Vikan - 07.10.1971, Side 33
Athugið
Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og
jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það
hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að
sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali.
Gott verð.
LITAVER
GffflSÁSVEGIZZ-a
SMAR: 30280-3ZZ6Z
BARN ROSEMARY
Framhald af bls. 22.
Hún lézt að vísu gleypa þaer,
en laumaði þeim þess í stað
undir dýnuna. Henni fannst
hún verða styrkari og frískari
með hverjum degi sem leið.
Stattu þig, Andy, ég kem!
Hún hafði lært sína lexíu af
skiptunum við Hill lækni. í
þetta sinn skyldi hún ekki leita
til nokkurs, ekki gera sér von-
ir um að nokkur tryði henni
eða brygði við henni til bjarg-
ar. Ekki lögreglan, ekki Joan
eða Dunstan-hjónin eða Grace
Cardiff, ekki einu sinni Brian.
Til þess var Guy of góður leik-
ari og Sapirstein of frægur
læknir. í sameiningu gæti þeim
jafnvel tekizt, að telja Brian
trú um að hún þjáðist af ein-
hvers konar brjálsemi, sem
dauði barnsins væri orsök að.
í þetta sinn skyldi hún taka
ein til sinna ráða, fara þangað
inn, sækja hann og hafa að
vopni lengsta og beittasta eld-
húshnífinn til að halda brjál-
æðingunum þeim arna í skefj-
um.
Hún var einum leik á und-
an þeim. Hún vissi — og þau
vissu ekki að hún vissi það —
um leynidyr á milli íbúðanna.
Keðjan hafði verið fyrir dyr-
unum nóttina þá — hún var
jafnviss um það og að höndin
sem hún horfði á var hönd en
ekki fugl eða orrustuskip — og
samt sem áður höfðu þau öll
komið vaðandi inn. Svo að það
hlutu að vera leynidyr.
Sögulok í næsta blaði.
ÉG VIL SPILfl MEÐ
ÖLLUM
Framhald af bls. 8.
trúi því að hann sé mikill lista-
maður, ótrúlega skapandi, ótrú-
lega klár, og hann veldur mér
vonbrigðum með plötunum
sínum. Mér finnst til dæmis
ekki eitt einasta gott lag á
,,Ram“. Ein og ein lína, það er
allt og sumt. Það er allt of
flókið fyrir mig. Mér finnst
hann hafa sóað tíma sínum;
mér finnst þetta bara. Mér
finnst það sorglegt að hann
skuli ekki fara í stúdíóin til að
gera það sem ég veit að hann
getur gert og ég er viss um að
hann veit það líka. Hann er
orðinn svolítið skrítinn, farinn
að gera undarlega hluti. Það er
eins og hann vilji ekki viður-
kenna að hann getur samið frá-
bær lög. Hann vill gera eitt-
hvað snúið og flókið rokk sem
er enginn vandi fyrir hann. •
Ég meina ... Paul er frábær,
en hann viðurkennir ekki fall-
egu lögin sem hann getur sam-
ið. Ég veit ekki almennilega ...
það er eins og hann sé farinn
að skammast sín fyrir þau, hann
er að reyna að skapa sér aðra
ímynd. Hann velur þá ímynd
sem honum dettur helzt í hug,
þú veizt. Mér finnst einfaldlega
að hann hafi svikið mig.
— Ykkur kemur samt vel
saman núna, er það ekki?
— Það varð strax betra eftir
réttarhöldin (þar sem Bítlarn-
ir voru leystir upp). Við
hringdum hvor í annan og töl-
uðum svolítið saman. Þetta var
svolítið skrítið á meðan við
stóðum í málaferlunum. Ég var
alltaf að hugsa með mér: „Hvers
vegna er hann að gera mér
þetta?“ en svo varð mér ljóst
að hann varð að gera það. Til
að fá út það sem hann vill fá
út, var þetta eina leiðin. Þess
vegna lítillækka ég hann ekki
fyrir þetta.
— Voru einhver leiðindi á
milli ykkar eftir þetta. mál?
— Eiginlega ekki. Einu leið-
indin voru þau, að þetta var
svo bindandi. Þetta varð til
þess að við gátum ekkert spil-
að á meðan. Þú veizt, lögfræð-
ingar á eftir manni alltaf stöð-
ugt, daga og nætur, milljón
smáatriða sem ég vildi ekkert
hafa með að gera, því ég vil
bara spila. Samt sem áður urð-
um við að ganga í gegnum
þetta. Maður verður að standa
upp og ganga í gegnum þetta
allt saman ef einhver þröngvar
manni inn í það og bað var það
sem skeði. Við urðum dálítið
meinlegir við hvern annan á
tímabili en við því var ekkert
að gera. Auðvitað var það órétt-
látt, en það var ekkert hægt að
f?era í því. Allt í einu er allt
öfugsnúið í kollinum á manni
og maður gerir skrítna hluti.
Sem persóna er hann mér ákaf-
lega kær, ég get ekki komist
hiá því að elska hann, annað
væri mér ómögulegt. Hann er
mér mjög mikilvægur.
— Hittist þið oft?
— Nei, hann er alltaf í Skot-
landi. Ég sá hann siðast þegar
Mick (Jagger) gifti sig. Það
var undarleg t.ilfinning, því þá
höfðum við ekki hitzt í meira
en ár en við vissum báðir að
aUt var í lagi. Ég mun aldrei. . .
enginn okkar mun nokkurn
tíma kfila nokkurn okkar eða
neitt slíkt. Við höfðum einfald-
lega ekki sézt í heilt ár og þá
var þetta undarlegt; halló og
allt það. Við urðum að ná al-
mennilega saman og gerðum
það. Við slítum aldrei samband-
inu við Paul.
— Hvað um söguna um að
John og George hefðu sent þig
til Pauls til að biðja hann að
bíða með að senda frá sér „Mc-
Cartneysvo hún kæmi ekki
út um leið og „Let It Be“ og
eyðileggði fyrir sölunni á þeirri
plötu?
— Þeir sendu mig alls ekki,
það er misskilningur. Bréfin
voru tilbúin. Þeir, sem forstjór-
ar fyrirtækisins — við erum
allir forstjprar einhvers fyrir-
tækis — skrifuðu honum bréf
um þetta og mér fannst ekki
réttlátt að einhver skrifstofu-
drengur færi með það til hans,
svo ég bauðst til þess. Ég var
að tala við þá á skrifstofunni í
símanum og þá fóru þeir að
segja mér um þetta allt saman
og ég sagði: „Sendið mér það,
ég skal fara með það. „Ég gat
ekki hræðst hann þá. En hann
varð reiður vegna þess að við
vorum’að biðja hann að bíða
með plötuna og platan var hon-
um mjög mikils virði.' Eftir að
ég var farinn frá honum —
jæja, þetta hefur allt komið
fram áður, í réttinum. Hann
skipaði mér að koma mér út.
Hann varð vitlaus, hann varð
alveg stjörnuvitlaus. Mér fannst
það allavega. Ég varð ægilega
niðurdreginn, því ég gat ekki
trúað að þetta væri að koma
fyrir mig. Ég kom bara með
bréfið og sagði honúm að ég
væri sammála hverju orði í
því, vegna þess að þá reyndum
við að starfa saman eins og fyr-
irtæki en ekki eins og einstak-
lingur. Ég sendi mína plötu frá
mér hálfum mánuði áður og
jafnvel þótt það geri það að
verkum að ég virðist góði
strákurinn, er það ekki rétt, því
ég varð að senda mína plðtu
frá mér áður en Paul sendi sina
á markaðinn. Að öðrum kosti
hefði hún kafnað í fæðingunni.
—. Það er þá ekki satt að
hann hafi ráðizt a þig?
— Nei, hann bara æpti og
benti á mig. Það er fyndið núna.
Allt verður fyndið tveimur ár-
um síðar, en ég er næmur fyrir
svona hlutum. Það hefur mikil
áhrif á mig og í mínum augum
40. TBL. VIKAN 33