Vikan - 14.03.1974, Blaðsíða 50
CJItepasagnn;
ÁRHRIHGARHIR
Ethel Curtis hafði verið saknað svo
dögum skipti, og var nú hafin leit að
henni hvarvetna. Vitað var að samkomu-
lagið með henni og unnusta hennar hafði
ekki verið sem bezt að undanförnu; hann
hét Fred Parker, og hafði verið svo ást-
fanginn af henni, að þegar hún vildi slíta
trúlofuninni, fór hann bónarveg að henni
og þrábað hana að yfirgefa sig ekki. Og
þau höfðu því haldið áfram að vera sam-
an, þrátt fyrir það að hvað eftir annað
sló í brýnu með þeim, og öllum væri aug-
ljóst að samband þeirra hékk á bláþræði.
Sá orðrómur var á kreiki að þau hefðu
ekki aðeins rifizt, heldur og slegizt, en
Fred Parker var talinn maður skap-
bráður.
Ekki vakti hvarf Ethel neina athygli
fyrst í stað. Fólk hugsaði sem svo, að
sennilega hefði hún skroppið eitthvað í
burtu; flúið til þess að geta hugsað sín
mál í ró og næði.
En þegar liðin var vika án þess nokk-
uð f réttist til hennar eða af ferðum hennar,
tók fólk að gruna margt. Loks var hafin
að henni skipulögð leit. Þau Ethel og
unnusti hennar voru bæði af bændafólki
í Yorkshire og nauðþekktu umhverfið.
En það var ekki að vita nema hún hefði
gripizt skyndilegri geðbilun, eða þá að
hún hefði hrapað niður í jarðfall og orð-
ið fyrir slysi.
Eftir margra daga leit fannst lík Ethel
í skóglundi. Höfuðkúpan hafði verið brot-
in með þungu höggi.
Svæðið umhverfis var rannsakað ná-
kvæmlega, en engin verksummerki fund-
ust, sem varla var heldur við að búast,
eins og þarna hagaði til. Það var þó ber-
sýnilegt að ekki mundi hafa komið þar til
neinna átaka. Ethel hafði verið barin í
hnakkann og að öllum líkindutn alls ó-
viðbúin.
Bareflið fannst þó þarna skammt frá.
Það var venjulegur hamar, og leynilög-
reglumaðurinn frá Scotland Yard, sem
falin hafði verið rannsókn málsins, athug-
aði áhaldið gaumgæfilega. Hann komst
brátt að raun um að ekki voru nein greini-
leg fingraför á skaftinu, aftur á móti var
það annað, sem vakti athygli hans. Skaftið
var heimasmíðað. Og það hlaut að vera
svo til nýtt, því að viðurinn var ekki
þornaður. Skaftið var smíðað úr reyni-
viði.
Grunurinn beindist að unnusta hinnar
myrtu, Fred Parker. Gat það ekki hafa
átt sér stað, að hann hefði myrt hana í
reiði? En hann harðneitaði. Hann syrgði
unnustu sína mjög, og að því er virtist
var sorg hans ekki nein úppgerð. Ham-
arinn kvaðst hann aldrei hafa áður séð.
King leynilögreglumaður hafði því ekki
neinar sannanir á að byggja, ekki einu
sinni sterkar líkur. Að vísu virtist það alls
ekki ósennilegt, að Fred Parker hefði
íramið morðið, en ekki varð hann þó
tekinn fastur bar fyrir, og enn síður að
þær likur væru nægilega sterkar til þess,
að nokkur dómstóll tæki þær til greina,
hvað þá meir.
King reikaði um nágrenni morðstaðarins
og hugsaði málið. Og þá gerðist það, að
hann kom auga á trjástúf í rjóðurjaðri, sem
bersýnilegt var að höggvið hafði verið
ofan af fyrir skömmu. Þegar hann athug-
aði stúfinn nánar, sá hann að þarna var
um reynivið að ræða.
Og þar sem rjóður þetta var á landar-
eign Fred Parker, hugsaði leynilögreglu-
maðurinn sem svo, að ef til vill mundi
það ómaksins vert að athuga reynistúfinn
nánar.
Það kom líka ^ laginn. Nokkrum dögum
síðar voru sérfræðingar í viðargreiningu
sendir á vettvang að beiðni leynilögreglu-
mannsins. Þeir hófu þegar í stað nákvæiha
rannsókn, bæði á hamarskaftinu og reyni-
viðarstúfnum í rjóðurjaðrinum.
Þessi litli stúfur reyndist hafa sína sögu
að segja.
Viður, sem vindur næðir löngum um
úr einni og sömu átt -—• eins og á sér stað
um tré í rjóðurjaðri — vex hallt undan
vindáttinni. Það er sérkennandi fyrir
slíkan við, að árhringarnir verða fyrir
bragðið misjafnlega sporöskjulagaðir, svo
teljast má útilokað að frávikið af réttum
hring verði nákvæmlega eins í nokkrum
tveim slíkum viðum.
Árhringarnir í reyniviðarstúfnum reynd-
ust sporöskjulagaðir. Hið sama var að
segja um árhringana í hamarskaftinu —
og frávikið var nákvæmlega hið sama.
Það var því þar með örugglega sannað,
að skaftið á hamrinum hafði verið smíðað
úr þessum reyniviði!
Þetta var sú sönnun, sem leynilögreglu-
maðurinn þurfti með, til þess að geta látið
til skarar skríða. Hann hélt tafarlaust
heim til Fred Parker.
— Fred Parker, mælti hann. Þér eruð
hér með tekinn fastur fyrir morðið á unn-
ustu yðar.
— Það ... það getur ekki átt sér stað,
stamaði Parker, en hélt þó mótþróalaust
með leynilögreglumanninum á lögreglu-
stöðina.
Fyrst í stað harðneitaði hann því, að
hann hefði nokkurn þátt átt að dauða
unnustunnar. En þegar honum voru sýnd
sönnunargögnin, og um leið frá því skýrt
hvaða sögu sérfræðingarnir hefðu getað
lesið úr hamarsskaftinu og reyniviðar-
stúfnum, féll hann saman og játaði á sig
morðið.
— Ég varð henni að bana, sagði hann.
En það var ekki af ásettu ráði. Ég hugð-
ist aðeins skjóta henni skelk í bringu. En
þegar ég sá að hún var dáin, kastaði ég
frá méí1 hamrinum og flýði. -Jc
50 VIKAN 11. TBL.