Vikan - 29.03.1973, Blaðsíða 25
Ilér sjáuni við
kúpuhúsin
lians Doernachs,
sem talað er upi i
greininni.
I>au stóðust ekki
prófið sent fljótandi
hús, en eru nú til
sýnis á þurru landi
i Liidenscheid.
Fáir mundu vilja
búa til lengdar
i þessum litla kofa,
enda er hann
hugsaður sem neyðarskýli.
Hann er gerður úr
frauðkenndu efni,
sem er sprautað úr
eins konar b.vssu,
og þannig má reisa
skýli sem þetta
á ódýranog
fljótlegan hátt.
I>vi er ekki ætlað
að endast lengi,
heldur að leysa sárustu
neyö fólks,
sem verður fyrir
barðinu á
óblíðum náttúruöfluin.
....
wa&ÉrTZ/Zf / JTJ
Þetta skemmtilega hús
úr glertrefjastyrktu
gerviefni vakti
þegar mikla alhygli,
og höfundur
hússins Itefði getaö
selt það i tugatali
samdægurs
og hann
reisti það, hefði hann
haft nauðsynleg
leyfi upp á vasann.
En það stendur
t til bóta.
verður að fjöldaframleiða slik
► hús, sem geta keppt við þær
byggingaaðferðir, sem við notum
núna. Það, sem einkum hindrar
þróun mála, er andstaða
byggingayfirvalda. Fyrrnefndur
Wolfgang Feierbach, sem sjálfur
hefur búið i gerviefnahúsinu sinu
um nokkurra ára skeið, hefur
fengið fjölda tilboða i sams konar
hús. En byggingayfirvöld hafa
ekki viljað viðurkenna húsið
hans, og á meðan er óliklegt, að
aðrir fái byggingaleyfi fyrir sliku
húsi.
Ekki alls fyrir löngu ætluðu
nokkrir hugvitsmenn að koma
fyrir nýstárlegu sumarhúsi, sem
likt var við fljúgandi disk, uppi á
þaki á margra hæða verzlunar-
húsi, en það fyrirtæki var stöðvað
af byggingayfirvöldum. Hér er
ekki um einskæra andstöðu við
nýjungar að ræða, heldur verða
yfirvöld einnig að hugsa um hag
hins almenna neytanda og vernda
hann gegn hugsanlegri ævintýra-
mennsku á þessu sviði.
Það liða áreiðanlega nokkur ár,
áður en gerviefnahúsin verða
tekin góð og gild á almennum
markaði. Það er ekki nóg með,
að byggingayfirvöld séu dálitið
ihaldssöm, heldur er al-
menningur ekki reiðubúinn til að
sætta sig við nýstárlegt útlit
þessara húsa. Til allrar hamingju
fyrir byggingariðnaðinn viljum
við enn sem komið er endilega
halda okkur við kassana okkar á
föstum grunni með þykkum
veggjum og traustvekjandi þaki.
En kannski næsta kynslóð búi i
svipuðum húsum og sjá má um
þessar mundir á tilraunasvæði
SAMAG i Liidenscheid.
13.TBL. VIKAN 25