Vikan - 24.10.1974, Qupperneq 7
ÉÁndlitsgríma úr eigu manns í virðingar-
stöðu. Gríman er úr jadesteini, sett
skeljum. Hún er 30 sm á hæð og er frá
blómaskeiðinu í kringum 692. Fannst í graf-
hýsi í Palenque, varðveitt á mannfræði-
safninu í Mexíkó.
Mannshöfuð mótað í gips, 28 sm á hæð.
Þetta höf uð fannst í forsal graf hvelf ingar í
hof i einu í Palenque. Frá blómaskeiði Maya
Jfff^m um 692. Varðveitt á mannfræðisafninu í
Mexíkó.
Þessi mynd er af skál á þrífæti, sem fannst
i Kampeche í Mexíkó og er talin vera frá
því snemma á hnignunarskeiði Mayanna,
eða um 950 — 1200. Skálin, sem er varðveitt
á Gerdessafninu i Munchen, er u.þ.b, 30 sm
í þvermál.
þessu tímabili. Sú fegursta þeirra
heitir Codex Dresdensis, en það
eina, se^n vitað er með vissu um
innihald hennar, er að hún fjallar
um reikistjörnuna Venus, og
vísindamenn eru vondaufir um, að
þeim takizt að ráða frekar í þessar
rúnir.
Það virðist yfirleitt fremur lítil
von til þess, að frekari vitneskja
fáist um þessa sérstöku menningu,
sem var einskis virði á verklegu
sviði, en fæddi af sér afreksverk á
sviði lista og vísinda. Þessi
menning þekkti ekki plóg, ekki
áburð, og leirkerasmiðirnir kunnu
ekki að beita snúnu hjóli við iðju
sína, og glergerð var óþekkt meðal
þessarar þjóðar. Mayarnir unnu
með steinaldarverkfærum, en þeir
uppgötvuðu núllið löngu á undan
öðrum Indíánaættf lokkum og kunnu
að hagnýta sér það, og þeim tókst að
gera furðulega nákvæmt tímatal,
sem mun halda orðstír þeirra á lofti
um alla framtíð. I 250 þúsund daga
skakkar útreikningum þeirra
aðeins um tvo daga.Þeir reistu
súlur, „tímavörður", í borgunum á
20 ára f resti í fyrstu, síðan á tiu ára
fresti og loks á fimm ára fresti.
Listmenning Mayanna verður ekki
rædd, án þess að geta tímatals
þeirra um leið.
Úr listrænum táknmyndum
Mayanna má lesa hinn óþekkta
mikilleika alheimsins. List þeirra
leitast við að lýsa hinum stríðandi
öflum náttúrunnar jafnt T litlum
táknmyndum sem goðalíkneskjum.
Þeir nota óvenjuleg tjáningartæki,
og táknmyndir þeirra eru upp-
runnar í löngu liðnum heimi
guðanna.
Listformunum, sem Mayarnir
43. TBL. VIKAN 7