Vikan - 15.08.1974, Side 39
fara til hans. Og það rétt bráðum.
Elgur stakk niður árinni hinu-
megin og stundi um leið.
— Kann að vera. En það geng-
ur bara aldrei. Þú lifir i of miklu
hatri.'Þér þykir ekkert vænt um
lifið. Og ef manni þykir það ekki,
verðurekkert gagn i þessu... Ekki
einusinni I honum Latimer meö
allt rikidæmið
— Það getur þö haldið manni
uppi, sagði Rósa.
Þegar þau komu að háu rauðu
leirbökkunum, benti Elgur Viktor
að leggja að landi. Þau stigu öll
fjögur upp úr bátunum og bröltu
upp bakkann með byssurnar og
farangurinn. Rósa var ekki með
neina byssu, en bar aðeins sam-
anvafið teppi og svefnpoka.
Elgur sagði: — Grenin eru
hérna beint fyrir vestan. Ef við
flýtum okkur getum við náö
þangað fyrir myrkur.
Hann sneri svo inn 1 skóginn og
hin á eftir honum i halarófu.
Carol fyrst, siðan Rósa og Viktor
aftastur. Þau gengu hratt gegn
um þöglan skóginn, og stönzuðu
ekki fyrr en þau höfðu gengið
heila klukkustund. Þá stöðvaði
Elgur þau. Hann renndi byrðinni
af öxlum sér og sagði: — Við skul-
um aðeins.blása mæðinni.
Carol settist niður og hallaði sér
upp að stórri eitursveppsrót og
teygði úr fótunum. Rósa sneri sér
að Viktor og sá, að hann var orð-
inn sveittur á ljósleita andlitinu.
Hún færði sig alveg að honum, tók
vasaklút og þerraði svitann af
honum. Meðan hún var að þvi,
horfði hún fast i augu honum. Hún
sagði: — Get ég fengið að
drekka? Hann var með fóðraðan
pela við beltið. Hann tók hann af
sér og hún drakk, og þegar hún
rétti honum hann aftur lét hún
fingurna dvelja lengi við höndina
á honum.
Þá sagði Carol: — Við skulum
halda áfram, ef við eigum að
komast þangað i dag. Hún stóð
upp.
Rósa var fljót að koma sér á
fyrra stað sinn i halarófunni.
Nú var það oröið
henni mikilvægast af öllu að
halda Viktor á réttri braut. Það
var nauðsynlegt millispor, áður
en hún fengi hert upp hugann til
að fara til Latimers.
Framhald i nœsta blaði.
Grafin lifandi
Framhald af bls. 17
Ég bað lengi og innilega og á
eftir leið mér svolitiö betur.
ÞAÐ ER EINHVER
1 BtLNUM!
Ég var orðin hálfsljó i augun-
um, en tókst þó að sjá á úrið mitt,
sem ég hafði gætt vandlega að
draga upp. Klukkan var fjögur og
ég reyndi að átta mig á hvort væri
sunnudagur eða mánudagur. Ég
komst að þeirri niöurstöðu, að
þaö hlyti að vera mánudagur. Ég
reyndi lika að reikna út hvað ég
hefði verið lengi innilokuð I blln-
um og mér taldist til, að það væru
48 klukkustundir. Og þegar ég var
að velta þvi fyrir mér, hvað
manneskja gæti lifað lengi við
kringumstæður sem þessar,
heyrði raddir, eða þóttist heyra
raddir.
Ég hrópaði örmagna: — Hjálp!
Hjálpiö mér!
Ég heyrði rödd segja: — Guð
minn góður: Það er einhver I
bilnum. Það er einhver i bilnum!
Ég var of aöfram komin til þess
að vita nákvæmlega hvað gerðist
eftir þetta, en seinna var mér
sagt, að fjórir ungir menn og ein
stúlka hefðu veriö þarna á skiö-
um. Unga stúlkan hafði séö
glampa á eitthvað I snjónum og
fariö nær til þess að kanna hvað
það væri. Þá sá hún, að þetta var
blll og kallaði á vini sina.
Þau náðu mér út úr bilnum og
báru mig upp á veginn, þar sem
þau höföu skilið bilinn sinn eftir,
og óku mér siðan á sjúkrahúsið i
New Liskeard, þar sem læknarnir
rannsökuðu mig samstundis.
BJARGAÐ!
Þremur dögum seinna var ég
flutt á sjúkrahúsiö 1 North Bay, en
dvöl min þar varð ekki löng. Þvi
að þó að ég hefði meiözt svolitiö,
voru meiðslin ekki alvarleg. Dótt
ur minni var tilkynnt hvað hafði
gerzt og hún og maður hennar
komu akandi til North Bay. Rose
ávltaði mig náttúrlega fyrir
glannaskapinn. Ég hlustaði á
ávltur hennar án þess að svara,
þvi aö ég gerði mér vel ljóst, að
feröalagið hafði verið glapræði.
Hefði ekki unga stúlkan séð
glampa á eitthvað undir snjónum,
hefði ég aldrei getað sagt frá
fyrstu bæn minni til guðs. Þ.á væri.
ég dáin.... ífr
Með lieimilistryggingu er innbú yóar m.a. tryggt gegn eldsvoöa, eldingum.
sprengingu, sótfalli, snjóskrióum, aurskriöum, foki, vatnsskemmdum, innbrotsþjófnaói o.fl.
í Heimilistryggiflgu er innifalin ábyrgóartrygging fyrir tryggingataka maka
hans og ógift börn undir 20 ára aldri. enda hafi þessir aðilar sameiginlegt lögheimili.
Tryggingarfjárhæöin er allt aó kr. 1.250.000.- fyrir hvert tjón.
í Iflcimilistryggingu er örorku- og dánartrygging húsmóður og barna yngri
en 20 ára, af völdum slyss eða mænuveikilömunar. Örorkubætur fyrir húsmóóur og börn,
nema kr. 300.000.- fyrir hvert þeirra vió 100% varanlega örorku.
Heimilistrygging Samvinnutrygginga er nauösynleg trygging fyrir öll heimili
og fjölskyldur.
SAMVINNUTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SlMl 38500
Vogar-
merkið
24. sept. —
23. okt.
Nú bregður svo við, aö
gamall ferðafélagi
þinn skýtur upp koll-
inum og vill vingast
við þig. Þér þykir
þetta grunsamlegt og
það er rétt af þér að
fara að öllu með gát i
þessu sambandi.
Dreka-
merkið
24. okt. —
23. nóv.
Þú skalt ekki vera að
flika áformum þinum,
þvi aö það er til þess
eins fallið að reynt
verði að draga úr þér
kjarkinn. Gættu eigna
þinna vel og lánaðu
þær ekki út i bláinn.
Þú færð góðar fréttir á
föstudaginn.
Bogmanns-
merkið
23. nóv. —
21. des.
Þú verður að ákveða
hvern hlut þú kýst þér
i ákveðnu máli i
þessari viku. Valiö er
erfitt og þú ættir að
leita til þér eldri og
reyndari manna og fá
álit þeirra á málinu.
Vertu svolitiö ræktar-
legri i garð fjöl-
skyldunnar.
Geitar-
merkið
22. des. —
20. jan.
Ef þér tekst að stöðva
framgang ákveöinna
mála, getur veriö að
þú sleppir með
skrekkinn. Að öðrum
kosti verður þú að liöa
enn um stund fyrir
lydduskapinn og
undirlægjuháttinn.
Reyndu að lyfta þér
upp um helgina.
Vatnsbera-
merkið
21. jan. —
19. fehr.
Þú k y n n i s t
einhverjum nýjum
hópi fólks og þar
telurðu þig finna
félaga til lifstiöar.
Gættu þess nú vand-
lega, að þú verðir ekki
til þess að splundra
hópnum meö nærveru
þinni eins og svo oft
vill koma fyrir þig.
Fiska-
merkið
20. febr. —
20. marz
1 þessari viku býðst
þér nýtt tækifæri, sem
þú skalt umfram allt
hagnýta þér sem bezt
þú getur, þvi að óvist
er hvenær þér býðst
annað slikt tækifæri.
Reyndu að vera sem
mest heima við og búa
þig undir erfiða gesta-
komu um helgina.
33.TBL. VIKAN 39