Vikan - 15.08.1974, Side 11
ur og haföu það sem allra bezt um
ævina.
S.A.
Það er slæmt aö mega ekki
birta allt bréfið, það hefði einmitt
getað orðið þeim aðvörun, sem
freistast til að leika sér með til-
finningar ungiinga á viðkvæmum
aldri. Auðvitað gekk þér ekkert
illt tit, ástæðurnar til framkomu
þinnar og tilfinningar þinar til
stúlkunnar voru nákvæmlega þær
sömu og ég gat mér til i svari
minu til hennar, sem sagt ósköp
eðlilegar og venjulegar. Það er
bara mannlegt að finna til yfir-
burða sinna og neyta þeirra, og i
þessu tilviki gerðir þú það áreið-
anlega i mesta meinleysi. Þar
sem ég sé á öliu að þú ert vænsti
strákur og að þér þykir leitt að
hafa komið þessum grillum inn i
kollinn á stúikunni, þá legg ég til,
að þú svarir bréfi hennar og reyn-
ir að koma svolitlu viti fyrir hana,
gerir henni skiljanlegt, að á milli
ykkar geti aldrei orðið neitt. En i
öllum bænum reyndu að særa
hana ekki meira en orðið er. Er
hún ejiki nógu hugguleg til þess að
þú getir svona i leiðinni sagt
henni það álit þitt, að hún tnuni
geta valið úr strákum, þegar
hennar timi er kominn? Annars
skaltu ekki ásaka þig sjálfan um
of, sumt fólk er svo rómantiskt og
ástfangið af ástinni á þessum
aldri, að það gleymir allri skyn-
semi. En ritvélin? Ætli ég gizki
ekki á Olivetti.
Of feit
Elsku Póstur!
Viltu gefa mér eitthvert gott
ráð til þess að grenna mig, þvi
mér finnst ég of feit. Það þýðir
ekkert fyrir mig að fara i megr-
un, þó ég hafi oft reynt það, þvi ég
má ekki sjá kökur og svoleiðis,
þá... þú veizt! Grennist maður við
það að reykja? Ég reyki ekki.
Hvor finnst þér sætari Donny Os-
mond eða David Cassidy? Hvað
lestu úr skriftinni, hvernig finnst
þér hún, og hvað heldurðu, að ég.
sé gömul? Og ef þú vogar þér að
birta nafnið. ..
Bolla
Min kæra, þú verður einmitt að
láta kökurnar i friði og raunar
ýmislegt fleira. Þú þarft fyrst og
fremst viljastyrk, og ef þú raun-
verulega vilt megra þig, þá
sneyddu hjá öllu sætu, farðu I al-
gjört bindindi á sælgæti, kökur og
sætt braut, hættu að borða sæt-
súpurnar og grautana hjá
mömmu, borðaðu frekar smjör
en sósu með kjötinu, slepptu kart-
öflunum, spaghettiinu og rauð-
kálinu, og láttu tómatsósuna eiga
sig. Borðaðu sem mest grænmeti
og smjör með fiski og kjöti, borð-
aöu egg og ost og ferska ávexti og
vertu dugleg að hreyfa þig:
Reykingar eru ekkert grenn-
ingarmeöal, enda stórskaðlegar,
ekki sizt fyrir unga stúlku eins og
þig, sem ert varla meira en svona
14 ára. Skriftin er snotur, en frá-
gangur bréfsins er ekki góöur,
svo að sennilega ertu ekki nögu
vandvirk að eðlisfari. En ég segi
það alveg satt, að ég veit ekki,
hvernig þeir líta út, þessir tveir
herramenn, sem þú viit fá álit
mitt á, og mig skortir áhuga til að
afla mér vitneskju um þá.
Gabi Seefeldt, 311 Ucher, Amsel-
stieg 4, Germany. 17 ára þýzk
stúlka, sem óskar eftir isl. penna-
vinum. Hún hefur áhuga á allsk.
iþróttum, lestri og tungumálum.
Talar ensku, frönsku og sænsku,
auk þýzkunnar.
Mrs. Jill Brockway, 10 TURKS
CLOSE, Motocombe, Nr. Shaftes-
bury, Dorset, England SP7-9PG.
Húsmóðir, 31 árs, sem hefur verið
gift i 13 ár og á unga dóttur. Hún
skrifar aðeins ensku og vill gjarn-
an skrifast á við Islenzkar konur.
Mrs. Deborah Seidel, 2901 Delsa
Drive, Salt Lake City, Utah 84117,
-U.S.A. Oskar eftir isl. pennavin-
um. Ahugam. Safnar brúðum,
minjagripum, póstkortum og hef-
ur áhuga á útsaum og hekli.
Silvio Rodolfo Qunaratone, Via
Cavoun 69 (Maseila Postale) I
27049 Stredella, Pavia, Italia.
Ungur Itali, sem hefúr mikinn
áhuga á að skrifast á við fsl.
stúlku. Skrifar ensku.
Patrice Salmon, 8 karen Rpad,
Glen Cove, N.Y. 1542. Fimmtán
ára stúlka,sem vill gjarnan skrif-
ast á við fsl. pilta og stúlkur.
Mrs. John Bramley, 237 Stevens
Ave. Law. Twp. Trenton, N.J.
08638.59 ára kona, gift og vinnur
úti, á 3 börn og 2 barnabörn. Hún
vill gjarnan komast i bréfasam-
band viö isl. fólk af báöum kynj-
um.
Charles Uzor, Aja Njokui, Rex
Alohi og Achilies Law Idam.allir
i Izi High School PMB 16, E.C.S.,
Nigeria. Ahugamál piltanna er
söfnun frimerkja, tónlist og svo
vilja þeir gjarnan komast i bréfa-
samband við Islendinga.
Mr. Lon Asman, P.B.I., Three
llills Alberta, Canada. TOM 2AO.
Hann er 18 ára gamall og langar
til að skrifast á við íslending, sem
getur skrifað ensku. Hann hefur
mikinn áhuga á aö kynnast Is-
landi.
HORNSÓFASETT
Hentar alls staðar. Settið getur meðal annars
samanstaðið af stól, tveggja sæta sófa og
þriggja sæta sófa ásamt hornborði og sófa-
borði.
SVEFNBEKKIR
ýmsar stærðir og gerðir.
SKRIFBORÐSSETT
fyrir börn og unglinga. 2 stærðir.
Úrvaláklæða, hagstætt verð og greiðsluskil-
málar. Sendum gegn póstkröfu um allt land.
33. TBL. VIKAN 11