Vikan - 02.09.1971, Side 5
boltaliðinu Fram, í þriðja flokki.
Með fyrirfram þakklæti.
Steinunn Sig., Grindavík.
Vikan hefur til þessa aSeins
birt myndir af li'ðum í meistara-
flokki, og hæpið að mikið verði
farið út í það að birta myndir
af liðum i lægri flokkum, sem
skipta trúlega hundruðum og
mætti þvi æra óstöðugan að
pikka úr þau, sem öðrum frem-
ur verðskulduðu þess konar upp-
slátt.
Öfrísk og
ofsahrifin
Elsku Póstur!
Ég ætla að byrja á því að þakka
fyrir allt gamalt og gott. Ég
ætla að biðja þig að hjálpa mér
úr smáklípu sem ég er í. Þannig
er mál með vexti að í vetur var
ég með strák sem ég er ófrísk
eftir, en hætti svo við hann áð-
ur en ég vissi það, og er hann
nú með annarri stelpu. En núna
er ég ofsahrifin af strák, sem
ég hef soldið verið með, en
hann vill bara ekkert með mig
hafa. En nú er eitt vandamálið
enn, ég er bara fjórtán ára, og
ég þori ekki að segja mömmu
frá þessu. Segðu mér nú hvað
ég á að gera
Ein fjórtán ára í smáklípu.
P.S. Hvernig eiga krabbamerkið
og nautsmerkið saman?
Þú skalt fyrir alla muni ekki
draga að segja móður þinni frá
barninu, sem þú átt von á; það
er hvort eð er vonlaust fyrir þig
að reyna að leyna því til lengd-
ar. Um strákinn, sem þú ert hrif-
in af, er bezt fyrir þig að hætta
að hugsa í bráð; fyrst hann vill
ekki sjá þig nú, er heldur ólík-
legt að hann festi ást á þér þeg-
ar hann kemst að því að þú ert
ófrísk eftir annan. Og sem verð-
andi móðir á þessum aldri ætt-
irðu að hafa nóg á þinni könnu
í bráð, þótt öllum strákum sé
sleppt.
Krabbi og naut eiga heldur vel
saman, þótt krabbinn, sem jafn-
an er draumlyndur, felli sig ekki
alltaf við raunsæi nautsins.
Höfundur
krossgátunnar
Kæri Póstur!
Geturðu sagt mér hver semur
krossgáturnar fyrir blaðið. Sá
hlýtur að vera fróður.
Vona að bréfið lendi ekki í
ruslakörfunni. Hvað koma yfir-
leitt margar lausnir á hverri
krossgátu?
Þrjú X.
Krossgáturnar fyrir Vikuna sem-
ur Gísli Ólafsson, ritstjóri. Hvað
fjölda lausnanna snertir, er hann
of mismunandi til að hægt sé að
nefna nokkra tölu.
Að drepast í hann
Kæri Póstur!
Ég ætla að byrja á því að þakka
þér fyrir allt gamalt og gott. Ég
kaupi Vikuna alltaf, mér finnst
hún skemmtilegasta og bezta
blaðið sem ég les. Þess vegna
langar mig að biðja þig að
hjálpa mér úr vanda, ef það
væri hægt. Það er svoleiðis að
ég er búin að vera með strák í
hálft ár, svo fékk ég einhverjar
dillur og sagði honum upp, og
nú er mánuður síðan og ég sé
eftir því að hafa gert það. Ég
er að drepast í hann. Hann er
búinn að vera með stelpu síð-
an en ekkert á föstu held ég.
Ég held að hann vilji ekki byrja
með mér aftur af því að hann
heldur að ég spili með hann, en
ég mun ekki gera það. Ég hef
skrifað í marga þætti en ekkert
lag eða svar fengið, svo ég vona
að bréfið mitt fari ekki f rusla-
körfuna að þessu sinni.
Kærar þakkir fyrirfram.
M.G.
Fyrst þú þekkir piltinn og hefur
meira að segja „verið með"
honum í lengri tíma, ætti þér
að vera óhætt að gefa þig á tal
við hann og spjalla við hann
hreint út, slíkt yrði varla talin
nein frekja. Meðan hann er ekki
á föstu, er frekar von til þess aS
hann sé ekki alveg búinn að
gleyma þér.
Treystu
Volvo
fyrir öryggi þínu
og þeirra sem
Með aukinni umferð og hraðari akstri, skiptir öryggis-
búnaður bifreiðarinnar mestu máli, þegar valin er ný
fjölskyldubifreið.
ÚTSÝNIÐ
Slæmt útsýni býður hættunni heim. Yolvo hefur inn-
byggða hitaþræði í bakrúðunni til varnar ísingu og
móðu. Volvo 145 hefur þar að auki rúðusprautu og
„vinnukonu“ við bakrúðuna.
HEMLAR
Tvöfalt hemlakerfi. Fari annað kerfið úr lagi, er samt
sem áður 80% hemlastyrksins virkur á þrem hjólum.
Gífurlegt öryggi í neyðartilvikum.
Þetta eru aðeins fáein dæmi um fjölbreyttan öryggis-
búnað Volvo bifreiðanna.
Sölumenn Veltis h/f gefa yður með ánægju allar nán-
ari upplýsingar.
ÞAÐ ER KOMIÐ 1 TlZKU AÐ FÁ
MIKIÐ FYRIR PENINGANA
VELTIR HF.
Suóurlandsbraut 16 • Reykjavik • Sirtinefni: Volver • Simi 35200
35. TBL. VIKAN 5