Vikan


Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 38

Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 38
um um það bil fimmtán ein- staklingum á dag. Hún hefir sérhæft sig í stuttbylgjumeð- ferð og svo aðstoðar hún mig líka við prjónaaðgerðirnar. Hún fer bráðum að geta annast þær upp á eigin spýtur. Bakveiki algengust Erik Bergström hefir fengizt við flesta algenga sjúkdóma, nema þá, sem hann má ekki skipta sér af, vegna laganna, eins og t.d. krabbamein og marga aðra banvæna sjúk- dóma. í Skotlandi voru það einkum liðagikt og bronkitis, sem hann hafði með að gera, en í Svíþjóð er það aðallega fólk með veikt bak, sem leitar hans. Prjónameðferðin gerir held- ur ekkert gagn, ef um vírus- sjúkdóma er að ræða. Erik Bergström hefir ekki hugmynd um hversvegna það er, en það er einföld staðreynd. — Ég hefi heldur engan, áhuga á því að ganga inn á svið læknanna eða að koma í staðinn fyrir þá. Það væri gott fyrir sjúklinga ef hægt væri að hafa samvinnu. — Og eitt skaltu hafa í huga, segir Erik Bergström, — ég held því ekki fram að ég geti læknað fólk, þannig er því ekki varið. Mótsett við skurð- lækna, sem taka í burtu kannski heil líffæri, þegar þess gerizt þörf, þá er það mitt svið að losa um þrengsli, stíflur og annað, sem kemur í veg fyrir að líkaminn geti læknað sig sjálfur. ☆ RIFRILDIÐ SEM GETUR BJARGAÐ... Framhald af hls. 11. segir dr. Bach. f vondu rifrildi er komið með niðrandi setn- ingar og það dregið fram sem mest getur sært. Dæmi: „Þú hefir brenglaðar kynferðishvat- ir.“ „Þú ert með ödipusflækju" og „þú ert gleðimorðingi". í vondu rifrildi reynir hvor fyrir sig að eiga síðasta orðið. Að rífast bréflega eða í sima er oft notað í vondu rifrildi: orðin standa svört á hvítu og það er líka auðvelt að leggja símtólið á, þegar maður hefir skotið frá sér eitraðri ör. Sumar ástæður og aðstæður geta verið háskalegar hjóna- bandssælunni. Eftir að fyrstu rósrauðu skýjunum léttir og hversdagsleikinn tekur við af hveitibrauðsdögunum, get.ur þurft að fara að öllu með gát. Þá reynir á aðlögunarhæfileik- ana og það getur verið snjallt ráð að viðra þá við og við með hressilegu, góðu rifrildi, segir dr. Bach. Sumarfrí er oft þrœtuepli Það fylgja oft allskonar vandamál, þreyta og óvissa fyrsta barnsburðinum, en þau vandamál læknast venjulega af sjálfu sér, með góðum vilja. Kynferðisvandamál valda líka oft misklíð. En þá þræta hjónin oft um eitthvað allt ann- að, og fara kringum hina raun- verulegu ástæðu fyrir óánægj- unni, eins og köttur kringum heitan graut. Og einu sinni ennþá leggur dr. Bach áherzlu á hve nauðsynlegt það sé að finna hina raunverulegu deilu- ástæðu. Oft rísa upp miklar deilur út af sumarleyfum. Sumarleyfin eiga að vera svo allt öðru vísi en hversdagsleikinn, unaðsrík og skemmtileg. En oft á tíðum verður þetta þverfugt, hjónin koma heim örþreytt og ergileg. Til að komast hjá vonbrigðum er nauðsynlegt að gera sér ljóst fyrirfram hvað fyrir getur komið, svo maður sé viðbúinn sð taka á móti erfiðleikum með glöðu geði. Dr. Bach segir að fólk rífist vegna þess að því þyki vænt hvoru um annað. Jafnvel handalögmál bera vott um það, þótt þau séu ljót er það samt betra en að þegja. — En, segir dr. Baeh, — handalögmálið er ljótt og lé- legt deiluefni. Það sýnir að rétt rök fyrir þrætumálum eru ekki fyrir hendi. Það hefir ekki ver- ið kafað til botns. : ■ ;r. c i» - — *- ' ~ ______ STORMUR f TEKATLI Framhald af bls. 15. svo skynsöm að flokka þá nið- ur, þangað til hún komst að raun um, að Gordon hæfði henni bezt, og þá hafði hún orðið ástfangin af honum. „Það er alltaf þannig, að annar aðilinn elskar og hinn er elskaður," hafði hún sagt við Jenný með sínu sæta og gáfu- lega brosi. Gordon var auðvit- að vitlaus í henni, hvernig mátti annað vera? Hann var líka steinhissa yfir þeirri beppni að hún skyldi velja hann. „En þú elskar hann vissulega líka?“ spurði Jenný áköf. „Auðvitað,“ sagði Angela. „Ég fullvissaði mig einungis um, að ég elskaði rétta mann- inn. Ég veit, að ég verð ham- ingjusöm." Tveim árum seinna hafði hún reynt að fá Jenný til að líta Pál jafn skynsömum aug- um.“ Elskan, þú elskar hann, láttu það ekki loka augunum á þér fyrir því, hvernig hann raunverulega er.“ „Við elskum hvort annað,“ sagði Jenný þrjózkulega. „En mun það endast?" spurði Angela og lagði mjúku, hvítu höndina með silfurlitu nöglun- um á handlegg systur sinnar. „Það erum við viss um. Og þó að ástin breytist í eitthvað svalara og rólegra, verður það samt dásamlegt." Demantar Angelu glitruðu, þegar hún dró að sér höndina. „Páll hefur éitthvað svo hræðilega einbeitt við sig,“ sagði hún. „Mér væri ekki um sel." „Mér er alveg sama,“ sagði Jenný ákveðin. En það hefði mér ekki átt að vera, hugsaði hún döpur þar sem hún stóð við bleiku útihurðina hjá Angelu. „En hvað þú kemur mér skemmtilega á óvart,“ kallaði systir hennar upp yfir sig og dró hana inn í forsalinn. „Ég var einmitt að hugsa um þig, hvað er nú?“ Jenný gat ekki lengur haldið aftur af tárunum, þau streymdu niður kinnarnar og niður á fallega jersey-kjólinn hennar Angelu, þegar hún faðmaði litlu systur sína að sér. „Ó, Jenný, elskan, hvað hef- ur hann gert?“ spurði hún og hin næma systurlega getspeki hennar hafði fundið réttu ástæðuna. „Það var teið,“ sagði Jenný eymdarlega. „Ef það hefði ekki verið vegna tesins, hefði ég verið kyrr. Og svo að hann gleymdi afmælinu mínu og svo margt og margt.“ „Te? Komdu nú og seztu nið- ur og við skulum fá okkur kaffisopa og þú getur sagt mér allt,“ sagði Angela og fór með systur sína inn i eldhúsið, sem virtist jafnvel enn hreinna en eldhús Jennýar eins og hún hafði skilið við það. „Hvað er þetta?“ snurði Jenný og tárin tóku að þorna vegna áhuga hennar á einhvers konar Ijómandi fallegri nýrri vél. „Unpþvottavélin,“ sagði Ang- e^a brosandi. „Gordon heimtaði að ég fengi eina.“ „Ó en dásamleg. Var þetta afmælisgjöfin þín?“ „Ó, nei,“ Angela virtist hálf- móðguð. „Ég skal nú sýna þér hana eftir augnablik, hún er uppi í svefnherberginu." Auðvitað hlaut það að vera eitthvað fallegt, hugsaði Jenný og mundi, að Gordon var aldrei svo heimskur, að hann færi að gefa Angelu eitthvað, sem ekki félli í hennar persónulega smekk. „Segðu mér nú frá,“ sagði Angela um leið og þær tóku kaffið með sér inn í hina töfr- andi setustofu, stofu, sem var full af birtu, sólskini og dýrum húsbúnaði. „Alveg frá byrjun," bætti hún við og hallaði sér áfram með glampa í augunum. „Hvernig get ég byrjað á byrjuninni?" sagði Jenný. „Þetta er svo margt. Ég hefði aldrei átt að giftast honum. Við pössum ekki saman.“ „Hm,“ sagði Angela. „En ég skelli ekki skuldinni bara á hann. Hann væri sjálf- sagt ágætur með einhverri ann- arri. En það er ég. Ég er ekki sú rétta handa honum.“ „Þú ert indæl,“ sagði Angela. „Þú ert sú rétta fyrir alla. Þú ert bara of góð, það er gallinn.“ „Ég er subba," sagði Jenný, og dýri postulínsbollinn glamr- aði við undirskálina. „Subba! Sagði hann það?“ Munnur Angelu herptist saman. „Það sagði hann síðast í morgun." „Ó, Jenný. Hvað komstu með mikinn farangur? Bara þessa litlu tösku ... Ertu hætt í vinn- unni? Auðvitað flyturðu til okkar. Hann getur sent afgang- inn af dótinu þínu hingað.“ Angela stóð upp og fór að ganga fram og aftur um stof- una. f svip hennar blandaðist saman áhugi, fjör og reiði. Jenný vissi ekki hvaða spurn- ingu hún ætti að svara fyrst og sagði: „Ég hringdi á skrifstof- una til að segja, að ég væri ekki vel hress í dag. Og það var ekki lygi, mér leið hræðilega." „Subba!“ æpti Angela, „hvernig vogar hann sér ...“ „Hann segir, að ég sé ósnyrti- leg, hafi aldrei reglu á hlutun- um og viti aldrei hvar neitt sé. Ég býst við, að þetta sé satt, en hann er bara ósnyrtilegur líka. Ég býst við, að hann vilji, að ég taki til eftir hann.“ „Það er ég viss um! Og sért ambátt hans eftir að vera búin að vinna úti allan daginn!“ „Hann hjálpar nú til,“ sagði Jenný. „Við skiptum með okk- ur húsverkunum." Allt i einu sá hún sjálfa sig og Pál í huganum, bar sem bau útbjuggu kvöldverðinn í sam- 38 VIKAN 20.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.