Vikan - 21.08.1975, Side 4
eftir sérstöku kerfi, þ.e. sett sam-
an úr þrihyrningaformum. Nán-
ari lýsing á húsinu verður ekki
gefin að svo stöddu, enda vænleg-
ast að sjá það með eigin augum.
Ný húsgögn
Sigurvik, heitir nýtt innflutn-
ingsfyrirtæki, sem flytur inn hús-
gögn frá Cassina á ttaliu. Þessi
húsgögn eru allt ööru vfsi en við
eigum aö venjast hér héima, og
„gifurlega smart” að sögn
þeirra, sem hafa séö þau. Sigur-
vik sýnir þessi húsgögn á sýning-
unni og auk þess hægindastól eftir
hinn heimsfræga franska innan-
húsarkitekt, Le Corbousier. Mat-
ur er alþjóðleg vara enda verður
hann ekki útundan á þessari sýn-
ingu. Nokkur matvælafyrirtæki,
t.d. Sól h.f. og Vifilfell taka þátt i
henni. Ef allt fer eins og ætlað er,
koma þau til með að bjóða upp á
eitthvað gómsætt svona af og til.
Ekki er ljóst, hvort betra er aö
sofa i vatnsrúmi eða venjulegu
rúmi, en þaðgeta þeir, sem vilja,
gengiö úr skugga um, með þvi að
kikja i bás A. Guðmundssonar á
sýningunni. Vatnsrúm hefur
aldrei áður verið til sýnis á ts-
landi.
Nýtt bón, Bryngljáinn, sem
kynnt hefur verið i dagblöðum,
verður lika tii sýnis, og er það
m.a. nýjung, eins og svo margt
annað.
Hér hefur verið rætt um það
helsta, og merkilegasta, sem
verður á Alþjóðlegu vörusýning-
unni i Laugardalshöllinni, en auð-
vitað er fjölda margt óupptalið
enn. Það má ekki gleyma erlendu
sýningunum. Pólverjar setja upp
sérsýningu með þátttöku ýmissa
pólskra fyrirtækja, en auk þess
verður austurþýsk heilbrigðis-
sýning „Maður i umhverfi sinu”
sem hefur notið mikilla vinsælda, '
þar sem hún hefur verið sett upp.
Ekki er úr vegi að geta þess hér,
að búningar sýningafreyja eru
sérhannaður af Friði ölafsdóttur,
fatahönnuði, og alveg sérlega
fallegtr, segja þeir, sem hafa séö,
Þessi sýning er sú stærsta sinn-
ar tegundar hingað til. Þetta er
vörusýning i 122 deildum, og á að
verða nokkurs konar þverskurö-
armynd af öllum þeim vörum,
sem eru á markaðinum i heimin-
um i dag. Magnús sagði, að sýn-
ingar meö þessu sniði hefðu gifur-
legt auglýsingagildi, þar sem við-
skiptavinum gæfist stórkostlegt
tækifæri á að sjá, koma við, reyna
aö eigin ósk vöruna, auk þess að
bera saman verð og gæði sömu
vörutegunda. Svona sýning er á
við þúsundir heilsiðu auglýsinga,
sagöi Magnús. Til marks um á-
gæti og árangur, sem sýnendur
telja sig fá af þátttöku, má geta
þess, að 55 fyrirtæki hafa sýnt 2*
svar, 20 fyrirtæki 3svar og 7 fyrir-
tæki hafa alltaf verið með. Þau
eru: Fr. Bertelsen, ólafur Kr.
Sigurðsson, Hurðaiðjan, T.
Hannesson og Co„ Gunnar As-
geirsson, Eimskip og Loftleiöir.
A sýningum Kaupstefnunnar
hafa alls 386 aðilar sýnt 439 sinn
um, en þeir eru fulltrúar fyrir
1830framleiðendur frá 491öndum.
Sýningin i' ár er afmælissýning,
þvi nú eru 20 ár liðin frá þvi að
fyrsta sýning Kaupstefnunnar
var haldin. Hún var haldin i Mið-
bæjarskólanum og þátttakendur,
Sovétrikin, Kina og Tékkó-
slóvakia.
Nýjung í eldhúsinnréttingum!
Kalmar
eldhúsinnréttingar
sænsk gæðavara
Ef þú vilt fá eldhúsinnréttingu nákvæmlega Margar tegundir skápa. Mikið úrval lita. Mál-
eins og þú þarfnast, þá ættir þú að kynna aðar, plasthúðaðar eða úr við. Kalmar eld-
þér sænsku Kalmar eldhúsinnréttingarnar húsinnréttingarnar, skapa rétta útlitið jafnt í
hjá Litaveri nýium húsum sem gömlum.
ERTU AÐ BYGGJA? VILTU BREYTA? ÞARFTU AÐ BÆTA?
LITAVER
dH
GRENSÁSVEGI 18-22-24-SlMAR 82444 30480