Vikan - 07.10.1971, Side 4
Þórir Baldursson
leíkur vinsæl íslenzk lög
á HAMMOND - ORGEL
Átta lagasyrpur, 27 lög: Blítt og létt — Selja litla — Viltu me8
mér vaka í nótt — Söngur jólasveinanna — Bláu augun þín —
Hún var svo sæt — Þú og ég — Ship-o-hoj — Vertu sæl mey —
Þórður sjóari — Ljósbrá — Sveitin milli sanda — Ást í meinum —
Gvendur á eyrinni — Laus og liðugur — Fyrsti kossinn — Brúna-
Ijósin brúnu — Mikið var gaman að því — Játning — Við bjóðum
góða nótt — Sjómannavalsinn — Síldarvalsinn — Síldarstúlkan —
Landleguvalsinn — Ágústnótt — Við eigum samleið — Bjartar
vonir vakna.
Sérstaklega vönduð stereo hljóðritun
Þetta er hljómplata fyrir fólk
á öllum aldri.
Þetta er sérstaklega heppileg gjöf
fyrir Islendinga og íslandsvini erlendis
SG-HUÖMPLÖTUR
P0STURINN
Hressingarskálinn
aftur á dagskrá
Kæri Pósturl
Ég get ekki orða bundizt og tek
undir með bréfi Valda, sem
skrifar um Hressingarskálann. Ég
er utan af landi og þurfti því
oft að borða á matsölustað og lá
því beinast við að fara þangað
inn, því þetta er stærsti mat-
sölustaðurinn í miðbænum. Eins
og við vitum öll, þá eru þarna
upp á hvern einasta dag túristar
að skoða landið. En þessi stað-
ur er örugglega sá lélegasti sem
til er hér í höfuðborginni. Geng-
ilbeinurnar (eins og Valdi kallar
þær) eru mjög dónalegar og af-
skiptasamar og hefur það geng-
ið svo langt. að ein fann að við
mig — á mjög dónalegan hátt
— er ég fékk mér kartöflur af
diski unnusta míns. Einnig ætti
almenningssími að vera þarna
afdráttarlaust en er varla við því
að búast þegar salernið er svo
skítugt, og dónalegt krot upp
um alla veggi, með brotnum
speglum á báðar hliðar, eða
svona var þetta nú fyrst þegar
ég kom þangað inn. En svo einu
sinni, er ég átti leið þarna um,
var allt lokað og læst á W.C.,
og verið að bora og berja. —
Jæja, hugsaði ég, — nú á að
fara að gera flnt á Hressó. En
viti menn, næst þegar ég þarf
á W.C., fer ég þangað inn, en
mikil voru vonbrigði mín, því
að þó komnir væru nýir speglar,
vaskar, flísar upp um alla veggi
og allt eins og á að vera á mat-
sölustað, þá voru engar W.C.-
rúllur á básunum, ekkert Ijós
þar inni og úti I einu horni stóð
ruslafata, svo yfirfull af græn-
um handþurrkum, að út úr
flæddi og var pappírinn út um
allt gólf, og auðvitað ekkert til
að þurrka sér á, nema ef maður
vildi tína upp notað blað af
gólfinu.
Eflaust hafa allir sem inn á
Hressó koma hlustað á gengil-
beinurnar taka á móti pöntun-
um af ferðafólki, sem ekki talar
íslenzku og hefur oft komið
vandræðasvipur á fólkið er það
uppgötvar, sér til mikillar skelf-
ingar, að stúlkan kann ekki ann-
að en íslenzku.
Ekki þarf nú mikinn lærdóm að
læra að bera fram á ensku það
helzta sem til er, t. d. „Thank
you" og „Here you are". Þessar
setningar ættu þær að læra að
bera fram á íslenzku. Ekki ganga
bara að borðinu og standa þar
og glápa á mann. Ef maður er
nú niðursokkinn í eitthvað, þá
heyrir maður sagt: „Hvað vilt
þú?"
Þakka birtinguna.
Þóra Sveinsdóttir.
Hróp úr biðstofu
ástariiinár
Kæri Póstur!
Ég þakka fyrst innilega fyrir þá
unaðslegu birtu sem Pósturinn
veitir inn í lif mitt með öllum
þeim lesendabréfum, því fátt er
frokostulegra en að lesa alvöru-
þrungin bréf varðandi örvar
Amors; þ. e. hvort hann eða
hún eigi að hætta við hann eða
hana vegna einhvers annars/
annarrar, sem hún/hann er
hrifnari af. Hann/hún hefur tek-
ið eftir því að hann/hún er allt-
af að glápa á sig og svo ert þú
spurður hvort það geti VIRKI-
LEGA verið, að þessi sæti strák-
ur eða sæta stelpa, sem alltaf er
að glápa, sé HRIFIN af henni
eða honum og þar fram eftir
strætum.
Hræðilega flókið! Mér fannst
mjög gaman að lesa þessi bréf
og furðaði mig blátt áfram á
því að fólk skyldi skrifa Póstin-
um um svo persónuleg vanda-
mál, sem það svo sannarlega
ætti að leysa sjálft.
En nú sit ég sjálfur í sömu súp-
unni. Ég er dauðástfanginn upp
fyrir haus og þegar maður er í
þess háttar ástandi þykist maður
enga raunverulega lausn hafa á
málinu og leitar því eftir að-
stoð annarra og sér reyndari
manna eða kvenna. í mínu til-
viki ert þú, ágæti Póstur, sá
eini sem ég get leitað til, og
þar sem komið hefur fyrir að
þú hefur gefið skynsamleg svör
við óskynsamlegum spurningum,
þá áræddi ég að skrifa þér um
sáluhjálparatriði mitt.
Vöxtur málsins er sá, að ég er
17 ára piltungur og er vægast
sagt mjög ástfanginn af 19 ára
gamalli stúlku, sem ég kynntist
fyrir nokkrum vikum. Um leið
og ég sá hana og talaði við
hana, sá ég að þarna stóð Ijós-
lifandi dís drauma minna.
Ég hef oft verið smáskotinn en
4 VIKAN 40. TBl.