Vikan - 29.03.1973, Blaðsíða 4
Ef bn crt a9:
bí lítti vH í LitavcrL
hri baO ticfor avatlt
barocðsig
n LITAVER
Sítnar 3226Z - 30280 oo 30080
Grensásvooi 22-20
PÓSTURINN
Pennavinkonur
og stjörnuspá
Kæri þáttur!
Ég þakka þér fyrir allt gamalt
og gott. Ég hripa þetta niður,
vegna þess að mig langar til að
kynnast pennavinkonum mínum
af stjörnuspánni fyrst, og svo
síðar í sumar hef ég í hygg|u
að leggja land undir fót og ferð-
ast á milli þeirra allra og kynn-
ast þeim síðan betur. Þess vegna
spyr ég, og ég tek það fram, að
ég er í meyjarmerkinu, hvernig
á mærin við nautið, tvíburana,
krabbann, meyna, drekann,
vatnsberann og fiskana? Hvern-
ig er svo skrlftin? Ég spyr nú
ekki um stafsetninguna.
Þó slæ ég botninn brotinn
í bréf þetta, já.
Ég hugsa um þig [ herðum lotinn
og hvernig er nú mjá?
Með fyrirfram þakklæti.
H.Á.S.
Ja, tarna er aldeilis skipulega
farið í hlutina og eins gott fyrir
þig að leggja vel undirbúinn f
þessa „glæfraferð". Naut, tví-
bur og krabbi eiga vel viS
meyna, tvær meyjar eru taldar
hæpnir förunautar, en vogin
getur ótt vel við meyna, ef vog-
in hefur hemil á ástriðum sín-
um, og þaS sama getur átt viS
um samband meyjar og dreka.
SambúS meyjar og vatnsbera
getur brugSið til beggja vona,
og þaS sama gildir um meyna
og fiskana. Treystu svo eigin til-
finningum og smekk bezt, og
þá fer þetta vonandi vel hjá þér.
Skriftin er heldur kæruleysisleg,
og visan í lok bréfsins er hræSi-
legt bull, þó stuSlasetning sé
rétt, svo að viS leggjum til, að
þú reynir ekki aS slá um þig
meS frumortum Ijóðum til þess
að ganga í augun á vinkonum
þínum.
Um húsbóndaárið
og fleira
Kæri Póstur!
Ég ætla að biðja þig að svara
nokkrum spurningum fyrir mig.
1. Hvernig stendur á því, að
strákarnir ná þroskanum miklu
seinna en stelpur?
2. Má kvenfólk vera ( íþróttum
eða vinna erfiðisvinnu, þegar
það er á túr?
3. Getur kona orðið ófrísk, ef
hún er á túr?
4. Ef kona er með háan blóð-
þrýsting, verða þá óeðlilegar
blæðingar?
5. Er kynvilla mjög algeng?
6. Ég er hrifin af strák, en er
mjög feimin við hann. Ég veit,
að hann elskar mig, en hann
er jafn feiminn við mig og ég
við hann. — Hvernig á ég að
krækja í hann?
7. Hváð lestu úr skriftinni?
Ég vona,’ að þú birtir þetta, mér
liggur á að fá svör við þessu.
Þakka gott efni Vikunnar, sér-
staklega 3m — músík með meiru.
S.B.T.
^____________>v
1. Ætli náttúran hafi ekki bara
komiS þessu svona haganlega
fyrir, svo karlmaðurinn hefði
frekar húsbóndaárið yfir kon-
una!
2. Kvenfólk má gera allt, sem
þaS treysfir sér til, undir þess-
um kringumstæSum.
3. Ekki á svo aS vera.
4. ViS vitum ekki til þess, aS
neitt samband sé þar á milli.
5. Ekki er hægt aS segja þaS.
6. Séuð þiS bæSi svona afskap-
lega ástfangin, þá hlýtur aS
koma aS því, aS saman dragi
meS ykkur. Reyndu aS harka af
þér feimnina og brosa til hans.
7. Skriftin gefur til kynna, að
þú sért tilfinningarík.
Alltaf illa lyktandi
Heill og sæll kæri Póstur!
Ég á við svolítið einkennilegt
vandamál að stríða. Ég er á
heimavistarskóla og sé þar af
leiðandi um mig sjálf að mestu
leyti. Ég get ekki sagt, að ég sé
óhreinleg, að minnsta kosti fer
ég í bað tvisvar f viku og skipti
* oft um nærföt. Það, sem háir
mér, er að mér finnst alltaf vera
vond lykt af mér, sérstaklega
kynfærunum. Ég finn þessa lykt
alltaf, þó ég sé nýkomin úr baði.
Mér finnst ég alltaf vera skítug
út af þessu og finnst sem allir
forðist mig vegna lyktarinnar.
Ég hef reynt að nota alls konar
lykteyðandi krem og „spray",
en ekkert virðist duga. Getur
þetta verið eitthvað í sambandi
við kynsjúkdóma og þá hverja?
4 VIKAN 13. TBL.