Vikan


Vikan - 26.12.1974, Blaðsíða 4

Vikan - 26.12.1974, Blaðsíða 4
SVIPMYNDIR FRA PERLU AUSTURSINS Myndir og texti: Jón Björgvinsson Droparnir buldu á götunni, og mynd bilanna blikaði I regnvotu malbikinu. Það var eins og bil- stjórarnir fylltust skyndilegri heimþrá, er regnið tók að fossa niður af himninum. Þeir þræddu fram hjá holunum á miklum hraða. Sporvagninn renndi sér hins vegar eftir teinum sinum I áttina að Western Market, þar sem hann beygði niður að höfn- inni og sveigði svo aftur vestur Des Voeux stræti. Gluggunum hafði verið rennt niður, svo kvöld- loftiö lék frjálst um vagninn og gerði manni hitann bærilegri. A veggnum var skilti, sem bannaði fólki að hrækja á gólf sporvagns- ins, og annað, sem I stað þess að áminna farþegana um heiðar- leika, varaði þá við prettpm miðasalans. „Gætið þess, að hann gati miðana I ykkar viðurvist og afhendi ekki notaða miða”. Ég steig út I regnið og myrkrið og komst I skjól við háhýsin, áður en ég varð gegnvotur. Smellirnir, sem bárust viða út um gluggarif- ur, gáfu til kynna, að húsráðend- ur sætu yfir Mahjong spili vin- sælasta tómstundagamninu hér um slóðir. í hliðargötu hafði mis- litum flekum verið hlaðið upp viö útveggi háhýsanna. Þetta voru matsölustaðir kúlianna, kln- Landrýmið er ekki mikið, og þá er bara að byggja upp á viö. A miili há- hýsanna leynast hrörleg fátækrahverfin,. Mtfúuf,- m 1 í > t r<’ • V WÉF/ Fæstar af þessum kinversku júnkum leita nokkru sinni til sjávar. Litlir sampan bátar flytja ibúana á milli fyrir fáeina aura. Fargjaidið fyrir útlendingana er mun meira. 4 VIKAN 52. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.