Vikan - 01.06.1972, Blaðsíða 46
MIPftPRENTUN
Takiö upp hina nýju aðferð og látið prenta
alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, til-
kynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír. Höf-
um fyrirliggjandi og útvegum með stuttum
fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLVSINGA
HILNIR hf
Skipholti 33 - Sími 35320
minn bað mig þess, en ég ein-
faldlega gat það ekki. Móðir
mín hefði ekki getað það held-
ur.“
Dr. Jiirgen Burkhardt, dóm-
iar í Miinchen, segir: „Ef Edith
Simon hefði af meðaumkvun
látið undan föður sínum og
hjálpað honum til að stytta sér
aldur, væri hún sek orðin að
lögum. Þar stendur að hver,
sem deyðir mann að einlægri
bæn hans, skuli sæta fangelsis-
vist frá sex mánuðum til fimm
ára. En síðustu dagar Eduards
Simons — var hægt að kalla
það „líf“?
Læknar, prestar og lögmenn
sjá sér ekki annað fært en svara
þessari spurningu játandi.
Dr. Lothar Witzel, læknir og
vísindamaður starfandi við há-
skólann í Nurnberg-Erlangen,
orðar sitt svar sem svo: Ein
ástæðan til þess, að ekki er
hægt að stytta manni aldur,
hversu veikur sem hann er og
hversu mjög sem hann óskar
dauðans, er að kannski strax á
morgun gæti uppgötvast lyf,
sem gæti bætt þann sjúkdóm.
Annar læknir, sem spurður
var þessarar spurningar, sagði
frá skólafélaga sínum, sem
veikst hafði af Edocarditis lenta
(bólgu í himnunni innan á
hjartanu). Sá sjúkdómur var þá
ólæknandi, og stúdentinn
framdi sjálfsmorð. En aðeins
hálfu ári síðan tókst í fyrsta
sinn að lækna tilfelli af sjúk-
dómnum með sulfonamide.
Sánkti Kristófers-spítalinn í
Lundúnum segir sína sögu um
að fljótt gæti gengið út í öfgar
ef farið yrði að slaka á hinu
stranga banni við líknardauð-
anum. f sjúkrahús þetta, sem
rangnefnt hefur verið „dauða-
klínik" eru að vísu einungis
lagðir inn sjúklingar, sem önn-
ur sjúkrahús hafa gefið upo á
bátinn. Engu að síður yfirgefa
fimmtán prósent sjúklinganna
sjúkrahús þetta spillifandi, og
dæmi eru til þess að þeir hafi
eftir það hjarað allt að fjórum
árum við sæmilega líðan.
Dr. Cecily Saunders, sem
veitir sjúkrahúsinu forstöðu,
treystir á fleira en, tæki og lyf
til baráttunnar gegn dauðan-
um. „Hræðsla og örvænting,
áhyggjur af fjölskyldunni, ein-
manaleiki og vonleysi er oft
erfiðara viðfangs en krabbi,“
segir hún. Hún leggur því,
áherzlu á að styrkja sjálfstraust
og andlegt öryggi sjúklinganna.
Tilraun hennar hefur tekizt svo
vel að nú stendur til að reisa
fleiri slík sjúkrahús fyrir dauð-
vona fólk. ☆
— Þessi hattur klæðir yður
líómandi vel.
46 VIKAN 22. TBL.