 VIKAN 35. TBL.