Vikan - 18.05.1972, Page 6
SÍÐAN SÍÐAST
LANDSINS FORNI FJANDI
Hafísinn er fleirum til ama en okkur
íslendingum, þannig hafa olíuhring-
arnir stórar áhyggjur af því að hann
hindri leitarboranir þeirra á norður-
heimsskautssvæðinu. Dansk björgunar-
fyrirtæki hefur nú komið fram með þá
tillögu að eftirlit sé haft með því úr
lofti hvort hættulegir borgarísjakar
nálgist borstöðvarnar og síðan sé þeim
hnýtt aftan í dráttarskip og þeir hal-
aðir á brott. Öðrum finnst hafísinn
langt í frá svo bölvaður; þannig eru
nú kalifornískir vísindamenn að at-
huga möguleika á að draga ísjaka
suður að strönd ríkis síns og bræða
þá þar í ferskvatn til neyzlu.
LISTFENGUR
SALNAHIRÐIR
John Peliing, fertugur prestur í Kens-
ington í Lundúnum, hefur lagt fyrir
sig frístundaverk, sem kvað ekki mjög
algengt í hans stétt. Hann málar gríð-
arstórar myndir og helzt með nakin
módel sem fyrirmynd. Málverk hans
eru einkum af svarthærðum stúlkum,
austrænum útlits og langfættum. „Þær
eru svo svipbrigðaríkar," segir séra
Pelling.
HÖFRUNGARIHERNAÐ
Nýlega birtist í dagblöðum hér á landi
frásögn af nýjung í hertækni Banda-
ríkjamanna í Víetnamstríðinu; var hún
á þá leið að nú væru þeir teknir að
vopna höfrunga (eitt blaðið gerði sér
að vísu lítið fyrir og breytti þeim í
skjaldbökur) til neðansjávarhernaðar
gegn andskotum sínum. Við gerum bet-
ur og birtum hér mynd af einum þess-
ara nýju liðsodda Nixons. Sex slíkir
höfrungar voru.um eins árs skeið hafð-
ir til varðgæzlu í Cam Ranh-flóa gegn
froskmönnum Þjóðfrelsisfylkingar
Suður-Víetnams, sem voru skæðir með
að sprengja í loft upp skip kananna,
sem lágu við akkeri í flóanum. Þjálf-
ari hvalfiskanna batt sverð við trýnið
á þeim og auk þess voru fest við þá
leitartæki, sem þeir fundu óvinina
með. Síðan var þeim fjarstýrt til árás-
ar á froskmennina. Þetta gekk svo vel
að meðan höfrungarnir voru hafðir í
flóanum tókst kongunum ekki að
sprengja eitt einasta skip.
FORDÆMIR NYTT RITOAL
Maurice Lelong, sjötíu og tveggja ára
klerkur af reglu Dóminíkana, hefur í
meira en þrjátíu ár á hverjum sunnu-
degi sungið messu í franska útvarpið.
En nú hefur þessum æruverða föður,
sem ræktar það kristilega dýr asnann
í frístundum, verið vikið frá útvarpinu.
Ástæðan er sú að hann réðist nýlega af
hörku á ýmsar nýjungar í helgisiðum
kaþólsku kirkjunnar. „Gömlu litúrgí-
unni hefur verið kasta á glæ. Lítill og
menningarlaus hópur hefur innleitt
nýja helgisiði, sem eru í beinni and-
stöðu við erfðir kirkjunnar,“ segir
gamli maðurinn.
JÁRNTEDDI
í Lundúnum, þar sem allir málsmet-
andi menn verða að vera ,í einum
klúbbi eða fleirum, er meðal annarra
klúbbur kenndur við heilagan Stefán.
Meðlimir hans eru mikið íhald og hafa
í samræmi við það mikla elsku á nú-
verandi forsætisráðherra Breta, Ed-
ward Heath, sem nú er fimmtíu og
fimm ára að aldri. Nýlega fengu þeir
listmálara að nafni Terence Cuneo til
að gera málverk það af forsætisráð-
herranum, sem myndin sýnir. Að ósk
klúbbmanna sýndi málarinn Heath
grimmilega ábúðarmikinn og með stál-
kennt blik í augum. Andstæðingum
Heaths, en þeim hefur fjölgað mjög
vegna afstöðu hans í verkfalli kola-
námumanna, þótti myndin líka vel við-
eigandi, og hið víðlesna blað Daily
Mirror kallaði hana „Járntedda“.
MARLON BRANDO
leikur aðalhlutverkið í nýrri kvik-
mynd, sem verið er að taka og heitir
„Illu andarnir". Hann leikur bryta,
sem stjórnar börnum húsbænda sinna
með svartaga-ldri og heldur við
kennslukonu þeirra. Hana leikur
Stephanie Beacham. Hún er ekkert
spennt fyrir þessum fræga mótleikara,
segir að hann sé „ekkert annað en lít-
ill og feitur karl.“