Vikan


Vikan - 15.08.1974, Blaðsíða 31

Vikan - 15.08.1974, Blaðsíða 31
hún var bara alls ekki nógu brött þessi brekka. Tankbillinn myndi ekki þurfa að minnka hraðann. Mann var reiður út i þetta lands- lag. Hann var á niðurleið og enn- þá var tankbillinn ekki kominn upp á hæðina. En þá lá við að Mann öskraði upp yfir sig. Rétt framundan var skilti og á þvi stóö: VEGAGERÐ — VARÚÐ! Báðar akreinar voru tepptar, en svört pila benti á mjó- an stig fram hjá vegavinnumönn- unum. Hann stundi þungan, þeg- ar hann sá að það var mjór mal- arevgur. Hann hemlaði ósjálf- rátt. Andartak fannst honum aö hann myndi aka út af, en hann gat haldiö sig á veginum og átti i fullu fangi með að halda bilnum á þessum mjóa vegi. Hann rak aft- ur upp vein, þegar hann fann að afturstuðarinn slóst utan i gaml- an girðingarstaur og skóf stuðar- ann af. Hann náði þvi rétt aðeins að halda veginum. Nú fann hann jafnmikiö æðasláttinn I höfðinu eins og i hjartanu. En beygjan var ekki löng og fljótlega var hann kominn út á malbikið aftur. Hann sá i speglinum, að skrimslið hægði á sér, en var samt á hælun- um á honum. Þetta var leitt, Kell- er, hugsaði hann, þú náðir mér þá ekki einu sinni núna. Bfllinn var kominn miðja vegu upp 1 næstu brekku, þegar i- skyggileg gufa fór að læðast und- an vélarhlífinni. Mann varð bók- staflega stjarfur. Það kom æ meiri gufa og að lokum var þetta eins og goshver. Brekkan var endalaus, fannst honum. Hann var búinn að heyra draugalegar dunur i vatnsgeyminum og beygj- urnar voru ógnvekjandi. Hann gat ekki numið staöar. Hann hlaut að deyja. Hann sá rauða ljósið á mæla- borðinu. Hve mikið kælivatn skyldi vera eftir? Hann sá varla út um framrúðuna og setti þurrk- arana i gang. Það hlaut að vera nóg kælivatn, til að komast upp þessa fjandans brekku. En hvað svo? spurði hann sjálfan sig i angist sinni. Hann gat ekki kom- izt neitt, nema hann gæti bætt á kælivatni. Smám saman hægði á ferðinni. Honum var ljóst að inn- an skamms myndi vélin drepa á sér og þá stóð hann þarna á miðj- um veginum, varnarlaust fórnar- dýr drekans. Hann var samt kominn næstum þvi upp á brekkubrúnina, en tankbillinn vann á. Hann steig ennþá fastar á bensingjöfina, en heyrði aðeins einhver skerandi hljóö frá vélinni. Góði guð, hjálp- aðu mér! öskraði hann með sjálf- um sér. Nú var brúnin rétt fram undan, — nálgaðist óðum. Billinn ksörnglaðist til og frá og hraðinn minnkaði stöðugt — gufustrókur- inn stóð ennþá upp I loftiö og þurrkurnar höföu ekki við. Hjart- að hamaðist i brjósti hans. Góði guð, láttu mér takast þetta! Yfir hæðina! Það tókst. Billinn fór að renna niður á móti. Hendur Manns titruðu, þegar hann slökkti á vélinni, kúplaði frá og lét bílinn renna. Þetta var löng brekka. Hann rann fram hjá skilti og á þvi stóð: LANGFERÐAMENN, AKIÐ A LÁGUM GIR NÆSTU 20 KM. Tvær milur! Einhvers stað- ar hlaut hann að fá gott tækifæri. Einhvers staðar! Hraðinn jókst. Attatiu kiló- metrar. Rauða ljósið lýsti ennþá. En hann gat hlift vélinni langan spöl ennþá. Þessar tvær milur hlutu að kæla hana. Bara að drös- ullinn kæmi ekki fast á eftir. Hraöinn jókst. Attatiu og fimm. og ennþá kom hann ekki auga á tankbilinn i speglinum. Ef hann væri heppinn, þá átti hann að geta fengið gott forskot. Hann leit I spegilinn, tankbill- inn var að koma upp á hæðina og rann á miklum hraða niður á móti. Þaö yrði ábyggilega ekki langt, þangað til hann væri búinn að ná honum. Hann ók á niutiu. En það nægði ekki. Hann varð að nota vélina lika. I örvæntingu sinni sneri hann kveikjulyklinum, en ekkert skeði. Enginn -anz! Mann var nú örvæntingu nær og sá, sér til skelfingar, að bilið á milli þeirra minnkaði óðum. ör- væntingin náði algerlega tökum á Mann, það var eins og isköld hönd gripi um hjarta hans. Svo kom hann auga á undan- komuleið, nokkurn spöl framund- an, útskot, eöa vegarspotta, þar sem hægt var að komast af hrað- brautinni. Hann átti ekki á öðru völ, en að nota þetta tækifæri. Annaö hvort varð hann að beygja inn á þetta útskot, eða þá að skrlmslið myndi aka yfir hann. En hann mátti ekki láta brjálæð- inginn vita hvað hann hefði i huga, fyrr en á siðustu stundu. Nokkrum sekúndum áður en hann kom að útskotinu, sneri hann stýrinu snögglega. Billinn hallaðist, hættulega nálægt berg- brtíninni. Hann steig fast á heml- ana og sveigði út af hraðbraut- inni, svo að hjólin mörkuðu djúp för i mölina, áður en billinn stöövaðist, með svo miklum hnykk, aö hann fann til i hnakk- anum. Hann reyndi samt að snúa striöum hálsinum og gá aftur fyr- ir sig, og sá tankbllinn, með allri aftanltrossunni aka áfram á eftir honum/ann sat algerlega lamaö- ur. Hann vissi að dauðastundin nálgaðist, en þegar hann sá fer- likið nálgast, varð hann svo ótta- sleginn, að hann skynjaði bók- staflega ekki það sem var að ger- ast. Hann rankaði samt við sér, þegar hann sá tankbilinn velta á hliðina, eins og eitthvert forn- aldardýr og svo var hann horfinn. Mann skrönglaðist út úr bflnum og staulaöist fram á bergveggnm, staulaðist hann aftur fram 'ð brúnina. Kolsvartur ollureykur huldi flakið, sem stóð i björtu báli. Svo komst hanp aö lokum til sjálfs sin. Hann fann hvorki fyrir hryllingi né velgju, það kom ekki fyrr en seinna. Nei, það sem var e^t I huga hans þessa stundina, það var hin ævaforna tilfinning þess manns, sem hefur sigraö hættulegan óvin. GI5SUR GULLRASS E-FTIR • BILL KAVANAGU e. FRANK PLBTCUER. Hvernig kunni Rassmina] við herra Bestill? * 33. TBL. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.