Vikan - 02.09.1971, Side 7
Germaine Greer,
áströlsk og errileg, hefur
vakið heimsathygli
með bók um kvenrétt-
indi, sem þykir sú
snjallasta af slíkum,
sem fram hafa komið
síðustu árin.
En hún kennir ekki karl-
mönnunum um allt,
sem miður fer.
Hún kennir öllu frekar í
brjósti um þá.
Hún er kvenleg en gengur aldrei í
síðbuxum. Háskólaborgari og
groupie. Bölvar svo að hún þefjar af
brennisteini. Kann sinn
Shakespeare. Eldsnögg í svörum
fyrir framan sjónvarpskvikmynda-
vélarnar. Ræðst af nistandi háði
á hina kvenlegu stereótýpu,
en gerir sig sjálf fallega af því að
henni finnst það skemmtilegt.
Hér horfir hún á sjálfa sig í sjónvarpi
ásamt ónefndum vini.
aldrei borið minnstu virðingu fyr-
ir akademískum hefðum. Einhver
myndi segja að fyrir henni væri
ekkert heilagt. Um dauða Ófelíu
sagði hún:
— Auðvitað lét Hamlet hana
drepast af því að hún var alveg
óþolandi leiðindaskjóða! Svo ein-
dæma hversdagsleg smáskjáta!
Hún lítur svo á að orð séu til
þess að nota þau, hvernig sem þau
annars eru, og hún kryddar bók-
ina sína með orðum, sem aldrei
hafa komizt á blað i nokkurri al-
fræðiorðabók.
Þau lærði húp í lífsins skóla —
það er að segja sem „groupie“.
Stúlkur sem svo eru kallaðar eru
eins konar geishur í poppheimin-
um. Það var hennar aðferð við að
bæta fyrir sína einu smáborgara-
legu hrösun í lífinu. Hún hafði
FramhalcL á bls. 33.
35. TBL. VIKAN 7