Vikan - 29.03.1973, Blaðsíða 39
stundum nefnt sakramenti
Heilags anda eða ferming.
Fermingin fékk þá merkinguna
styrking eða efling. Hinn fermdi
fékk styrk Heilags anda til
eflingar trúarlifi sinu. Hann átti
aö vera hermaður Krists i
veröldinni. Hér eru þá tilkomin
áhrif riddarahugsjónarinnar.
Slíkur er skilningurinn, þegar
siöbótin kemur til sögunnar.
Þessari fermingu afneituðu
siðbótarmennirnir. Hún var ekki
sérstakt sakramenti, að þeirra
hyggju, þvi að-hana skorti þau
einkenni,sem sakramenti þarf að
hafa að skilgreiningu Bibliunnar.
Fermingin átti hvorki sérstakt
fyrirheit né sýnilegt tákn, ef hún
var slitin úr tengslum við
skirnina eins og nú var orðið.
Þrátt fyrir þetta tóku lútherskir
menn upp fermingu, en i öðrum
skilningi. Þetta gerðist þegar á
fyrstu áratugum siöbótarinnar.
Fermingin varð þvi sums stað-
ar viðhafnarsiöur við lok
uppfræðslunnar. Ánnars staöar
var enginn viöhafnarsiður, heldur
próf að lokinni uppfræðslu, er
veitti aðgang við altarissakra-
mentinu.
A Norðurlöndum var fermingin
ekki tekin upp sem athöfn nema á
tslandi. Það var Guöbrandur
Þorláksson, Hólabiskup, sem
gerði það i biskupsdæmi sinu árið
1596. Skipan hans hélzt til ársins
1694 viða á Noröurlandi. Þessi
fermingarathöfn Guðbrands
hafði að fyrirmynd þýzka
fermingarskipan. Hún var fólgin i
þvi, að börnin gengu upp að
altarinu meö foreldrum sinum og
gerðu þau þar grein fyrir trú
sinni. Þetta var nokkurs konar
fermingarpróf. Siöan var þeim
flutt hvatningarávarp um að
standa stöðug i trú og hlýðni.
ásamt árvekni i bænum. Siðan
báðu börnin bænar um það,að þau
fengju staðist i trúnni og höfðu
þau bænina eftir prestinum. Að
þvi búnu voru hendur yfir þau
lagöár með bænargjörð og að þvi
búnu neyttu þau altarissakra-
mentisins.
Eftir 1694 hefir fermingar-
athöfnin lágzt niður, • en
uppfræöslunni einni haldiö,
þangað til fermingarathöfn er
aftur innleidd með konungsbréfi
1741.
1 tiö Guðbrands biskups, og
meöan fermingarskipan hans
hélzt i Norðúrlandi, fór ferming
fram, þegar börn voru 10 ára eða
12 eða 14 ára eftir kunnáttu. Þau
áttu að kunna Fræöi Lúthers hin
minni meö skýringum hans.
Undirbúningur hófst, þegar börn
voru 6 eða 7 ára. Prestar skyldu
fylgjast með uppfræðslunni og
fara i þvi skyni þrisvar á ári, hiö
fæsta, um sóknir sinar.
1 siöara fermingaratferli, eða
eftir endurupptöku 1741 og næstu
ár, þá eru sömu spurningar
lagðar fyrir börnin i fermingunni
og lagöar höföu verið fyrir guð-
feðgin viö skirn barnanna.
Þannig staöfesta börnin þaö, sem
áður var heitiö fyrir þeirra hönd.
Sömuleiðis eru þau spurð úr
fræðunum og siðan lagðar
hendur yfir þau með bænagjörö.
Þá er neytt altarissakra-
mentisins.
1 handbók presta frá 1910 er
gert ráö fyrir þessari yfirheyrslu
á kirkjugólfi.
Börnin gera þar sameiginlega
játningu trúarinnar með þvi að
fara með postullegu trúar-
játninguna. Siðan er bæn með
handayfirlagningu, þar sem þess
er beöið, að barnið fái haldizt i
skirnarnáö sinni.
1 siðustu handbók presta frá
1934 er áþekkt atferli. Þó er ekki
gert ráð.fyrir yfirheyrslum við
fermingu. Samt hafa sumir
prestar iðkað einhvers konar við-
ræöur viö fermingarbörnin,
þegar fermt er, en þessar
viðræður eru hvorki próf né yfir-
heyrslur. 1 þessari handbók
presta er hins vegar spurning,
sem miðar viö heit og lögð fyrir
hvert barn. Þetta er heit um það
áform aö hafa Jesúm Krist aö
leiötoga lifs síns. Þetta heit miðar
við þátttöku i tilbeiðslu og kristna
umgengni i samfélagi manna.
Með lútherskum mönnum ber
að skoða ferminguna sem opin-
bera játningu á trú kirkjunnar
eftir að uppfræðsla hefir farið
fram og sömuleiöis sem yfir-
lýsingu einstaklingsins fyrir
söfnuði og samfélagi, að hann
vilji gera trú sina virka bæði i til-
beiöslu og atferli manna á meöal,
að óhætt sé að reikna með honum
sem kristnum manni.
Aðgangur að altarissakra-
mentinu hefir verið bundinn
fermingunni. Þaö er hvorki
æskilegt né rétt að tengja neyzlu
altarissakramentisins fermingu,
sem miðar við 14 ára
aldurstakmark. Ég tel, að þaö sé
löngu fyrr, sem börn eru til þess
fallin að iöka þessa tilbeiöslu, ef
þau hafa alizt upp með þeim, sem
miða lifsháttu sina við kristna
trú, eru uppfrædd meö fordæmi
ástvina sinna og eru sjálf trúuð
börn. Altarissakramentið og
tilbeiðslan miöar viö trú. Börn
eru vel hæf til aö bergja sakra-
mentið með trú bernsku sinnar.
Fjórtán ára aldurstakmark er
bæði vafasamt og háskalegt, sem
hindrar eölilega tilbeiðsluhætti
barna um langan tima og stuðlar
aö afrækslu sakramentisins, sem
er hin eiginlega guðsþjónusta
kristinna manna, sett af Kristi
handa játendum hans.
—oOo—
Meö þessum oröum tel ég, að
gerðhafi veriö skilmerkileg grein
fyrir fermingunni og gildi
DRIUUR
Veiðihjól og veiðistengur.
Beztu gjafavörurnar
Sportval
Laugavegi 116 - Simi 14390
VIÐAR-ÞILJUR
í miklu úrvali(panel-borð og plötur)
Einnig nýkomið IDULUX loft og veggplötur,
50x50 cm.
MADISON-harðplastplötur
HARÐVIÐARSALAN S/F
Grensásvegi 5 — sipiar 85005 og 85006
PöntunarseSill
KLIPPIÐ HÉR
a:
HU
X
©
CL
O.
I
Vinsamlegast sendið mér sniðið, sem ég krossa framan við, f því
númeri, sem ég tilgreini. Greiðsla fylgir með f ávfsun/póstávísun
/frímerkjum (strikið yfir það sem ekki á við).
....... Nr. 75 (5084) Stærðin á að vera nr........
Vikan - Simplicity
oc.
HU
X
Q
Q-
CL
Nafn
I Heimili
KLIPPIÐ HÉR
13. TBL. VIKAN 39