Vikan


Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 26

Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 26
„STEINALDARMENNIRNIR ERU MÍN FYRIRMYND... ... ÞEIR REYKTU EKKI OG DRUKKU EKKI, EN HLUPU MIKIÐ OG ÁTTU SÆG AF BÖRNUM“ EFTIR ÓMAR VALDIMARSSON. Ekki alls fyrir löngu fór blaðamaður Vikunnar með Ómari Ragnarssvni i flugferð norður á Blönduós, þar sem Ómar skemmti á Húnavöku. Ferðasagan fer hér á eftir og er viðtali fléttað inn í hana. Klukkan var orðin hálf sjö að kvöldi föstudagsins 21. apr- íl þegar við lögðum af stað frá Reykjavíkurflugvelli. Ómar Ragnarsson, Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, Magnús Pét- ursson, píanóleikari, sem er tímabundinn undirleikari Óm- ars á meðan hans reglulegi undirleikari, Haukur Heiðar, lýkur prófum í læknisfræði. — Fjórði maður var undirritaður blaðamaður Vikunnar. Ferð- inni var heitið á Blönduós, þar sem Ómar átti að skemmta á svokallaðri „Húsbændavöku" Húnavöku íbúa sýslunnar og Páll átti að halda ræðu á sömu samkomu. Þegar okkur ljósmyndarann bar að, var Páll mættur og sól- aði sig í veðurblíðunni. Á með- an beðið var eftir þeim Ómari og Magnúsi var mestmegnis tal- að um veðrið og kemur mér nú í hug, að sennilega er heldur ósmekklegt að tala um veðrið við veðurfræðinga. Fljótlega kom þó að því að Ómar renndi snaggaralega upp að flugvél- inni sinni, TF-FRÚ, og sagði: „Ætli sé ekki bezt að gefa kerl- ingunni svolítið að drekka áður en við förum af stað. Annars er aldrei að vita upp á hverju hún tekur!“ Við vorum staddir einhvers- staðar upp af Borgarfjarðardöl- um þegar ég gerði mér grein Séð niður í Miðfjörð úr TF-FRÚ Ómars fyrir því, að Ómar var búinn að nefna hverja einustu þúfu sem sjáanleg var á jörðu niðri — og þær voru svo sannarlega nokkr- ar í heiðríkjunni. Langt í fjarska voru nokkur ský og lét Ómar sér ekki muna um að þylja upp nöfn fjalla, hóla, ása og þúfna þar á bak við. í stuttu máli sagt þekkir hann landið, eins og það leggur sig, jafn vel og freknótt handarbökin á sér. „Að vísu fékk ég ahuga á flugi strax sem barn, en raun- verulega fór ég útí flugið fyrir áhuga á landafrœði. Ég fékk mjög slœma dellu þegar ég var strákur. Þá lá ég veikur og pabbi gaf mér landakort, parta- kort, og ég fór að stúdera þau. Lá yfir þeim í veikindunum og fékk til að nefna alveg óstöðv- andi áhuga á hœðartölum. Síð- ar kom það sér mjög vel fyrir flugið og ég held því alltaf við, Ragnarssonar. þótt það sé náttúrlega heldur þröngt svið! Svo í skóla fór ég að dunda við að teikna ísland fríhendis og náði nokkurri œf- ingu í því. Allavega kom það sér andskoti vel í landsprófi, því þá fengum við það verk- ejni að teikna Vestfirði og ég gerði það, rétt si svona. Próf- dómurunum þótti það víst frek- ar grunsamlegt og voru þeir lengi að velta vöngum yfir þessu Vestfjarðarkorti ■mínu. Þetta er svipað því er menn fá áhuga á því að teikna manna- myndir, eru að því öllum stund- um, en ég fékk óslökkvandi áhuga á að teikna landakort." Húnaflóinn var ótrúlega fall- egur þegar við komum þar yfir. Hvergi sá ský á himni og sjór- inn var svo sléttur, að fyrir neðan okkur sáum við flugvél- ina speglast í haffletinum. Flugvöllurinn er pínulítil ræma rétt fyrir utan bæinn og þar var flugvallarstjórinn á rauð- um Moskvits — sem jafnframt gegndi því merkilega hlutverki að vera flugturninn á staðnum. Ómari var tekið sem eðalborn- um manni í Danmörku og við vorum keyrðir inn í bæ og að Samkomuhúsi Blönduóss, þar sem skemmtunin var í þann veginn að hefjast. Páll átti að hefja samkomuna með ræðu sinni og þar sem Ómar átti ekki að koma fram fyrr en undir klukkan tíu, var tekin ákvörð- un um að fara á hótelið og borða, þar eð matartíminn hafði farið í flugferðina. Verið var að ljúka við fréttalesturinn í sjónvarpinu þegar við komum inn og þeir fáu gestir sem voru fyrir í matsalnum hrukku við þegar Ómar birtist í dyrunum; hafa sjálfsagt búist við að fá eitthvað huggulegt um íþróttir á skerminn. 26 VIKAN 20. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.